10/06/2026
Eins og Sindrafólk tók eflaust eftir í leiknum gegn Árbæ hafa tveir nýir leikmenn bæst í hópinn. Það eru þeir Fuseini Issah og Fredrick Delali sem koma til félagsins á lánssamningi frá KR út tímabilið.
Issah er fljótur og teknískur kantmaður sem getur skapað usla á síðasta þriðjungi vallarins, á meðan Fredrick er öflugur miðjumaður sem les leikinn vel og lætur finna fyrir sér.
Frumraun þeirra lofar góðu og við hlökkum til að sjá þá halda áfram að leggja sitt af mörkum fyrir Sindra á tímabilinu.
Velkomnir í Sindra, Issah og Fredrick!
09/06/2026
⚔️ Austurlandsslagur annað kvöld!
Höttur kemur í heimsókn á Jökulfellsvöllinn þar sem mikilvæg stig eru undir. Strákarnir eru klárir í slaginn og Stjáni verður á grillinu 🍔. Við vonumst til að sjá sem flesta í stúkunni! 🔴⚪️
📅 10/06
🏆 3. deild karla
🆚 Höttur
🕖 19:15
📍 Jökulfellsvöllurinn
07/06/2026
Sterkur 4-1 sigur á útivelli gegn Árbæ í gær! 🔴💪
Ibra kom okkur yfir strax á 3. mínútu og Jóhann Frans tvöfaldaði forystuna tólf mínútum síðar. Heimamenn náðu að minnka muninn fyrir hálfleik en eftir góða byrjun á þeim seinni slapp JayJay inn fyrir vörnina og lagði boltann snyrtilega í netið. Ibra innsiglaði svo sigurinn þegar hann þrumaði boltanum í inn fyrir utan teig.
Lokatölur 1-4 og án efa okkar besti leikur hingað til á tímabilinu. 👏
Næsti leikur er á miðvikudaginn þegar við tökum á móti Hetti í sannkölluðum Austurlandsslag á Jökulfellsvellinum. Flautað verður til leiks kl. 19:15 og við vonumst eftir góðri mætingu!
02/06/2026
Næsta verkefni hjá Sindra er á útivelli gegn Árbæ
📅 06/06
🏆 3. deild karla
🆚 Árbær
🕑 14:00
📍 Domusnovavöllurinn
Strákarnir eru klárir í slaginn og stefna á að koma sér aftur á sigurbraut.
Við hvetjum allt Sindrafólk á höfuðborgarsvæðinu til að mæta og styðja liðið!
30/05/2026
Sindri - KÁ
Streymi: https://watch.livey.events/events/d03756d0-576a-41da-a00f-934ae044ad8d
Sindri - KÁ
Leikur Sindra og KÁ 3. deild KK 5. Umferð Jökulfellsvöllurinn
28/05/2026
Næsti heimaleikur hjá Sindra 🔥
Strákarnir fá KÁ í heimsókn um helgina í 5. umferð 3. deildar karla ⚽️ Mætum og hvetjum strákana áfram 👏
🏆3. deild karla
🆚KÁ
📅Laugardagur 30. maí
🕓16:00
📍Jökulfellsvöllurinn
26/05/2026
Linkur fyrir leikinn hjá strákunum!
Leikurinn byrjar 18:00
https://watch.livey.events/events/9634e2b8-5a5c-4f24-9563-3ced25f5ca46
Sindri - Reynir
Gatorade Bikarinn Sindri - Reynir 1. Umferð Klukkan 18:00 Jökulfellsvöllurinn
25/05/2026
Næsti leikur hjá Sindra 🔥
Næsta verkefni er í Gatorade-bikarnum þegar strákarnir taka á móti Reyni á Jökulfellsvellinum
Borgari og gos á 2500kr
📅 26/05
🏆 Gatorade-bikarinn
🆚 Reynir
🕕 18:00
📍 Jökulfellsvöllurinn
Streymi fyrir leikinn:
https://watch.livey.events/events/9634e2b8-5a5c-4f24-9563-3ced25f5ca46
Mætum og styðjum okkar menn!
23/05/2026
Erfiður dagur á vellinum í dag.
4-0 tap og lítið sem gekk upp hjá okkur í dag. En enginn tími til að velta sér upp úr þessari niðurstöðu þar sem næsti leikur er strax eftir þrjá daga í bikarnum á heimavelli.
20/05/2026
Næsti leikur hjá Sindra
Eftir fyrsta sigurinn leggja strákarnir land undir fót um helgina þegar þeir mæta Ými í Kórnum!
Hvetjum allt Sindrafólk til að kíkja í Kórinn á laugardaginn og styðja við bakið á okkar mönnum
🏆 3. deild karla
🆚 Ýmir – Sindri
📅 24/05
🕑 14:00
📍 Kórinn