13/06/2025
Það eru komnar inn myndir úr hlaupinu í ár inn á www.sportmyndir.is Fullt af frábærum myndum frá Gummi St. Endilega skoðið og finnið myndir af ykkur.
Takk kærlega fyrir komuna í Mosfellsbærinn og við vonum að þið eigið mörg skemmtileg hlaup framundan í sumar! Sjáumst vonandi aftur 12. júní 2026!
12/06/2025
Það er varla hægt að óska eftir betra veðri fyrir kvöldið. Hlökkum til að sjá ykkur, enn hægt að skrá sig á https://netskraning.is/alafosshlaupid/
10/06/2025
Númerin eru tilbúin í Fjallakofanum! Starfsfólk Fjallakofans tekur vel a móti ykkur sem sækið númerin þangað og þar verða góð tilboð á hlaupavörum fyrir alla sem eru skráð í Álafosshlaupið. Fjallakofinn
10/06/2025
Það stefnir í frábært hlaupaveður á fimmtudaginn, hlýtt og rólegur vindur. Við erum að verða frekar mikið spennt að sjá ykkur!
27/05/2025
Geggjuð tilboð á Scarpa hlaupaskóm þessa dagana. Hvet alla til að kíkja á þessa frábæru skó.
Hlaupin - Fjallakofinn
Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. Cookies) til að bæta upplifun notenda og greina umferð um vefinn. Með því að halda áfram samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum.
26/05/2025
Verðlauna-viðarlíurnar fyrir fyrstu þrjú sætin í Álafosshlaupinu í ár eru komnar rjúkandi ferskar frá vinum okkar í Ásgarður Handverkstæði . Þið getið verið fullviss um að það á engin annar eins verðlaunagrip. Hver viðarlía handsmíðuð af meisturunum í Ásgarði. Hér er spennan að minnsta kosti farin að vaxa hratt.
28/01/2025
Álafosshlaupið verður á sínum stað þann 12. júní 2025 Það er fimmtudagur í ár þannig að reikna má með rástíma kl. 18:00 frá íþróttasvæðinu við Varmá í Mosfellsbæ líkt og undanfarin ár.
Við komum með nánari upplýsingar fljótlega og hlökkum mikið til að sjá ykkur :-)
13/06/2024
Það voru alvöru útdráttarverðlaun í ár :-)
13/06/2024
Álafosshlaup Scarpa 2024 - hlauparar pakki 13 Fjallakofinn
13/06/2024
Álafosshlaup Scarpa 2024 - hlauparar pakki 12 Fjallakofinn