Hrafnkell Freysgoði

Hrafnkell Freysgoði

Share

Ungmennafélagið Hrafnkell Freysgoði í Breiðdal var stofnað árið 1937.

Photos from Hrafnkell Freysgoði's post 14/05/2026

Fimm flottir karatekrakkar lögðu leið sína suður til Reykjavíkur um síðustu helgi að keppa á Íslandsmeistaramóti barna í kata, þar af þrjú í sína fyrstu ferð. Auk keppninnar var farið í sund, gert víðreist með strætó, borðað, æft og sprellað - allt eins og vera ber.

Á mótinu gekk hópnum glæsilega:
Eyvi tapaði 2-1 í fyrstu umferð fyrir flottum strák sem fór alla leið í úrslit og varð að lokum Íslandsmeistari. Þá komst Eyvi í baráttuna um bronsið og gerði sé lítið fyrir, vann þrjár viðureignir í röð og stóð uppi með bronsverðlaun á sínu fyrsta móti. 🥉😁
Brynjar Pálmi vann tvær viðureignir, eina því mótherjinn mætti ekki og aðra með flottri Kihon Kata. Í þriðju umferð tapaði hann fyrir strák sem vann svo brons í flokknum.💪🏽
Áki vann tvær viðureignir, eina með góðri Heian Shodan og aðra því mótherjinn ólukkaðist til að fá magapest og fór heim. Í þriðju umferð tapaði hann fyrir strák sem vann svo brons í flokknum.💪🏽
Hafrún krækti sér því miður í pest aðfaranótt mótsins og var því fjarri góðu gamni en góður undirbúningur mun nýtast vel í gráðun í lok mánaðar.
Aðalsteinn, reynsluboltinn í hópnum, var ekki skráður til keppni að þessu sinni því hann er að jafna sig eftir beinbrot. Hann var félögum sínum til halds og trausts og mætir galvaskur á sitt fimmta Íslandsmeistaramót að ári.

Áki, Eyvi og Brynjar stóðu sig svo mjög vel saman í hópkata, þótt enginn hafi orðið sigurinn á þessu fyrsta móti.

Krakkarnir voru til fyrirmyndar innan vallar og utan og vöktu athygli fyrir prúðmannlega framkomu og samheldni. Uppáhaldsstund þjálfarans var ótvírætt þegar Eyvi vann bronsviðureignina sína og Brynjar kom hlaupandi til að faðma hann og fagna með honum - slíkt er dýrmætara en nokkur verðlaun!

Sérstakar þakkir fær fyrir að hýsa okkur fjórða árið í röð ❤️

Photos from Hrafnkell Freysgoði's post 03/05/2026

Í janúar byrjaði heldur betur mikil blakmenning hjá okkur í Hrafnkel. Jórunn okkar sá auglýst blakmót uppá Egilsstöðum og skráði 2 lið, karla og kvenna. Upp úr því fengu allir blak bakteríuna og hér erum við, á Öldung 💪🏽👵🧓
Strákarnir okkar nældu sér í 5. sætið eftir drengilega baráttu.
Stelpurnar okkar stóðu sig líka hrikalega vel og uppskáru eins og þær sáðu, 1. sætið varð raunin og þýðir það upp um deild á næsta ári.
Þá er það bara upp, upp og áfram!
ÁFRAM HRAFNKELL FREYSGOÐI 🏐

07/01/2026

Sjóðheit æfingatafla komin í loftið! Hér ættu flest að finna eitthvað við sitt hæfi - komið og prófið! Ein æfingagjöld, 13.500 krónur, veita aðgang að öllum íþróttagreinum.

Vekjum sérstaka athygli á nýjum karatehópi fyrir 50+ ára - kjörið umhverfi til að afsanna allar mýtur um að það sé hægt að verða "of gamall fyrir karate" :D

31/10/2025

Í nóvember verða prufuæfingar (frítt að mæta) í fótbolta á miðvikudögum frá kl 15:00 - 16:00.

Börn í 1 - 10 bekk eru velkomin.
Fyrst um sinn kemur þetta fyrirkomulag til með að vera en ef vel er mætt og mörg ákveða að æfa þá verður skoðað að skipta aldrinum í tvo hópa í framhaldinu.

Þjálfari - Jórunn Dagbjört

Hlakka til að sjá góða mætingu

25/08/2025

Þær sorgarfréttir bárust á dögunum að Magnús Kr. Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í karate, hefði látist eftir skammvinn veikindi. Ungmennafélagið Hrafnkell Freysgoði vottar aðstandendum Magnúsar sína dýpstu samúð.

Vegna jarðarfarar Magnúsar frestast karateæfing miðvikudagsins 27. ágúst fram á fimmtudag kl. 16.

Þær hörmulegu fréttir bárust á dögunum, að félagi okkar, Magnús Kr. Eyjólfsson, hafi látist föstudaginn 15. ágúst á Landspítala Íslands eftir stutt veikindi.
Magnús var landsliðsþjálfari í kata, hafði sinnt því starfi frá 2022 en einnig á árunum 2011-2017.

Karatesamband Íslands sendir fjölskyldu Magnúsar sínar innilegustu samúðarkveðjur um leið og sambandið þakkar fyrir þau fjölmörgu góðu verk sem Magnús sinnti, minning um góðan pilt mun lifa með okkur.

24/08/2025

Í vetur verður fótboltinn og blakið á vegum Hrafnkels Freysgoða! Byrjum í þessari viku, sjáumst galvösk :D

23/08/2025

Vetrarstarfið okkar fer af stað á mánudaginn - endilega verið með! Byrjendur velkomnir :)

17/06/2025

17. júní nefnd Hrafnkels Freysgoða þakkar öllum kærlega fyrir komuna í dag. Æðislegur dagur með ykkur öllum. Án ykkar hefði þetta ekki verið svona skemmtilegt 😁
Endurtökum leikinn svo eftir 6 ár 🇮🇸

13/06/2025
08/06/2025

Síðustu gráðanir vorannar voru á fimmtudag -
💛 Magdalena og Eva María tóku gult belti
🧡 Sandra appelsínugult
❤️ og Aðalsteinn hálft rautt!
Einnig tók Askur hvítt belti með gulri rönd en hann náðist ekki á mynd :) Stóðu sig öll með sóma og geta farið stolt inn í sumarfríið.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Breiðdalsvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address

Breiðdalsvík