Hjólreiðafélagið Bjartur

Hjólreiðafélagið Bjartur

Share

Skráning í félagið fer fram á www.bjarturhjol.is Bjartur var formlega stofnaður 19. október 2011 og er fyrsta og eina hjólreiðafélagið í Hafnarfirði.

Allir félagar hafa það sameiginlegt að elska hjólreiðar og eru ekkert að taka sig of alvarlega.

24/02/2026

Hjólreiðafélagið Bjartur boðar til aðalfundar þriðjudaginn 10. mars klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í sal Sjálfstæðisflokksins, Norðurbakka 1.

Dagskrá: Hefðbundin dagskrá aðalfundar.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
a) Lög félagsins hafa verið uppfærð í takt við viðmið ÍSÍ
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Kosning skoðunarmanna reikninga
8. Önnur mál

Þrír núverandi stjórnarmenn munu ekki gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og því óskum við eftir framboðum.
Þeir sem eru að hætta í stjórn eru Gunnlaugur Sigurðsson, Hreiðar Gíslason og Arnar Þór Ásgrímsson og viljum við færa þeim þakkir fyrir störf sín í þágu félagsins.

Kveðja,
Stjórn Bjarts

12/01/2026

Hjólavarpið og Hjólreiðasamband Íslands hafa nú opnað fyrir kosningu vegna Gullhjálmsins 2025 og er öllum frjálst að kjósa. Innsendar tilnefningar voru fjölmargar, en þessi þrjú sem hér eru tilnefnd fengu lang flestar tilnefningar í ár.

Frestur til að kjósa rennur út föstudaginn 9. janúar.

Sjá frekari upplýsingar um tilnefningar og hvar hægt er að kjósa á heimasíðu HRÍ -> www.hri.is

28/05/2025

Viltu koma út að hjóla?

Photos from Hjólreiðafélagið Bjartur's post 13/05/2025

The Traka 200 er og verður viðburður sem við frá Bjarti munum aldrei gleyma. Girona er stórkostleg hjólaborg á Spáni og landslagið býður upp á allt það besta fyrir gravelhjólreiðar. Kaffihúsin og veitingarstaðirnir eru að manni finnst hannaðir með hjólreiðar í huga. Allt í kringum viðburðinn var til fyrirmyndar og hópurinn stóð sig afburða vel. Leiðin sem var hjóluð þetta árið var mjög krefjandi og því þarf að undirbúa svona viðburð mjög vel. Okkur þykir mjög líklegt að Bjartur fari aftur á næsta ári en með skipulögðum æfingum í sumar og næsta vetur er hægt að setja sér háleit markmið. Traka 2026 er mögulega markmið sem þú ættir að setja þér!

12/05/2025

Götuhjólanámskeið ☀️

Langar þig að hjóla í góðum félagsskap og komast í gott form í leiðinni?

Farið verður yfir allt það helsta sem tengist götuhjólreiðum.

Námskeiðið hefst 19.maí og verður kennt á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 18:00 frá Pallett.

😎👌 bjarturhjol.is

17/02/2025

Bjartir menn á Tenerife

07/01/2025

Innihjólaæfingar eru byrjaðar

Ingvar Ómarsson, margfaldur íslands- og bikarmeistari verður yfirþjálfari hjá okkur í vetur. Komdu og hjólaðu með okkur í einum besta hjólasal landsins í World Class við Tjarnarvelli.

Æfingar fara fram mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00 og laugardaga kl. 11:15

Skráning á www.bjarturhjol.is

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Hafnarfjörður

Opening Hours

Monday 19:00 - 20:30
Tuesday 19:00 - 21:00
Wednesday 19:00 - 20:30
Thursday 19:00 - 21:00
Saturday 09:00 - 12:00
Sunday 09:00 - 12:00