Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding

Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding

Share

Holtabrún is a small family owned horse breeding farm. / Holtabrún er fjölskyldurekin hrossarækt. Holtabrún er ræktunarnafn Huldu G. Geirsdóttir and her family.

Geirsdóttur og fjölskyldu, en Holtabrún er staðsett í Holtum þar sem við eigum land og sumarhús. Hesthúsið okkar er á Kjóavöllum í Kópavogi og við búum í Reykjavík. Við höfum stundað hrossarækt í smáum stíl frá árinu 1998 og fáum 2-4 folöld að meðaltali á ári. Markmiðið er að rækta viljug og skemmtileg hross sem henta til keppni og útreiða. Ekki verra að þau séu falleg á litinn ;)
Holtabrún is the

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 07/06/2026

HALLVEIG frá Holtabrún.
Það er eitt að eiga svona hross og það er annað að hafa ræktað það sjálf. Þvílík gleði og hjartahlýja.
Hallveig frá Holtabrún er 7 vetra í vor og er að stíga sín allra fyrstu spor í keppni, hefur nú keppt á tveimur mótum. Þær stöllur, Hallveig og Eik unnu sína fyrstu fjórgangskeppni á Hellu á dögunum og hefðu sennilega unnið fjórgang V1 á Reykjavíkurmótinu í dag hefði hún ekki losnað upp af greiða töltinu alveg í lokin. Einkunninn samt 7.0 út. Ég kvarta ekki - og það er hluti af þróun keppnishrossins að taka þátt, prófa og læra. Frábærlega gert í dag.
Þegar Hallveig kom í heiminn nefndi ég hana í höfuðið á Hallveigu heitinni Fróðadóttur vinkonu minni sem þá barðist við illvígt krabbamein. Hún gladdist yfir nafngiftinni, en lifði því miður ekki að sjá þann dag að nafna hennar kæmi fram sem slíkur gæðingur. En það hlýjar mér endalaust um hjartað að hryssan ætli að reynast slíkur gullgripur með þetta stóra nafn sem mér þykir svo vænt um.
Hallveig var fortamin tæplega veturgömul af Magga Lár í Holtsmúla. Hann skilaði henni með orðunum "Þetta tryppi er gersemi." Þar var Magnús Lárusson sannspár!
Fjögurra vetra fór hún í tamningu til Elvars Þormarssonar og strax á fyrstu vikunum sást að hún yrði einstök. Ótrúlega hreyfingamikil, skrefstór og jákvæð á allan hátt. Síðan hefur leiðin bara legið upp á við og það er ótrúlega gaman að byrja ferilinn svona vel eins og í vor og framtíðin spennandi. Vona að allir góðir hestavættir verndi hryssuna mína og veiti henni gott líf.
Mikið er ég glöð 🙂 og þakklát Eik fyrir fallegar sýningar og umhirðu á hryssunni.
F: Ljósvaki frá Valstrýtu
M: Þrenna frá Strandarhjáleigu (Þristsdóttir ❤)

05/05/2026

Nú er keppnistímabilið utanhúss að hefjast fyrir alvöru. Hallveig okkar prófaði aðeins innanhúskeppni í vetur með góðum árangri hjá þeim systkinum Eik og Elimar Elvarsbörnum. Og nú er stefnan sett á að prófa utanhúss keppnir í vor og verður spennandi að fylgjast með þessari stórefnilegu hryssu spreyta sig þar.
Mynd: Eik og Hallveig eftir sigur á vetrarmóti hjá Geysi.

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 17/02/2026

Litla Spunadóttirin Hafsýn frá Holtabrún hefur stækkað og þroskast vel í vetur og þær mæðgur hafa það gott hjá vinum okkar í Árbæjarhjáleigu 2 þar sem vel er hugsað um þær ❤️

19/01/2026

Lítið farið fyrir okkur hér undanfarið enda verið rólegt í hestastússi, veturinn mildur og allir kátir. Við sendum ykkur síðbúnar nýárskveðjur og hlökkum til spennandi hestaárs. 🤠

12/08/2025

Hulda varði síðustu viku í vinnu fyrir RÚV á HM íslenska hestsins. Hægt er að sjá samantektarþætti hennar og Óskars Nikulássonar á spilara RÚV hér með að smella á hlekkinn að neðan, endilega kíkið á ef þið misstuð af! Myndina tók Hulda svo að loknum einum af löngu, en skemmtilegu vinnudögunum.
/ Hulda spent last week working at the World Championships for RÚV the national TV of Iceland. On this link below you can see her programs. They are in Icelandic, but some interviews in English, but you might enjoy them anyway. Check it out. The photo she took at the end of a long but good work day.
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/hm-islenska-hestsins/37068/b1g865

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 29/07/2025

Eina folaldið sem við fáum þetta árið er fyrsta folald gæðingshryssunnar Heilunar frá Holtabrún og ofurhestsins Spuna frá Vesturkoti. Um tölur foreldranna þarf ekkert að fjölyrða (hægt að fletta þeim upp) en útkoman er falleg jörp hryssa sem kom í heiminn 23. júní sl. ræktandanum til mikillar gleði. Hryssan litla hefur hlotið nafnið Hafsýn og er hún sú eina sem ber það nafn í Worldfeng, en nafnið kom til Huldu þegar hún sat í stúkunni í Hamingjunni (Víkingsvellinum) í Fossvogi fyrr í sumar. Öll hross sem fæðast okkur eru nefnd nöfnum sem byrja á H og oftast koma nöfnin til Huldu stuttu eftir að folöldin fæðast.
Við vonum að góðar vættir fylgi Hafsýn litlu og hún verði gæðingur líkt og foreldrarnir. ❤️🐴

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 06/06/2025

Þristur hefur verið allsráðandi í hesthúsinu í vetur. Ekki bara var hann sjálfur inni og sonur hans Hildingur aðal reiðhesturinn í fjölskyldunni, heldur voru þessi fjögur ungu hross í þjálfun og miðar vel. Öll undan Þristi eða afabörn hans. ❤️

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 31/01/2025

Þegar hvorki hundi né hesti er út sigandi er gott að geta leikið inni. 🐴😍

Photos from Holtabrún Hrossarækt / Horse Breeding's post 25/01/2025

Snjódagur í Spretti í dag! ❄️

25/12/2024

Gleðileg jól kæru vinir! Merry Christmas dear friends!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hella?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address

Holtabrún, Holta/og Landssveit
Hella
851