UMF Valur Reyðarfirði

UMF Valur Reyðarfirði

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from UMF Valur Reyðarfirði, Sports Team, Reyðarfjörður.

Ungmennafélagið Valur samanstendur af stjórn félagsins, glímuráði, knattspyrnuráði, almennu ráði og skíða- og brettaráði.

Í stjórn félagsins eru:
Anna Steinunn Árnadóttir
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson
Hannes Rafn Hauksson

Photos from Körfuknattleiksfélag Fjarðabyggðar's post 02/05/2026

Duglegir körfuboltakrakkar í Fjarðabyggð 🏀👏

12/03/2026

Takið kvöldið frá! Vonumst til að sjá sem flesta.

Photos from Körfuknattleiksfélag Fjarðabyggðar's post 10/01/2026
07/01/2026

Ályktun frá stjórn Vals eftir fund með Fjarðabyggð vegna uppsetningu padelvallar.

Stjórn Vals hefur fundað með bæjarstjóra Fjarðabyggðar þar sem farið var yfir fyrirhugaða uppsetningu padelvallar í gamla íþróttahúsinu. Ljóst er að heppilegast hefði verið ef félagið hefði fengið að koma að borðinu fyrr í ferlinu til að stuðla að gegnsæju ferli varðandi nýtingu á gamla íþróttahúsinu. En eftir að stjórn Vals fékk að rýna bæði í mælingar á vellinum og heildarstærð og skipulag íþróttahússins liggur fyrir að ekki er unnt að koma glímuaðstöðu fyrir í gamla íþróttahúsinu samhliða padelvelli eins og lagt var upp með í umræðunni hjá Fjarðabyggð. Ef gæta á að öllum nauðsynlegum öryggiskröfum og er því ljóst að glíman mun færast yfir í nýja íþróttahúsið. Ljóst er að fyrirhugaðar breytingar munu þrengja að annarri íþróttastarfsemi í húsinu ef aðstaðan í nýja íþróttahúsinu helst óbreytt.

Stjórn Vals kom með þá ósk við bæjarstjóra að ef Fjarðabyggð hyggst gera samning um uppsetningu padelvallar í gamla íþróttahúsinu, þurfi að ráðast í úrbætur á ýmsum atriðum í nýja íþróttahúsinu. Lagt var áherslu á að úrbæturnar þurfi að eiga sér stað áður en uppsetning hefst, til að tryggja að öll önnur íþróttastarfsemi geti farið þar fram með viðunandi hætti. Listi yfir þær úrbætur sem þarf að laga hefur verið sendur bæjarráði og bæjarstjóra.

Að lokum vill stjórn Vals koma því á framfæri að hún vonar að samstarf Vals og Fjarðabyggðar verði skýrara, markvissara og betur skipulagt í framtíðinni, þannig að ákvarðanir um íþróttamannvirki og aðstöðu byggi á góðu samráði og sameiginlegum skilningi á þörfum íþróttastarfsins. Það er markmið Vals að bjóða upp á fjölbreytt íþróttastarf og erum við alltaf að leita leiða til þess að bæta við íþróttagreinum ásamt því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar.

04/01/2026

Æfingar í körfubolta og glímu byrja á þriðjudaginn 6. janúar - skráning á abler.

ATH dósasöfnun hjá körfuboltanum er á morgun, mæting við skólann kl. 17:00 - margar hendur vinna létt verk!

Ungmennafélagið Valur 02/01/2026

Skráning í körfubolta og glímu er hafin á abler 🏀🤼‍♀️

Ungmennafélagið Valur Finndu námskeið í vefverslun Ungmennafélagið Valur. Keyrt áfram af Abler

28/12/2025

Vegna frétta um fyrirhugaðrar uppsetningu á padelvelli í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði sem birtist á mbl í gær sendi stjórn Vals eftirfarandi erindi á bæjarráð í dag:

Til bæjarráðs,
Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði vill koma á framfæri áhyggjum sínum vegna þess að ekki hafi verið haft samráð við félagið í tengslum við uppsetningu á padelvelli í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Á fundi Fjölskyldunefndar þann 13. október sl. var bókað að samráð ætti að hafa við Val, ásamt skólastjórum í Grunnskóla Reyðarfjarðar og Grunnskóla Eskifjarðar. Ekkert var haft samband við stjórn félagsins og frétti félagið af áformum varðandi padelvöllinn í fjölmiðlum. Félagið telur slíkt samráð mikilvægt, enda hefur uppsetning á padelvelli í íþróttahúsinu áhrif á starfsemi þess og á iðkendur, ásamt því að þetta mun hafa neikvæð áhrif á íþróttakennslu fyrir grunnskólana sem nýta húsið.

Félagið er meðvitað um að grunnskólinn hefur komið á framfæri áhyggjum og athugasemdum varðandi uppsetninguna. Þrátt fyrir það virðist sem ekki hafi verið hlustað nægilega á þessi sjónarmið né tekið tillit til þeirra í ákvarðanatöku. Félagið telur mikilvægt að raddir skólans fái raunverulega umfjöllun, þar sem þær byggja á faglegri reynslu og varða hagsmuni nemenda og skólasamfélagsins í heild.

