17/05/2026
Frábær helgi að baki!💛
Nú rétt í þessu var að ljúka glæsilegu 4 daga Íslandsmóti í hópfimleikum og stökkfimi í okkar húsum. Helgin gekk einstaklega vel og erum við afar ánægð með hvernig allt gekk upp.
Við viljum óska öllum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu og glæsilega fimleika alla helgina.
Alls tókum við á móti um 650 keppendum og hátt í 2.000 áhorfendum og það er alls ekki sjálfgefið að jafn stór viðburður gangi jafn vel fyrir sig og hann gerði. Að baki svona helgi liggur ótrúleg vinna og samstaða fjölmargra einstaklinga.
Við viljum færa öllum þeim sem komu að mótinu á einn eða annan hátt okkar innilegustu þakkir – foreldrum, sjálfboðaliðum, starfsfólki, þjálfurum, dómurum, styrktaraðilum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum. It takes a village 💛
Alls kepptu 7 lið frá ÍA á mótinu og stóðu þau sig öll einstaklega vel. Við erum ótrúlega stolt af því að eiga svona öflugt, metnaðarfullt og flott fimleikafólk ❤️
Takk fyrir frábæra helgi – við munum brosa út mánuðinn og rúmlega það✨
07/05/2026
Miðasala á Íslandsmótið í hópfimleikum 2026 er hafin á Stubb!🥳
Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram dagana 14.-17 maí á okkar frábæra heimavelli og er vægast sagt spennandi og skemmtileg keppni í vændum 💛
Hvetjum ykkur til að kaupa miða á Stubb bæði vegna þess að takmarkað pláss er í stúkunni og til að minnka álag við inngang.
Hlökkum til að sjá sem flest gul og glöð í stúkunni 😊
Áfram ÍA!
Linkur á miðasölu: https://stubb.is/fimleikafelagia/tickets
*Ath. hver miði gildir á alla hluta mótsins.
06/05/2026
SKRÁNING ER HAFIN Á SUMARÖNN FIMA🤸♂️🥳
Við bjóðum upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið í sumar fyrir börn á öllum aldri💛
☀️Sumar Fimleikjanámskeið fyrir börn fædd 2015-2019
Skemmtilegt leikjánámskeið fyrir alla krakka sem vilja prófa fimleika og parkour í bland við leiki og útiveru. Tilvalið að taka hálfan dag hjá Þorpinu á móti námskeiðinu.
☀️Sumar Trampolín námskeið fyrir börn fædd 2011-2017
☀️Sumar-Dans & Leikir fyrir börn fædd 2015-2017
☀️Sumar Fimleikar fyrir leikskólabörn fædd 2020-2021
Skráning hér: https://www.abler.io/shop/ia/fima
04/05/2026
Nú á dögum tryggðum við áframhaldandi samstarf með vinum okkar í Sjóvá 💛💙
Ekki nóg með að Sjóvá hafi staðið þétt við bakið á okkur síðustu 3 ár, heldur ákváðu þau einnig að auka stuðning sinn með nýjum samningi.
Stuðningur sem þessi skiptir okkur gríðarlega miklu máli og gerir okkur kleift að halda áfram að byggja upp öflugt og metnaðarfullt starf fyrir iðkendur okkar. Við erum ótrúlega þakklát fyrir traustið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs💛🤸🏻♀️
27/04/2026
💛Fjáröflun iðkenda í Meistaraflokk og 1. flokk FIMA💛
Kæru Skagamenn,
Á miðvikudaginn n.k. ætla iðkendur okkar í meistaraflokk og 1. flokk Fimleikafélags ÍA að safna dósum til fjáröflunar.
Þeir sem vilja vera svo yndælir og styrkja þau geta skrifað niður heimilisfangið hér að neðan í komment eða sent á okkur skilaboð.
Þau koma að sækja dósirnar á milli kl. 17-20
Fyrirfram þúsund þakkir fyrir allan stuðninginn💛🖤
22/04/2026
Nýtt fjáröflunarverkefni hjá FIMA 💛
Við höfum unnið hörðum höndum að því að hanna hin fullkomnu ÍA jógahandklæði til að selja til fjáröflunar og erum virkilega spennt að sýna ykkur útkomuna.
