04/09/2025
Hundahlaupið
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Hundahlaupið, Sports Event, Askalind 3, Kópavogur.
Sannkallað hundapartý 🐶🥳
Frábær viðburður þar sem hundar af öllum stærðum og gerðum taka þátt með eigendum sínum á öllum aldri 🐾 👟
5km tímataka ⏱️
2km skemmtiskokk 🎉
Vegleg þátttöku verðlaun fyrir alla 🏅🎁
04/09/2025
01/09/2025
🐶🏁Hundahlaupið var haldið í þriðja sinn 27. Ágúst 2025.
🎉Stemningin var eins og við viljum hafa hana, algjörlega sturluð og nýtt þátttökumet var slegið með 250 skráningum! 👏
🐕🏃♀️Hundar af öllum stærðum og gerðum og eigendur þeirra á öllum aldri skemmtu sér frábærlega í Reykjarlundinum fagra 🌳
📸Ljósmyndarar Hundahlaupsins þau
Jón Aðalsteinn og Nína Björns fönguðu stemninguna svona meistaralega og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. 🙏
🏅Við viljum þakka öllum þátttakendum og áhorfendum kærlega fyrir áhuga á hlaupinu og ekki síst fyrir alla prúðu hundana, þið eruð öll sigurvegarar. 🏆
❤️ Einnig þökkum við styrktaraðilum Hundahlaupsins, Royal Canin og Non-stop dogwear fyrir þeirra aðkomu, án traustra styrktaraðila væri þetta ekki mögulegt.
⭐️Njótið myndaveislunnar, taggið ykkur og vini, kommentið og deilið myndum af vild, saman sköpuðum við einstakan viðburð sem á skilið birtingu sem víðast 😊
Hlökkum til að sjá ykkur í Hundahlaupinu 2026.🎉
30/08/2025
Skemmtilegur hlaðvarpsþáttur þar sem þær stöllur Kolbrún Arna Sigurðardóttir hjá Óstöðvandi og Theodóra Róbertsdóttir hjá Dýrheimum gera upp Hundahlaupið 2025 ,ræða Canicross, börn og hunda og fleira áhugavert 🐶
Vonum að þið hafið gagn og gaman af 🎉
Hundahlaupið 2025! HUNDAHLAUPIÐ 2025 heppnaðist frábærlega! Hundahlaupið 2025 fór fram á túninu við Reykjalund í Mosfellsbæ um helgina og tókst einstaklega vel í fallegu haustveðri. Alls tóku um 250 þátttakendur þátt í hlaupinu ásamt hundum sínum, sem voru af öllum stærðum og gerðum. Af þeim...
28/08/2025
Takk Takk takk 🎉
Hundahlaupið 2025 taldi 250 þátttakendur á öllum aldri !
Stemningin var sturluð, gleðin var mögnuð og þið voruð öll sem eitt algjörlega frábær bæði hundar og menn 🤩
Við erum þakklát og meir yfir viðtökunum, hrósunum og liðsheildinni sem flæddi á milli þátttakenda, mótshaldara og öllum sem komu að Hundahlaupinu í ár 🥰
Saman sýndum enn og aftur hversu flottir og metnaðarfullir Íslenskir hunda eigendur eru 👏
Sérstakar þakkir fá Styrktaraðilar Hundahlaupsins Royal Canin & Non-stop dogwear, án þeirra væri þetta ekki hægt ♥️
Ást & gleði á ykkur öll
🐕🏃♀️Keep running 🎉
Hundahlaupið 2025
27/08/2025
Þau sem eiga eftir að sækja númerin sín geta sótt þau á upplýsingabás í Non-stop dogwear tjaldinu á mótsstað við Reykjarlund í Mosó
kl 16:00- 17:30.
Hlökkum til að sjá ykkur 😃
Góða skemmtun 🎉
🏁Ekki gleyma að sækja hlaupagögnin þín í dag!
🎯 Dýrheimar, Víkurhvarfi 5 Kópavogi til kl 16:00
🎁 Þín bíða vegleg þátttöku verðlaun
🐶 Hundar eru velkomnir með í salinn
🎉 Styrktaraðilar Hundahlaupsins Royal Canin og Non-stop dogwear bjóða 15 % afslátt af öllum vörum á afhendingunni í dag
25/08/2025
Kæri þátttakandi Hundahlaupsins 2025
Nú styttist í fjörið !
Hér eru nokkur praktísk atriði varðandi viðburðinn.
Afhending hlaupagagna og þátttökuverðlauna
Rásnúmer verða afhent þriðjudaginn 26. Ágúst milli kl. 12:00 - 16:00 . Afhending fer fram hjá Dýrheimum, Royal Canin á Íslandi í Víkurhvarfi 5, 203 Kópavogi. Hundar eru velkomnir í salinn, en þar mun Non-stop dogwear vera með sölubás þar sem þátttakendum gefst kostur á að versla búnað á afslætti.
