Hunda Hanna

Hunda Hanna

Share

www.hundahanna.is [email protected] *VOFF VOFF* Hún hefur starfað á Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti og Voffaborg Hundaleikskóla.

Hunda-Hanna er 25 ára útskrifaður hundaþjálfari frá Sheilu Harper International Dog Behavioral and Training school í UK. Hún er með BA-próf í Uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands. Lokaverkefni hennar bar heitið: Börn og hundar. Samanburður á farsælum uppeldisháttum.

Ítarlegt nám fyrir alla 17/10/2014

Nú erum við hjá Hundastefnunni að útskrifa hóp hundaþjálfara sem munu starfa með okkur um ókomna tíð :) Erum byrjaðar að taka við skráningum á næsta námskeið sem hefst í janúar - allar upplýsingar hérna: http://hundastefnan.is/?page_id=74

Ítarlegt nám fyrir alla Langar þig á öðruvísi námskeið, fara djúpt í atferli, þjálfun og umhirðu hunda? Viltu heyra í skemmtilegum gestakennurum og nýta þekkingu þína til að byggja upp sambandið við hundinn þinn, breyta hvernig þú hugsar um hunda og jafnvel hjálpa öðrum?

Erlendir gestakennarar 2014 21/06/2014

Þó að þessi síða sé hálf sofandi þá er Hunda Hanna á fullu ;)
http://hundastefnan.is/?page_id=89

Kynni með stolti komu kennara minna frá Bretlandi í næsta mánuði! Endilega kíkið á nýju síðuna okkar Olgu www.hundastefnan.is

Erlendir gestakennarar 2014 Helgina 19-20.júlí næstkomandi munu hundaþjálfararnir og kennararnir Sheila Harper og Winny Boerman koma til Íslands og vera með vinnustofu fyrir alla hundaeigendur óháð aldri hunds, getu, eða fyrri reynslu

16/05/2014

Vegna forfalla vantar okkur hjá Hundastefnunni áhugasaman hundaeiganda sem vill fræðast og fá aðstoð við einhverja ákveðna hegðun hjá hundinum. Hegðanir sem við horfum sérstaklega eftir eru bullyhegðun (þar sem hundur er mjög æstur og hættir ekki þó hann sé beðinn um það) hundur sem á erfitt með að vera í kringum aðra hunda, hræddur hundur eða hundur sem er erfiður í taum/göngutúrum. Skoðum að sjálfsögðu aðrar hegðunaráskoranir. Eigandi þarf að geta mætt kl 20:00 í kvöld í Mosfellsbæ í viðtal, fær leiðbeiningar um/eftir helgina og eftirfylgni verður í byrjun júní. Þjónustan er veitt af nemendum Hundastefnunnar og því frí. Áhugasamir endilega sendið póst sem fyrst á [email protected] og segið frá ykkur og hundinum ykkar. Þessum pósti má deila

Photos 27/03/2014

HundaHanna hefur verið á fullu að vinna í nýja fyrirtækinu sínu Hundastefnunni og opnar nýja heimasíðu von bráðar - en þangað til getum við glaðst saman yfir þeirri ákvörðun (og jafnframt yfirlýsingu) stórverslunarinnar PETS AT HOME að fjarlægja allar bækur Cesar Millan úr hillunum hjá sér og hætta að selja þær. PETS AT HOME hefur einnig hætt að selja hengingarólar (keðjuólar) og rafmagnsólar samkvæmt mínum heimildum og eru því að stíga stór skref í áttina að aukinni dýravelferð. High five til Pets at home alla leið frá Íslandi! :)

**ANNOUNCEMENT**

Based on customer feedback, we're removing the Cesar Milan range of books from our stores. The transition will take a few weeks, so you may still see these in some stores.

12/10/2013

Svo stundum gerist eitthvað hræðilegt en minn maður lætur það þó ekki stoppa sig! En lendir í vandræðum og þá býður maður einfaldlega fram aðstoð. Ef hann hefði ekki viljað aðstoð hefði hann stokkið aftur ofaní kassann og haldið áfram. Hefur þú spurt hundinn þinn hvort hann vilji aðstoð og þekkirðu svarið hans?

12/10/2013

Var á leið með dót í endurvinnslu og ákvað að leyfa hundunum aðeins að leika fyrst :) hér sjáiði Samma griffon!

Photos 08/10/2013

Búið að vera nóg að gera í fæðingarorlofinu - skipta á kúkableyjum og þurrka ælur af öxlinni :) Er nú líka búin að halda smá fræðslugöngu fyrir fróðleiksfúsa hundaeigendur á Austurlandinu og allt virðist stefna á áhugavert, spennandi og "in-depth" nám fyrir hundaeigendur í borginni! Jáseisei, nóg að gera.
Hérna eru tvö af mínum uppáhalds. Ingibjörg Rán og ridgeback tíkin mín hún Sara sem skilur ekkert í þessu! Augljóst að Ingibjörg fékk hárlitinn frá systur sinni :)

Friðrik Dór - Glaðasti hundur í heimi 19/07/2013

Þetta syngja hundarnir mínir flesta daga :)

Friðrik Dór - Glaðasti hundur í heimi Friðrik Dór og Dr. Gunni og vinir hans syngja og spila lagið Glaðasti hundur í heimi. Lagið verður á plötunni Alheimurinn! sem kemur út í október 2013. Rán F...

Photos 18/07/2013

Þann 16.júní sl fæddist litli Mannhvolpurinn okkar sem nýlega fékk nafnið Ingibjörg Rán Reykjalín. Okkur mæðgum heilsast vel og hundarnir á heimilinu taka nýju viðbótinni með stökustu ró :)
Vegna þessa er ég lítið við tölvu og svara því ekki tölvupóstum í augnablikinu. Vona að þið eigið gott sumar öll sömul!

Icelandic « The original Gulahund Yellowdog Programs' NEW OFFICIAL WEBSITE | Gulahund Yellowdog... 03/06/2013

Guli hundurinn :) Sýnum tillitssemi - dreifum boðskapnum!
http://gulahund.se/icelandic/

Icelandic « The original Gulahund Yellowdog Programs' NEW OFFICIAL WEBSITE | Gulahund Yellowdog... Ef þú sérð hund með gulan borða eða slaufu á taumnum eða á hundinum, er þetta hundur sem þarf meira svigrúm. Vinsamlegast gakktu ekki til hundsins eða eiganda hans. Guli liturinn táknar að hundurinn getur ekki verið mjög nálægt öðrum dýrum og/eða fólki. En hversu nálægt er of nálægt? Eingöngu hundur...

13/05/2013

Eitt af því nauðsynlegasta sem kenna þarf hundum er nokkuð áreiðanlegt innkall. Hérna er Sara, Ridgeback tíkin mín, 9 mánaða gömul bæði að svara innkalli og að finna leið til að komast til mín (ves þegar beislið flækist í runnanum hehe). Auðvitað þurfti svo að bíða hennar ný"bakaður" kúkur þegar hún kom til mín - en hey, það voru bara "lífsverðlaun" að fá óvænt að þefa af því! ;) (alltaf að horfa á björtu hliðarnar) :)
Hvernig gengur innkallið hjá ykkur?

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reyðarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Leiran
Reyðarfjörður
730