09/03/2026
🏆 Frísk í Fjölni – frábær árangur í Lífshlaupinu! 🏃♀️
Við viljum enn og aftur óska öllum þátttakendum í Frísk í Fjölni innilega til hamingju með frábæran árangur í Lífshlaupinu í ár. Lífshlaupið er árlegt hreyfiátak sem hvetur fólk til að hreyfa sig reglulega og efla heilsu og vellíðan. Verkefnið er skipulagt af Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og fer fram á hverju ári, yfirleitt í febrúar.
Frísk í Fjölni tók nú þátt í þriðja sinn og var þátttakan frábær. Það er virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að hreyfa sig og safna dögum og mínútum í virknibankann :)
Frísk í Fjölni náði frábærum árangri í sínum flokki:
🥈 2. sæti yfir fjölda daga
🥉 3. sæti yfir fjölda mínútna
Til að hvetja til þátttöku voru dregnir út þrír heppnir þátttakendur úr hópnum sem skráðu sig í Lífshlaupið. Þau sem komu upp úr pottinum í ár eru:
• Guðlaugur Þór Böðvarsson
• Hrönn Bjarnþórsdóttir
• Þuríður Jana Ágústsdóttir
Við óskum þeim innilega til hamingju með vinninginn! 🎉
Vinningarnir voru einstaklega glæsilegir og viljum við senda kærar þakkir til fyrirtækjanna sem studdu verkefnið:
Nathan, Mjólkursamsalan og Vogabær. Stuðningur þeirra hjálpar okkur að hvetja enn fleiri til að taka þátt í hreyfingu og samfélagi Frísk verkefnanna. 🙏
Hér fyrir neðan má sjá myndir af hópunum í Frísk í Fjölni með verðlaunagripina úr Lífshlaupinu, ásamt myndum af vinningunum sem voru í gjafapokunum.
Takk fyrir frábæra þátttöku – við hlökkum til næsta Lífshlaups! 💙
11/01/2026
🏃♀️ Hreyfing, heilsa og félagsskapur fyrir 60+.
Við eigum nokkur laus pláss í hópa 1 og 4 á vorönn 2026.
📩 Hafðu samband og fáðu að kíkja á prufuæfingu eða skráðu þig hér: https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
08/01/2026
Við eigum nokkur laus pláss í hópa 1 og 4. Velkomið að koma og prófa æfingu og sjá hvernig ykkur líkar 😀
Hópur 1 - 08:45
Hópur 2 - 09:30 - FULLT
Hópur 3 - 10:15 - FULLT
Hópur 4 - 11:00
Aukaæfing fer fram á föstudögum kl 10:00
Skráning fer fram í gegnum Abler hér :
https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða í gegnum netfangið [email protected] fyrir frekari upplýsingar 😀
Við hlökkum til að taka á móti ykkur 😀
Fjölnir | Almenningsíþróttir
Finndu námskeið í vefverslun Fjölnir. Keyrt áfram af Abler
02/01/2026
💙💛 Skráning er hafin í Frísk í Fjölni!
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahópi fyrir 60 ára og eldri í Grafarvogi?
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu Fjölni. Starfsemin byggir á hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri til að stunda fjölbreytta líkamsrækt í góðum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrk, þol, liðleika og jafnvægi, ásamt því að hlúa að andlegri og félagslegri heilsu. Unnið er út frá heildrænni nálgun með vellíðan þátttakenda að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2x í viku fyrir hádegi í Egilshöll, mánudaga og miðvikudaga, og fyrir þá sem vilja er boðið upp á aukaæfingu á föstudögum.
Hópur 1 - 08:45
Hópur 2 - 09:30 - Fá pláss eftir
Hópur 3 - 10:15 - FULLT
Hópur 4 - 11:00
Aukaæfing fer fram á föstudögum kl 10:00
Skráning fer fram í gegnum Abler hér :
https://www.abler.io/shop/fjolnir?search=fr%C3%ADsk+%C3%AD+fj%C3%B6lni+
Æfingar hefjast aftur á ný eftir frí á mánudaginn þann 5.janúar 2026.