Hægt er að panta handklæðin inni á Abler eða hjá iðkendum sem eru á leið í æfingaferð í sumar.
Endilega styðjið við fjáröflunina með því að gera kaup á þessum glæsilegu handklæðum 🫱🏼🫲🏽
Pöntun verður send inn 29. apríl og áætlaður afhendingartími er 5–6 vikur 💛
Athugið að Svarta handklæðið mun ekki líta nákvæmlega eins út og á sýnishorninu sem við fengum (dekkra og lógó meira út í grátt) – það verður í raun enn flottara ótrúlegt en satt 💛
https://www.abler.io/shop/ia/fima?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTY4NTQ=
15/04/2026
Við erum einstaklega ánægð að segja frá því að Galito og Fimleikafélag ÍA hafi gert áframhaldandi samstarfssamning til næstu þriggja ára 💛
Slíkur stuðningur er gríðarlega kærkominn og skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf félagsins.
Galito er sannkallaður uppáhaldsstaður margra Skagamanna – veitingastaður sem býður upp á fjölbreyttan matseðil fyrir alla, þar sem gæði og góð þjónusta eru í fyrirrúmi – og við erum stolt af því að hafa þau með okkur í liði.
Við þökkum Galito kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs 🤝💛
08/04/2026
💛Nýr styrktaraðili í liði Fimleikafélags ÍA💛
Við erum afar spennt að segja frá því að Trésmiðja Akraness hefur gengið til liðs við okkur sem styrktaraðili næstu þrjú árin ✍️
Trésmiðja Akraness er öflugur hópur fagmanna sem tekur að sér fjölbreytt verkefni – smíði, rafmagnsvinnu, uppsetningar á skiltum (sjá mynd😏) og allt þar á milli. Það er dýrmætt að hafa slíka fagmenn í nærumhverfinu - nei sko sjáið bara hvað þeir Siggi og Sjonni eru útsjónarsamir og flottir! 🤩
Samstarf sem þetta skiptir miklu máli fyrir starfsemi félagsins og hjálpar okkur að halda áfram að byggja upp öflugt og metnaðarfullt fimleikastarf fyrir börn og ungmenni á Akranesi.
Við hlökkum til að vinna með Trésmiðju Akraness á komandi árum og erum virkilega þakklát fyrir stuðninginn 💛
02/04/2026
Við verðum aftur með Fimleika POP-UP á skipulagsdegi strax eftir páska🤸💛
Næsti skipulagsdagur verður þriðjudaginn 7. apríl og bjóðum við upp á skemmtilega afþreyingu fyrir börn á leik-og grunnskóla aldri.
🧸 Leikskólakrakkar (5 ára og yngri)
🎉Stór þrautabraut
🕐 Kl. 09:30-10:15
💰 Verð: 1.500 kr
🥰 Foreldrar fylgja börnum
🎒 Skólakrakkar í 1.-6. bekk (6–12 ára)
🎉 Stöðvaþjálfun á stórum trampólínum, loftdýnu o.fl. í bland við skemmtilega leiki
🕓 Kl. 10:30-12:00
💰 Verð: 2.000 kr
Ath. Takmarkað pláss💛
Skráning er hafin á Abler.
https://www.abler.io/shop/ia/fima/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTU5NjM=?/
24/03/2026
Sjáumst í síðasta Krílatímanum okkar í bili milli kl. 10:30-12:00 í dag 🤎🧸
💛 Krílatímar í fimleikasalnum 💛
Vegna mikillar ánægju með Krílatímana okkar í fyrra ætlum við aftur að bjóða upp á þessa skemmtilegu stund fyrir yngstu börnin🥰
👶 Fyrir börn fædd 2024 og yngri
👨👩👧 Foreldrar/forráðamenn koma með
🤸♀️ Frjáls leikur í öruggu og skemmtilegu umhverfi
📍 Fimleikasalur ÍA
⏰ Alla þriðjudaga fram að páskum kl. 10:30–12:00
✨ Engin skráning – bara mæta
✨ Frítt inn
Frábært tækifæri fyrir börnin að kynnast fimleikasalnum, hreyfa sig, leika og hitta önnur börn – allt á sínum hraða 💛
Hlökkum til að sjá ykkur!
24/03/2026
Stelpurnar okkar 💛
📸 Jón Gautur Hannesson