Karatedeild Breiðabliks

Karatedeild Breiðabliks

Share

Karatedeild Breiðabliks er ein fjölmennasta karatedeild landsins með hátt í 200 virka iðkendur. Æfingar fara fram í Smáranum.

Skoðaðu heimasíðuna okkar www.breidablik.is/karate. Iðkendur eru nú um 150 af báðum kynjum og á ýmsum aldri. Yngstu iðkendur okkar eru 6 ára en þeir elstu eru rúmlega fimmtugir. Í karate gerum við ekki greinarmun á kynjunum. Allir æfa saman en skipt er í flokka eftir aldri og hversu langt iðkendurnir eru komnir í íþróttinni. Í shotokan karate eru beltin 10, frá hvítum lit (byrjenda) í svart.

11/06/2026

Þessi varð eftir, er ekki viss hvort hann tilheyri okkur.

Uppskeruhátíð karatedeildarinnar 2026 10/06/2026

Minnum á uppskeruhátíðina á morgun í Guðmundarlundi kl 16:30. Vinsamlega skrá sig svo við áttum okkur á fjöldanum.

Uppskeruhátíð karatedeildarinnar 2026 Þá er komið að lokapunktinum á starfinu í vetur, búið að vera afskaplega ánægjulegur vetur hjá okkur og við erum að fara inn í gott sumarfrí og safna kröftum fyrir næsta vetur. Uppskeruhátíð deildarinnar verður eins og svo oft áður í Guðmundarlundi fimmtudaginn 11. júní f...

07/06/2026

Þá er komið að lokapunktinum á starfinu í vetur, búið að vera afskaplega ánægjulegur vetur hjá okkur og við erum að fara inn í gott sumarfrí og safna kröftum fyrir næsta vetur. Uppskeruhátíð deildarinnar verður eins og svo oft áður í Guðmundarlundi fimmtudaginn 11. júní frá 16:30. Byrjum á ratleik og sprelliu og endum á grillinu.
Allir velkomnir en við óskum eftir skráningu svo við getum áttað okkur á fjöldanum.
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfaYnJdYq30sa5sQWwkJsxU9a4TiVR3OuB2kjjG4ydkcve5ug/viewform

25/05/2026

Æfingin UMFL á þriðjudag 26/5 verður 90 mín og mun Þórður Jökull Henrysson sjá um hana. Þórður er margfaldur Íslandsmeistari í kata og hefur verið fastamaður í landsliðinu í mörg ár.

Scandinavia Open 2026 13/05/2026

Minni á að við stefnum á að fara í hópferð á Scandinavia Open 2026 sem verður haldið 19. til 20. september í Malmö. Keppt er í kata og kumite 14 ára á aldrei miðað við dagssetningu.

ATH, skrá hvern og einn sem er áhugasamur um að fara hvort sem um er að ræða iðkanda sem ætlar að keppa eða aðstandanda. Ath að þetta er ekki bindandi.

Skráningar form:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfNeNKLHQDtVVMkVVi389BRgwpP5RNfEv27c-TyftFvSMTq_w/viewform?pli=1

Nánari upplýsingar um mótið:
https://www.sportdata.org/karate/set-online/veranstaltung_info_main.php?active_menu=calendar&vernr=9942&fbclid=IwY2xjawRxGkBleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBIc1pjWFN4R1ZHSzdxZ1NVc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHnM-wxZSe-3Umwtru7CM5DRh8z_-dmUq_QA6BQVLsHSGpoQYSwansd67nnZ__aem_wBHah-tzMNvNt8blLRdWkQ

Scandinavia Open 2026 Stefnum á að fara í hópferð á Scandinavia Open 2026 sem verður haldið 19. til 20. september í Malmö. Keppt er í kata og kumite 14 ára á aldrei miðað við dagssetningu. ATH, skrá hvern og einn sem er áhugasamur um að fara hvort sem um er að ræða iðkanda sem ætlar að keppa eða...

Photos from Karatedeild Breiðabliks's post 10/05/2026

Íslandsmót barna í kata fór fram í dag, 10. Maí í Íþróttahúsinu í Austurbergi. Hátt í 200 viðureignir voru á mótinu sem er óvenju mikið en allt gekk hratt fyrir sig enda valin maður í hverju rúmi. 14 karateblikar mættu til leiks með liðsstjórunum Villa, Sissó, Aroni, Brynju, Örnu, Önnu Lilju, Viktori, Svövu og Ísabellu. Á mótinu dæmdi Hákon Garðarsson en Gaukur Garðarsson og Auður Ester Guðlaugsdóttir voru í mótsstjórn.