í þátttökuverðlauna pokanum þínum muntu m.a. finna glæsilegan stuttermabol frá Royal Canin, við hvetjum alla þátttakendur til þess að klæðast bolnum á meðan hlaupi stendur því saman myndum við flotta heild, sem er einmitt eitt helsta markmið Hundahlaupsins þ.e.a.s. efla tengsl hundaeiganda og skapa sýnileika.
Þeir sem skrá sig eftir afhendingu gagna á þriðjudegi, geta sótt númerin sín í upplýsingabás Non-stop dogwear á keppnisstað milli kl 16:00 - 17:30
Rástímar og Dagskrá
Mótsstaður er á stóra túninu fyrir framan Reykjarlund, á svæðinu finnur þú sölubás Non-stop dogwear þar sem þú getur verslað búnað á afslætti, hvatningarstöð Royal canin þar sem þú finnur vatn og orkubita fyrir hundinn. Aðgangur að salerni er í húsi nr 7 við túnið.
Svæðið opnar kl 16:00 , Sölubás Non-stop dogwear er opinn frá 16:00 - 17:30
Sameiginlegri upphitun kl 17.45, að henni lokinni verður ræst af stað í 2 km skemmtiskokk.
Áætlaður rástími fyrir 5 km tímatöku er á milli 18:30- 18:45.
Að hlaupi loknu fer fram verðlaunaafhending fyrir bestu þrjá tíma í kvenna og karlaflokki í 5 km tímatöku.
Ekki gleyma að skella þér í myndatöku við „sigur vegginn“ eftir hlaup!
Meðfylgjandi er kort af svæðinu og hlaupaleiðum ( blá – 2 km og rauð – 5 km) rásmark er á grasflötinni fyrir framan Reykjalund og hlaupaleiðir eru vel merktar.
Bílastæði eru fyrir framan og aftan Reykjalund.
Öryggi keppenda
Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð og ber hver og einn ábyrgð á sínum hundi.
Meðfygljandi eru nokkrir punktar sem við viljum skerpa á.
Upplýsingaflæði
við bendum á fb viðburði Hundahlaupsins 2025
https://facebook.com/events/s/hundahlaupi%C3%B0-2025/1925720974948154/
Deildu gleðinni
Við hvetjum þig til þess að tagga styrktaraðila Hundahlaupsins 2024 á samfélagsmiðlum svo við getum deilt ykkar upplifun með öðrum
Góða skemmtun
22/08/2025
Karri og Kolla sögðu frá Hundahlaupinu í Útvarpinu í dag 🎉
Veist þú hvernig Hundahlaupið byrjaði ?
Hlustaðu á viðtalið með því að smella á hlekkin hér að neðan 👇
22/08/2025
🤩Þér og hunda unnendum er boðið á opna brautar kynningu fyrir Hundahlaupið 🎉
📅 Sunnudaginn 24. Ágúst kl 10:00.
🎯 Stóra túnið fyrir framan Reykjarlund í Mosó
🐾 Við ætlum að ganga - skokka - hlaupa
🏁 Stikaðar leiðir, 2km eða 5km - þú ræður
🐶 Skemmtileg útivist með hundinum í fallegu umhverfi
👏 Allir velkomnir
22/08/2025
Karri kíkti í útvarpið í morgun og sagði frá Hundahlaupinu 🎉
🐶 nú eru bara 5 dagar í skemmtilegasta hlaup ársins 👏
Partí fyrir hunda - Vísir Kolbrún Arna, hundasjúkraþjálfari og hundurinn Karri kíktu til okkar og ræddu Hundahlaupið.
20/08/2025
Það eru frábærar fréttir að lýðheilsu tengdir viðburðir eigi góðu gengi að fagna 👏
Ætlum við að setja skráningarmet í Hundahlaupið 2025 ?
Fyrsta Hundahlaupið var haldið árið 2022 og töluð þátttakendur þá 100. Árið 2024 var Hundahlaupið haldið í annað sinn og þá með tvöföldum þátttakenda fjölda eða 200 talsins !
Það verður spennandi að sjá hversu margir skrá sig í ár 😃
Allar upplýsingar eru á https://www.hundahlaup.is/
Skráning á https://netskraning.is/hundahlaupid/skradir.php
Nýtt skráningarmet 🙌🙌🙌
Skráningar í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2025 eru komnar í 15.553 og því erum við að tala um það að það sé komið nýtt skráningarmet 👏
Fyrra met var frá 2014 þegar 15.552 skráðu sig í hlaupið!
Það er ennþá hægt að taka þátt í gleðinni þann 23. ágúst hér 👉 https://www.corsa.is/is/reykjavikur-marathon
---------------------------------
New registration record 🙌🙌🙌
Registrations for the 2025 Íslandsbanki Reykjavík Marathon are at 15.553 which is new registration record 👏
The last record was from 2014 when 15.552 registered for the race!
You can still join the fun 👉 https://www.rmi.is/en
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Kópavogur
201