19/12/2024
Þá er loksins komið að því, opið er fyrir forskráningu á fyrstu reglulegu æfingarnar í rafíþróttum fyrir aldurshópinn 13-18 ára tímabilið 7. janúar til 29. apríl.
Stefnt er á að æfingar séu 2x í viku, þriðjudaga/fimmtudaga 16:30-18:00.
Þar sem sætin eru takmörkuð er forskráning nauðsynleg og ef fjöldi umsókna er mikil gæti það haft áhrif á fjölda æfinga sem boðið er upp á svo sem flestir geti tekið þátt. Skráningar verða staðfestar í þeirri röð sem þær berast.
Ef engin breyting er á fjölda æfinga eru æfingargjöldin 30þ fyrir tímabilið.
Hlekkur að skráningu: https://forms.office.com/r/ksex6EwJCP
Fyrir yngri aldurshópa verður stefnt á að halda helgarnámskeið í vetur, en það verður kynnt seinna þegar búið er að ákveða dagsetningar.
Ef þið hafið spurningar er hægt að senda mér skilaboð gegnum þessa Facebook-síðu og ég svara við tækifæri.
Einnig vil ég koma sérstökum þökkum til styrktaraðila okkar en án þeirra væri þetta ekki hægt:
Arnarlax ehf
Arctic Fish
ÍFB
Lionsklúbbur Patreksfjarðar
Fjarðaleið
Íslenska kalkþörungafélagið
Scale AQ Ísland
Nesskip
-Rúnar Örn Gíslason