Allir karateblikarnir stóðu sig afskaplega vel í dag og voru okkur til sóma í einstaklings og liðakeppni.
Þórdís Jóna Bogadóttir gerði sér lítið fyrir og vann til gullverðlauna í kata 11 ára stúlkna og er þetta Íslandsmeistaratitil hennar í röð. Frábær árangur hjá henni og óskum við henni og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn.

Þá er keppnisárinu að ljúka og þökkum við öllum þeim sem hafa keppt eða aðstoðað okkur á kepnisárinu og hlökkum til að hefja næsta undirbúning eftir sumarfrí.

Photos from Karatedeild Breiðabliks's post 09/05/2026

Íslandsmót unglinga í kata fór fram í dag, 9. Maí í Íþróttahúsinu í Austurbergi. 11 lið sendu frá sér keppendur og voru 100 skráningar þannig að mótið var óvenju stórt í ár. 20 karateblikar mættu til leiks með liðsstjórunum Villa, Samma og Sissó. Á mótinu dæmdi Helgi Jóhannesson og Gaukur Garðarsson og Auður Ester Guðlaugsdóttir voru í mótsstjórn. Ekki má gleyma Þórdísi Jónu lukkutrölli sem átti sinn þátt í velgengni dagsins.

Karateblikarnir komu heim með 23 verðlaun af mótinu. Aron Páll Gauksson er Íslandsmeistari í kata 15 ára pilta og vann einnig til brons verðlauna í liðakeppni 16 og 17 ára pilta. Niðurstaða dagsins 1 gull, 2 silfur og 17 brons og Karatedeild Breiðabliks var í 2-3 sæti í stigakeppni mótsins. Frábær dagur hjá okkur.

• Aron Páll Gauksson, Íslandsmeistari í kata 15 ára pita og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Brynja Mjöll Gautadóttir, silfur í kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Linda Pálmadóttir, silfur í kata 14 ára stúlkna og brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Kristín Mila Busgeeth, brons í kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Arna Kristín Arnarsdóttir, brons i kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Svava Eggertsdóttir, brons í kata 15 ára stúlkna og brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Krummi Arnarsson, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Ýmir Óli Rósmundsson, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Óðinn Hersir Heisason, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Óskar Rós Raffnsöe, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Nicolas Aron Róbertsson Kinghorn, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Anna Lilja Bjarnadóttir, brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Viktor Oberlé, brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Kristín Mila Busgeeth, brons í kata 16 og 17 ára stúlkna.

08/05/2026


Ég vil minna þá sem eiga eftir að ganga frá æfingagjöldum að gera það sem fyrst. Deildinni er ekki leyfilegt að skrá iðkendur á mót eða í gráðun nema æfingagjöld hafi verið greitt. Hægt er að ganga frá skráningu og greiðslu á https://xps.is/en/shop/breidablik .

XPS XPS for Iceland

08/05/2026

Hæhæ
Verðum með undirbúnings og keppnisæfingu í dag í karatesalnum frá 16:00 til 17:30 fyrir alla sem keppa á Íslandsmeistaramótib barna og unglinga um helgina. Verðum með pizzur á eftir og ættum að vera búin um 18.

06/05/2026

Sæl öll.
Æfingar hjá okkur röskuðust mikið seinni partinn í gær.
Vonandi að enginn hafi farið fýluferð eða orðið ráðvilltur en þessi röskun varð til þess að einhverjir komust ekki á æfingar í dag.
Ástæðan fyrir þessu var að aðalfundur Breiðabliks var haldinn í veitinga- og karatesalnum seinni partinn og fengum við veður af því rétt fyrir hádegi að planið væri að nýta salinn okkar fyrir fundinn og það myndi skarast við æfingarnar hjá okkur. Við fórum strax í að reyna að leysa úr þessu máli en tíminn var mjög skammur.
Við höfum nú þegar látið skoðun okkar í ljós og ítrekað að við þurfum mun lengri frest ef við þurfum að færa til æfingar.

Stjórn karatedeildarinnar biðst velvirðingar á þessu og mun gera sitt besta í að svona endurtaki sig ekki.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Dalsmára 5
Kópavogur
200