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða í gegnum netfangið [email protected] fyrir frekari upplýsingar 😀
Við hlökkum til að sjá ykkur og hefja nýtt æfingaár af krafti 💪😀
Abler | Shop
11/11/2025
🌿 Frábær mæting og ánægja með fræðsluna um næringu🌿
Við viljum þakka kærlega öllum þeim sem mættu á fræðslufyrirlesturinn um næringu sem haldinn var í síðustu viku í Félags- og tómstundamiðstöðinni Borgum.
Fyrirlesturinn var í umsjón Agnesar Þóru Árnadóttur, næringar- og íþróttafræðings, sem fór yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan.
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hve margir mættu og tóku virkan þátt í spurningum og umræðum — og var mikil ánægja með þau hagnýtu ráð sem Agnes deildi með hópnum.
Við þökkum Agnesi Þóru kærlega fyrir fræðandi og hvetjandi fyrirlestur – og öllum þátttakendum fyrir góða stemningu og áhuga.
📸 Sjá mynd frá viðburðinum hér að neðan.
27/10/2025
🌿 Fræðslufyrirlestur um næringu 🌿
Við bjóðum íbúa í Grafarvogi, 60 ára og eldri, hjartanlega velkomna á fræðslufyrirlestur um næringu með Agnesi Þóru Árnadóttur, næringar- og íþróttafræðingi
(BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
📍Félags - og tómstundamiðstöð Borgum
(Spöngin 43, 112 Reykjavík)
📆 Þriðjudaginn 4.nóvember
🕐 Kl. 13:30
Á fyrirlestrinum verður farið yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan. Þátttakendur fá hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.
Markmið okkar er að stuðla að auknu heilsulæsi meðal þátttakenda og íbúa Grafarvogs — því þekking á eigin heilsu og næringu er lykillinn að betri lífsgæðum.
Þessi fræðslufyrirlestur er samstarfsverkefni Frísk í Fjölni, Félags eldri borgara í Grafarvogi, Korpúlfa og Austurmiðstöð.
Við hvetjum alla til að mæta, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í fræðandi og skemmtilegri samveru! 😀
25/07/2025
Skráning er hafin fyrir haustönn 2025.
Villt þú vera hluti af skemmtilegum hóp og æfa undir handleiðslu fagmenntaðs þjálfara? Þá gæti Frísk í Fjölni verið eitthvað fyrir þig.
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri. Starfsemi Frísk í Fjölni er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2-3x í viku, fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum en fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku þá eru einnig æfingar á föstudögum.
Haustönn stendur yfir frá 18. ágúst- 19. des 2025.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
Ef þig vantar aðstoð við skráningu ekki hika við að hafa samband hér eða í gegnum netfangið [email protected]
28/12/2024
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingarhóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri á nýju ári?
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu Fjölnir.
Starfsemi Frísk í Fjölni er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2-3x í viku, fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum en fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku þá eru einnig æfingar á föstudögum.
Vorönn stendur yfir frá 6.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir forskráningu. Hægt er að skrá sig hér https://forms.gle/i3ymKY7ThmMneND28
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
27/12/2024
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu Fjölnir.
Starfsemi Frísk í Fjölni er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Um er að ræða markvissa og skipulagða þjálfun þar sem sem þjálfarar útbúa 6-8 vikna æfingaráætlanir sem þeir aðlaga eftir þörfum og líkamlegri getu hvers og eins þátttakanda. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2-3x í viku, fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum en fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku þá eru einnig æfingar á föstudögum kl 10:00.
Vorönn stendur yfir frá 6.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir forskráningu. Hægt er að skrá sig hér https://forms.gle/i3ymKY7ThmMneND28
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀
Forskráning - Frísk í Fjölni vorið 2025
Vorönn 2025 stendur yfir frá 6.janúar - 6.júní. Æfingar fara fram á mánudögum og miðvikudögum kl 08:45, 09:30, 10:15, eða 11:00. Þeir sem hafa áhuga á aukaæfingu, þá fer hún fram á föstudögum klukkan 10:00. Mánuðurinn í þjónustunni kostar 10.000 kr fyrir æfingar 2x í vik...
12/08/2024
Minnum á kynningarfundinn í dag klukkan 13:00 í Egilshöll (Kaffiaðstöðu, Fjölnis).