Uppsetning padelvallar myndi takmarka möguleika til annarrar íþróttaiðkunar barna, þar sem rýmið nýtist í dag fjölbreyttum æfingum. Ungmennafélagið er með skipulagðar íþróttaæfingar í húsinu þrisvar í viku, eða fimm æfingar samtals og er aðstaðan því mikilvæg fyrir starf félagsins. Þá er óraunhæft að gera ráð fyrir íþróttakennslu í höllinni yfir vetrartímann, þar sem þar myndast oft mikill kuldi sem hentar illa kennslu og hreyfingu barna, eins og kemur fram í minnisblaði frá fjölskyldunefnd að íþróttakennsla í höllinni eigi að leysa íþróttakennslu í íþróttahúsinu af hólmi. Einnig er búnaður í höllinni af skornum skammti og því ekki fjölbreytt kennsla sem myndi fara þar fram. Tvær skólastofnanir nýta íþróttahúsin nú þegar, og telur félagið því er ekki tímabært að ráðast í slíkar breytingar á meðan Eskifjarðarskóli er jafnframt háður aðstöðunni.

Íþróttahúsið er jafnframt kjöraðstaða fyrir glímuiðkun, sem myndi þurfa að víkja ef rýmið yrði sérhæft fyrir eina íþróttagrein. Almennt má segja að margt í núverandi starfsemi þyrfti að víkja fyrir sérhæfðri íþrótt, sem hefði í för með sér að íþróttaiðkun barna yrði sett til hliðar fyrir hagsmuni fárra.

Ungmennafélaginu Val þykir óskiljanlegt að ekki hafi reynst mögulegt að gera við loftræstikerfið í íþróttahúsinu þegar um er að ræða aðstöðu sem börn nýta daglega til íþróttaiðkunar. Félagið bendir á að á sama tíma virðist enginn vandi standa í vegi fyrir viðgerð á loftræstikerfinu þegar fyrirhugað er að setja upp padelvöll. Þetta vekur upp spurningar um forgangsröðun og hvort nægilegt tillit sé tekið til þarfa barna og ungmenna sem stunda íþróttir í húsinu. Ungmennafélagið Valur styður við fjölbreytta íþróttaiðkun en telur að sérhæfing á salnum sé ekki til þess að styðja við það. Óskum við því eftir að uppsetning á padelvelli í íþróttahúsinu á Reyðarfirði verði endurskoðuð og haft verður samráð við Ungmennafélagið varðandi nýtingu á húsinu.

Virðingarfyllst,
Stjórn Ungmennafélagsins Vals

28/12/2025
Photos from UMF Valur Reyðarfirði's post 27/12/2025

Takk fyrir frábæra mætingu á Aðalsteinsglímuna í dag! Virkilega gaman að sjá svona mikið líf í íþróttahúsinu okkar.

Eftir glímuna voru veittar viðurkenningar, 11-12 ára og fengu þau viðurkenningu fyrir eljusemi og 13-15 ára fengu hvatningarviðurkenningu. Veittar voru viðurkenningar í glímu, knattspyrnu, körfubolta og skíðum/bretti.

Í 11-12 ára fengu eftirfarandi viðurkenningu:
🤼‍♀️Glíma: Viktoría Von, Hafsteinn Árni og Sigurbjörn Leó
⚽️Knattspyrna: Aron Sigurjónsson
🏀Körfubolti: Aron Sigurjónsson og Angela Ósk
🏂Skíði/Bretti: Haukur Leó

13-15 ára fengu eftirfarandi viðurkenningu:
🤼‍♀️Glíma: Svava Valrós
⚽️Knattspyrna: Edda Maren og Steingrímur Þorri
🏀Körfubolti: Svava Valrós og Rúnar Sigurjónsson
🏂Skíði/Bretti: Amelía Dröfn, María Dögg og Bergur Kári

🏆Íþróttamaður Vals árið 2025 er hún Rakel Lilja Sigurðarsdóttir.
Rakel Lilja var Íslandsmeistari í samhliðasvigi
Andrésar andarmeistari í svigi
Vann tvö bikarmót af þrem

Hún býr svo sannarlega vel að þessum titli 🙂Til hamingju!

Við viljum óska þessum frábæru krökkum til hamingju með árangurinn á árinu og vonum að allir okkar krakkar haldi áfram að stunda íþróttir af kappi á komandi ári.

Að lokum veittum við viðurkenningu fyrir sjálfboðaliða ársins, en það er hefð sem okkur langar að festa í sessi héðan í frá, því án sjálfboðaliða myndi þetta aldrei ganga upp.

Sjálfboðaliði ársins 2025 er hún Þuríður Ragnheiður en hún sá til þess að félagið gekk sl. árið, auk þess sem hún vann 87 klst. sem sjálfboðaliði við Unglingalandsmót á Egilsstöðum í sumar. Valur var með 19 sjálfboðaliða á því móti en Þuríður skilaði fleiri tímum eins síns liðs en allir hinir 18 til samans. Vel gert og takk fyrir þitt framlag!

Við viljum hvetja alla til þess að mæta þann 3. janúar í Safnhúsið í Neskaupstað þar sem íþróttamanneskja Fjarðabyggðar verður valin. Ásamt því að Rúnar Sigurjónsson og Svava Valrós Ásmundsdóttir fá hvatningarverðlaun Fjarðabyggðar.

27/12/2025

Vals peysur til sölu upp í íþróttahúsi í dag.

Seinustu eintökin!

Stærðir sem eru til: 116, 128, 2x152, 3x í L og ein í XXL

26/12/2025

Vegna tækilegra örðuleika urðum við að gera nýja síðu.

Við viljum vekja athygli á að hin heimsfræga Aðalsteinsglíma verður í íþróttahúsinu á Reyðarfirði kl. 16 á laugardaginn.

Á dagskrá er glíma og síðan verðlaunaafhending fyrir árið 2025, ásamt því að við munum útnefna íþróttamann Vals árið 2025.

Vonumst til þess að sjá sem flesta og að allir séu búnir að hafa það sem allra best yfir hátíðirnar 🎄

Kv. Stjórn Vals

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reyðarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address

Reyðarfjörður