Badmintonfélag Akraness stendur fyrir æfingum fyrir alla aldurshópa. Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Vesturgötu 130 á Akranesi. Skráning fer fram í gegnum Sportabler og eru æfingagjöld greidd þar. Öllum er velkomið að koma á prufuæfingu.