Vegna þess ástands og þeirra takmarkana sem eru í samfélaginu þessa dagana, þá sjáum við ekki möguleikana á því að vera með nein námskeið á haustönn😕. Vonandi tekur nýja árið á móti okkur með betri tíð 😊 . Við munum auglýsa námskeið þegar við hefjum starfsemi að nýju . Bestu kveðjur Vilborg og Salóme 💕
Sundskóli Vilborgar og Salóme
Sundskóli Vilborgar og Salóme er fyrir börn á aldrinum 3 mánaða til 6 ára. Námskeið eru haldin reglulega yfir árið í sjúkrahúslauginni í Neskaupstað.
Sundskóli Vilborgar og Salóme er sunddskóli fyrir börn á aldrinum 3 mánaða til 6 ára. Vilborg er sjúkraþjálfari og ungbarnasundkennari og Salóme er Íþrótta- og heilsufræðingur og sundþjálfari. Áhersla er lögð á að börnunum líði vel í vatni, kennd er vatnsaðlögun og svo helstu grunnaðferðir sundtakanna eftir því sem börnin verða eldri. Námskeið eru kennd reglulega yfir árið. Kennt er í sjúkrahúslauginni í Neskaupstað.
Sæl og blessuð. Nú er búið að tæma laugina og hún opnar að öllum líkindum ekki fyrr en eftir 10.apríl. Það er því ljóst að það verða engin námskeið alveg á næstunni hjá okkur 🙁. Bestu kveðjur Vilborg og Salóme 💦
Kæru sundgarpar! Því miður getum við ekki byrjað með ný námskeið að svo stöddu vegna óvissu hvað varðar útleigu á sundlauginni eftir 26. feb og fram í apríl. Vonandi leysist þetta sem fyrst og þá munum við að sjálfsögðu auglýsa og byrja strax. Því miður er þetta staðan og þykir okkur þetta mjög leitt 🙁
12/02/2020
Komið þið sæl
Vilborg ætlar að pússla 9 - 18 mánaða námskeiðinu þanig að sem flestir komist að og verður í sambandi við ykkur þegar nær dregur.
Ég hins vegar ætla að fara af stað með grunnnámskeið fyrir
3 - 8 mánaða í næstu viku, þriðjudaginn 18. febrúar.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir fjöldanum en ég get allavega boðið upp á tvo hópa (8 í hvorum) ef að fjöldinn verður það mikill. Ef að þetta verða tveir hópar þá eru þetta tímasetningarnar: 11:00 - 11:40 og 11:50 - 12:30. Ef það verður bara einn hópur þá myndi tíminn vera klukkan 11:50. Þumalputtareglan er að börn séu búin að ná 3 mánuðum og 4 kg.
Mig langar að biðja ykkur um að skrá ykkur í eftirfarandi skjal og taka fram ykkar ósk um tíma þ.e. fyrri tími/seinni tími eða skiptir ekki máli. Ég mun reyna að verða við ósk ykkar eftir bestu getu. Námskeiðið verður kennt í 8 vikur, alltaf í hádeginu á þriðjudögum og kostar 12.000kr.
Bestu kveðjur
Salóme Rut
P.s. sendi út nánari upplýsingar um hvað þarf að hafa meðferðis og þess háttar þegar nær dregur námskeiði.
Sundskóli Vilborgar og Salóme (3-8 mánaða) Sheet1 Nafn barns,Fæðingardagur barns,Nafn foreldris ,Kennitala foreldris,Netfang,Símanúmer,Fyrri tími/seinni tími /skiptir ekki máli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16
Mér sýnist við skella í 2 hópa fyrir 9-18 mánaða svo allir komist að. Þarf aðeins að leggjast yfir skipulagið 😊
Kveðja Vilborg
FULLBÓKAÐ 😅
Sæl. Okkur langar að kanna áhuga fyrir námskeiði fyrir 9-18 mánaða börn. Tímasetning kl 17:20 á mánudögum og myndum byrja i lok febrúar 😊
Vinsamlega skráið ykkur í kommentin hér fyrir neðan ef þið hafið áhuga .
12/01/2020
Komið þið sæl og gleðilegt nýtt ár.
VIð ætlum að byrja með námskeið miðvikudaginn 22. janúar. Námskeiðið verður fyrir börn fædd árið 2016 og verður kennt í 6 vikur alltaf á miðvikudögum. Verð kr. 9.000. Hópur 1 klukkan 16:30 og hópur 2 klukkan 17:20. Vinsamlegast skráið barnið ykkar í skjalið og veljið tímann sem hentar ykkur betur, við áskiljum okkur þó rétt til þess að sameina hópana ef að þátttaka verður ekki næg. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.
Upplýsingar um aðra hópa koma á næstunni :)
Sundskóli Vilborgar og Salóme - Árgangur 2016 2017 árgangur Nafn barns,Kennitala barns,Nafn foreldris ,Kennitala foreldris Hópur 1 (16:30) 1 2 3 4 5 6 7 8 Hópur 2 (17:20) 1 2 3 4 5 6 7 8
Komið þið sæl
VIð ætlum að halda eitt námskeið í viðbót fyrir jól. Námskeiðið verður fyrir börn fædd árið 2017 og við byrjum strax á mánudaginn í næstu viku (28. október). Námskeiðið verður kennt í 6 vikur alltaf á mánudögum. Verð kr. 9.000. Hópur 1 klukkan 16:30 og hópur 2 klukkan 17:20. Vinsamlegast skráið barnið ykkar í skjalið og veljið tímann sem hentar ykkur betur, við áskiljum okkur þó rétt til þess að sameina hópana ef að þátttaka verður ekki næg. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur. https://docs.google.com/spreadsheets/d/1xyF_JUJu9b78LT7NayHuNW0IDOtrDRVTKf81p8tyMn0/edit =1102749074
Sæl kæru sundkappar og foreldrar😊 Nú eru námskeiðin hálfnuð eða hér um bil og gaman að fylgjast með framförum og hvað börnin njóta sín í vatninu 💖 Ef einhverjir eiga eftir að greiða fyrir námskeiðin þá væri flott að ganga frá því bráðlega😉
Hlökkum til að hitta ykkur í næstu viku 😃
Bestu kveðjur Vilborg og Salóme 🏊🏼♀️🏊🏼♂️💦
Komið þið sæl
Við ætlum að fara af stað með námskeið fyrir börn 2018 og byrjum strax á mánudaginn í næstu viku (26. ágúst). Námskeiðið verður kennt í 8 vikur alltaf á mánudögum. Verð kr. 12.000. Hópur 1 klukkan 16:30 og hópur 2 klukkan 17:20. Vinsamlegast skráið barnið ykkar í skjalið og veljið tímann sem hentar ykkur betur, við áskiljum okkur þó rétt til þess að sameina hópana ef að þátttaka verður ekki næg. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1xyF_JUJu9b78LT7NayHuNW0IDOtrDRVTKf81p8tyMn0/edit?usp=sharing
Minnum á tímann á morgun hópur 2 :) Klukkan 12:15, gott að mæta 10 -15 mínútum fyrr.
Gleðin hefst í dag 🙋🏼♀️🏊🏼♀️🏊🏼♂️
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Telephone
Website
Address
Neskaupstaður
740