05/05/2026
Jón Már Ferro ráðinn þjálfari ÍH
ÍH hefur ráðið Jón Má Ferro sem þjálfara félagsins fyrir komandi átök í 4. deildinni. Ferro er kunnug stærð innan félagsins enda fyrrum leikmaður þar sem hann lék stórt hlutverk á vellinum um árabil.
Ferro spilaði alls 138 leiki fyrir ÍH í öllum keppnum og skoraði í þeim 8 mörk. Hann var lykilmaður í liði félagsins og skoraði meðal annars sigurmarkið sem tryggði liðinu deildarmeistaratitilinn í 4. deildinni 2020.
Ferro verður í boðvangnum þegar ÍH tekur á móti Álafoss í fyrsta leik sumarsins næstkomandi fimmtudag.
ÍH býður Ferro hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til komandi tímabils undir hans stjórn.
05/05/2026
Stjórn ÍH boðar til aðalfundar þriðjduaginn 12. maí 2026, kl. 18:00 í Kaplakrika, Hafnarfirði.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn ÍH.
05/09/2025
Þessir fimm og fleiri til mæta til leiks á morgun 16:00 í Skessunni! Hlökkum til að sjá ykkur! 🌹🗻🩵🤍
04/09/2025
Þjálfarinn er klár fyrir laugardaginn!
En þú?
🌹🗻🩵🤍
29/04/2025
Treyjusala ÍH 2025
Íþróttafélag Hafnarfjarðar hefur gefið út nýjar treyjur fyrir keppnissumarið 2025 og verða þær treyjur til sölu fyrir stuðningsmenn.
Keppnistreyjan er með svörtum merkingum en einnig er í boði að panta sérstaka útgáfu með gulllituðum merkingum. Treyjurnar koma í stærðum XS - 3XL og allt þar á milli. Einnig er hægt að merkja með nafni og númeri aftan á. Pantanir eða nánari upplýsingar fara fram í commentum eða í skilaboðum á ÍH síðurnar á hvaða miðli sem er.
Verðskrá:
Keppnistreyjan - svartar merkingar: 11.990 kr
Keppnistreyjan - svartar merkingar - með númeri og nafni: 13.990 kr
Sérstök útgáfa - gulllituð merking: 13.990 kr
Sérstök útgáfa - gulllituð merking - með númeri og nafni: 15.990 kr
11/04/2025
Leiðin til Evrópu gekk ekki eftir þetta árið. 2-5 tap gegn Selfossi í 2.umferð Mjólkurbikarsins. Markaskorarar Stórveldisins voru Brynjar Jó og Alex Már. Nýjar treyjur frumsýndar og þökkum við styrkaraðilum okkar Hafinu, Fjarðargrjóti, IceEnergy og Gerviglingur kærlega fyrir aðstoðina. Treyjurnar fara í sölu á næstu dögum, ekki missa af því 🌹🗻🩵
24/03/2025
Aðalfundur Íþróttafélags Hafnarfjarðar.
Stjórn ÍH boðar til aðalfundar mánudaginn 7. apríl 2025, kl. 18:00 í Kaplakrika, Hafnarfirði.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn ÍH.
16/05/2024
STÆRSTI LEIKUR Í SÖGU ÍH!
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins annað kvöld gegn Fram á Lambhagavelli.
Þurfum alla stuðningsmenn ÍH á völlinn til þess að koma okkur skrefi nær Evrópu!
Rósir eru rauðar🌹
Fjöllin eru blá 🗻
Hverjir eru bestir? ÍH🩵