Selfoss Fótbolti

Selfoss Fótbolti Myndir, upplýsingar og skemmtiefni frá fótboltanum á Selfossi. Síða fyrir alla foreldra, afa og ömmur, frændfólk og iðkendur.
Áfram Selfoss !!

Þetta er lið❤️
29/09/2026

Þetta er lið❤️

Fimmtudaginn 1. október kl. 16:00–19:00 verður JAKO dagur í félagsheimilinu Tíbrá.Boðið verður upp á sérstök tilboð á fj...
28/09/2026

Fimmtudaginn 1. október kl. 16:00–19:00 verður JAKO dagur í félagsheimilinu Tíbrá.

Boðið verður upp á sérstök tilboð á fjölbreyttum Selfoss-vörum frá JAKO. Þar má meðal annars finna keppnistreyjur, varatreyjur, peysur, jakka, buxur, sokka, húfur, bakpoka og töskur á góðu verði.

Einnig verður hægt að fá nafn og númer merkt á fatnað:

Stórt nafn eða númer á bak: 1.500 kr.
Lítið nafn eða númer að framan: 1.000 kr.
Við hvetjum iðkendur, foreldra og aðra Selfyssinga til að líta við í Tíbrá, skoða úrvalið og nýta sér tilboðin.

Sophie í liði ársins og Védís á bekknum 🧤Fótbolti.net fékk þjálfara Lengjudeildarinnar til að velja úrvalslið tímabilsin...
28/09/2026

Sophie í liði ársins og Védís á bekknum 🧤

Fótbolti.net fékk þjálfara Lengjudeildarinnar til að velja úrvalslið tímabilsins og í rammanum í því liði stendur okkar eina sanna Sophie Guilmette. Védís Ösp Einarsdóttir er á bekknum í liðinu en þær Brynja Líf Jónsdóttir, Embla Katrín Oddsteinsdóttir og Eva Lind Elíasdóttir fengu allar atkvæði.

Sophie spilaði hönskum frá okkar samstarfsaðilum í AB-Sportvörur ehf í sumar.

Til hamingju!

Fögnum saman góðu sumri í Hvíta Húsinu á laugardag! Tryggðu þér miða á Stubb 🎫📷 - Alexander Breki
27/09/2026

Fögnum saman góðu sumri í Hvíta Húsinu á laugardag!

Tryggðu þér miða á Stubb 🎫

📷 - Alexander Breki

U17 ÞRENNA 🔥Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna hefur valið leikmannahóp til þátttöku í undankeppni EM se...
25/09/2026

U17 ÞRENNA 🔥

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna hefur valið leikmannahóp til þátttöku í undankeppni EM sem fram fer í Þýskalandi dagana 8.-16. október næstkomandi.

Í hópnum eru þrír Selfyssingar sem einnig voru allar valdir í æfingahóp sem fór til Portúgals fyrr í september. Þetta eru þær Hildur Eva Bragadóttir, Ásdís Erla Helgadóttir og Sara Rún Auðunsdóttir.

Liðið æfir á Íslandi dagana 6. og 7. október áður en haldið er til Þýskalands þann 8. október.

Til hamingju stelpur!

Kveðja - Árni Þór Grétarsson 🕊️Fallinn er nú frá góður maður, Árni Þór Grétarsson, en hann lést í gær eftir stutta og er...
23/09/2026

Kveðja - Árni Þór Grétarsson 🕊️

Fallinn er nú frá góður maður, Árni Þór Grétarsson, en hann lést í gær eftir stutta og erfiða baráttu við krabbamein. Árni var dyggur stuðningsmaður Selfoss og lagði sitt af mörkum fyrir félagið. Þótt handboltinn hafi verið fyrirferðamestur hjá honum fylgdist hann vel með knattspyrnunni, gladdist þegar liðinu þegar vel gekk og mætti á völlinn þegar heilsan leyfði.

Árni kom með ýmsum hætti að knattspyrnunni á Selfossi. Um tíma textalýsti hann leikjum Selfoss fyrir Fótbolta. net og aðstoðaði félagið við tæknimál tengdum útsendingum frá leikjum á JÁVERK-vellinum.

Heima hjá Árna hafði hann komið upp hlaðvarpsstúdíói þar sem um tíma voru teknir upp þættir um boltann. Þangað komu leikmenn, sérfræðingar og aðrir gestir til að ræða málin. Árni lagði til herbergið og græjurnar og skapaði þannig vettvang fyrir meiri umræðu um boltann og íþróttalíf á Selfossi.

Árni var einn af þeim sem lét sér félagið sitt varða og var tilbúinn að leggja sitt af mörkum fyrir það. Slíkt framlag er ómetanlegt fyrir íþróttafélag og samfélagið í kringum það. Árni var alltaf tilbúinn að gefa ráð og svara símanum þegar þurfti að leita í hans viskubrunn.

Ungmennafélag Selfoss og samfélagið allt hefur misst góðan mann. Knattspyrnudeild Selfoss sendir fjölskyldu og vinum Árna innilegar samúðarkveðjur.

Hvíl í friði, Árni ❤️

📷 - Guðmundur Karl Sigurdórsson

Króatíski veggurinn 🇭🇷 // í hönskum frá AB-Sportvörur ehf 📷 - Alexander Breki
23/09/2026

Króatíski veggurinn 🇭🇷 // í hönskum frá AB-Sportvörur ehf

📷 - Alexander Breki

TAKK allir - pistill formanns ❤️Takk fyrir að svara kallinu, mæta og styðja við Selfossliðið á Laugardalsvelli á föstuda...
22/09/2026

TAKK allir - pistill formanns ❤️

Takk fyrir að svara kallinu, mæta og styðja við Selfossliðið á Laugardalsvelli á föstudag. Frábær endir á góðu tímabili félagsins að taka titil fyrir framan 1.158 áhorfendur í Laugardalnum!

Takk fyrir stuðninginn í sumar við bæði liðin okkar víðsvegar um landið.Takk fyrir alla aðstoðina í kringum félagið í sumar, mótin og heimaleikina.

Núna er næsta verkefni að halda áfram að byggja upp félagið okkar, innan sem utan vallar. Hlakka til að sjá velgengni ársins birtast í fjölgun sjálfboðaliða í störfum fyrir félagið. Lykilinn að betri árangri er betri umgjörð, lykilinn að betri umgjörð eru sjálfboðaliðar með ástríðu fyrir félaginu sínu! SELFOSS á helling af þeim.

Njótum dagsins sem bikarmeistarar og tryggjum saman sambærilega tilfinningu í lok sumars 2027.

Áframmm Selfoss. - Guðjón Bjarni Hálfdánarson, formaður knattspyrnudeildar.

SAVE THE DATE ⌛️
22/09/2026

SAVE THE DATE ⌛️

Dirección

Los Cristianos

Notificaciones

Sé el primero en enterarse y déjanos enviarle un correo electrónico cuando Selfoss Fótbolti publique noticias y promociones. Su dirección de correo electrónico no se utilizará para ningún otro fin, y puede darse de baja en cualquier momento.

Contacto La Empresa

Enviar un mensaje a Selfoss Fótbolti:

Atajos

Compartir