20/03/2026
Hamingjan er hér 💛
Í dag er alþjóðlegi hamingjudagurinn ✨
En hamingjan þýðir ekki að allt sé fullkomið…
heldur að við veljum hana 💛
Mætum fyrir okkur sjálf
fyrir hvort annað
og njótum augnabliksins ✨
Ég er ótrúlega þakklát að fá að gera það sem mér finnst skemmtilegt –
með svona frábæru fólki ❤️
Veldu hamingjuna í dag 💛
01/03/2026
Velkominn mars 🤍
Þetta snýst ekki alltaf um að gera meira.
Heldur að gera það sem skiptir máli.
Þrír hlutir sem ég ætla að rækta í mars:
🤍 Að rækta tengslin við vini og vandamenn.
🥣 Borða að minnsta kosti 120 g af próteini á dag.
Til að styðja við styrkinn og endurheimtina 💪
💪 10 armbeygjur á dag.
Smá daglegt átak til að verða sterkari.
Ekki fullkomnun.
Bara stöðugleiki.
Viltu vera með í 10 armbeygjum á dag? 💪🔥
Skrifaðu “MEД í athugasemd 👇
20/05/2025
✨ Frá Seattle til Akureyrar – beint á Esjuna, Tröllafoss og Úllann!
Svona helgar gefa orku!
Sumarið heldur betur farið að gefa af sér 🌞🙌
04/05/2025
✨The Puffin Run 2025✨
Þvílík veisla – sturlað veður, stemming upp á tíu og geggjaður félagsskapur!
Þetta var klárlega krefjandi… en svo gaman!
Hitti fullt af frábæru fólki og er þakklát fyrir daginn! 🙌
24/04/2025
Gleðilegt sumar!
Það er við hæfi í dag að segja ykkur frá því að…
🌞 SUMARFJÖR með Höllu & Bertu 🌿
Byrjar aftur 29. apríl – og við lofum ykkur gleði, útiveru og góðri orku í yndislegum félagsskap!
📆 Tímar: Þriðjudagar & fimmtudagar kl. 17:15
💪 Fyrir konur á öllum aldri
🌼 Útivera – styrkur – hreyfigleði í góðum hópi
👯♀️ Taktu vinkonu með og deildu með okkur sumarstemmingunni!
✉️ Skráning: í skilaboðum eða [email protected]
23/04/2025
50 af 100 Úllum í hús ✅
Við erum hálfnuð með þetta skemmtilega markmið – og það er svo mikilvægt að fagna öllum litlu sigrunum á leiðinni.
Að setja sér markmið er eitt, en að njóta vegferðarinnar er það sem skiptir mestu máli.
50 ferðum lokið og 50 eftir – við erum hvergi nærri hætt!
📸Við vorum svo heppin að hitta elsku Þórey upp á toppnum- sem smellti þessari sætu mynd af okkur hjónum.
24/03/2025
Það er fátt skemmtilegra en að hlaupa með góðum hópi fyrir mikilvæg málefni!
Við hlupum saman í sól og gleði – með hjartað á réttum stað.
Takk fyrir þetta fallega framtak og fyrir að minna okkur á hversu dýrmæt samvera og hreyfing geta verið 🙌
Og takk fyrir að fanga augnablikið – minningar sem lifa lengi!