Ef þið viljið tryggja ykkur pláss í hópum nú þegar þá er hægt að skrá sig hér https://docs.google.com/forms/d/1J5abt-vQVX6enJ8IpKzvgMkb_n5fYECj-UyOAgvBdaU/edit =ACYDBNgGd-PskZwppX4p-2CdJLxukwKGUXRfjTwHTn6bxLG0bKXqXCkwG-wJLM8PztK-Q5c
Hlökkum til að sjá ykkur :)
Skráning Frísk í Fjölni haustið 2024
Haustönn 2024 stendur yfir frá 19.ágúst - 20.desember. Æfingar fara fram á mánudögum og miðvikudögum. Þeir sem hafa áhuga á aukaæfingu, þá fer hún fram á föstudögum. Mánuðurinn í þjónustunni kostar 10.000 kr fyrir æfingar 2x í viku en 13.000 kr fyrir æfingar 3x viku.
31/07/2024
Frísk í Fjölni verður með kynningarfund mánudaginn 12.ágúst klukkan 13:00 í Egilshöll. Hvetjum þá sem hafa áhuga að kíkja til okkar og kynna sér starfsemina.
Haustönn hefst mánudaginn 19.ágúst :)
Búið er að opna fyrir skráningar og hvetjum við alla sem vilja tryggja sér pláss að skrá sig sem fyrst. Einnig verður hægt að skrá sig á kynningarfundinum. Skráning fer fram hér https://xpsclubs.is/login?returnUrl=%2Ffjolnir%2Fregistration
Hlökkum til að sjá ykkur
Ungmennafélagið Fjölnir – fjolnir.is – #FélagiðOkkar
Íslenskur stórmeistari til liðs við Íslandsmeistara FjölnisSkák,Félagið okkar30/07/2024 Grafarvogsbúinn og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson hefur gengið til liðs við Skákdeild Fjölnis og mun tefla með… Sigurvegarar í 6. flokki kvenna á Símamótinu 2024Knattspyrna,Félagið okk...
29/05/2024
Frísk í Fjölni ✨💪
Frísk í Fjölni er hreyfingarúrræði fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og er þjónustan byggð í kringum hópþjálfun undir handleiðslu menntaðra þjálfara. Þjálfarar og stjórnendur verkefnisins eru öll menntaðir íþróttafræðingar frá Háskólanum í Reykjavík. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol, liðleika- og jafnvægisæfingar og er þjálfun aðlöguð að hverju og einum iðkanda. Markmið Frísk í Fjölni er að bæta líkamlega, andlega og félagslega heilsu þátttakenda og gefa eldra fólki tækifæri á að stunda hreyfingu í Fjölni. Einnig að auka þekkingu þátttakenda á mikilvægi hreyfingar og stuðla þannig að auknu heilsulæsi, farsælli öldrun og fjölgun heilbrigðra æviára.
Í vetur fóru fram þrennar líkamlegar mælingar á hópnum eftir stöðluðu prófi kallað The Senior Fitness Test og erum við stolt að segja frá því að niðurstöður þeirra mælinga eru alveg hreint frábærar. Þol þátttakenda jókst að meðaltali um 15% á tímabilinu, styrkur í efri líkama jókst að meðaltali um 26% og styrkur í neðri líkama jókst að meðaltali um 24%. Skipulögð styrktarþjálfun sem þessi vinnur gegn vöðvarýrnun og beinþynningu og stuðlar því að bættri heilsu þátttakenda.
Í viðhorfskönnun sem send var út á dögunum kom í ljós að 95% þátttakenda mátu líkamlegt ástand sitt betra og 63% mátu andlega heilsu sína betri eftir að þeir höfðu þátttöku í Frísk í Fjölni. 100% þátttakenda sögðust hafa kynnst nýju fólki og sögðust vilja halda áfram á næstu önn. Má því segja að verkefnið er að mæta þeim markmiðum sem sett voru í upphafi. Mælingar sýna fram á bætta líkamlega heilsu og í svörum þátttakenda í viðhorfskönnun hafa allir kynnst nýju fólki og flestir meta andlega heilsu sína betri.
Það er ekki hægt að draga úr því hversu stolt við erum af öllum þátttakendum og hversu ánægjulegt það er að sjá bætingar þeirra. Ekki síður er gaman að sjá hversu ánægðir þátttakendur virðast vera með starfið.
💛💙