28/04/2026
ATH TILKYNNING!
Gjaldkerinn okkar var með nokkra afgangs happdrættismiða í vasanum eftir kvennakvöldið og þar voru vinningsnúmer. Við viljum endilega koma þessum vinningum út og höfum því dregið ný númer á þessa vinninga. Ný númer eru feitletruð og svört á litinn á myndinni hér fyrir neðan! Vonandi var heppnin með þér 🥳
27/04/2026
💖 TAKK FYRIR OKKUR 💖
Við viljum senda ykkur öllum innilegar þakkir fyrir frábært Kvennakvöld Aftureldingar ✨
Takk fyrir að mæta, taka þátt, hlæja, dansa, bjóða í uppboðinu, kaupa happdrættismiða og skapa þessa einstöku stemningu sem fyllti Hlégarð 💃💖
Kvöldið hefði aldrei orðið svona glæsilegt án ykkar.
Sérstakar þakkir til allra sem komu að kvöldinu með einum eða öðrum hætti, skemmtikrafta, styrktaraðila, sjálfboðaliða og allra sem lögðu hönd á plóg! Þið eruð ómetanleg ✨
Það er óhætt að segja að þetta kvöld hafi enn og aftur sýnt að Mosó gellur kunna sko að skemmta sér 💖
Takk fyrir okkur, við hlökkum nú þegar til næsta árs 😉✨
27/04/2026
VINNINGSNÚMERIN ÚR HAPPDRÆTTI KVENNAKVÖLDS AFTURELDINGAR 🎟
Á kvennakvöldi Aftureldingar þann 22.apríl var glæsilegt Happdrætti sem sló í gegn. Bestu þakkir til fyrirtækja sem styrktu okkur með varningi 🎉 Vinningsnúmerin má sjá hér á myndinni nr 2!
Hægt er að sækja vinninga á skrifstofu félagsins til 30.júní.
Takk fyrir frábært kvöld og áfram Afturelding 🔴⚫️⚡️
21/04/2026
UPPSELT Á KVENNAKVÖLDIÐ OKKAR 2026! 💃🎉
Gleðifréttir á þessum fallega degi. Öll borðin á kvennakvöldinu ruku út og er því lokað fyrir borðapantanir! Ef þú gleymdir að græja miða með þínum hóp má mögulega troða ÞÉR fyrir en annars sjáumst við bara eldhress annað kvöld í Hlégarði! 🎊✨️🥂