Píluvinafélag KR

Píluvinafélag KR

Share

Píluvinafélag K.R. Frostaskjóli 2
stofnað 1987

20/11/2025

Góðan daginn kæru pílarar

Eins og einhverjir muna þá átti að vera pílumót föstudaginn 28. nóvember en vegna ofbókunar á KR heimilinu þá verðum við því miður að hætta við mótið. Og sökum mikilla anna í KR heimilinu fram að jólum þá sjáum við því miður ekki fram á það að halda mót fyrir áramót.

Okkur þykir þetta mjög leiðinlegt en munum mæta tvíefldir til leiks eftir áramót og bæta við allavegana einu móti. Þannig reikna má með einu móti í mánuði fram að sumri!

Þannig nú geta menn sett þessa fjóra föstudaga á næsta ári í dagatalið sitt.
Við byrjum 2026 af krafti með móti föstudaginn 9. Janúar.
Fylgjum því svo eftir með mótum fyrsta föstudaginn í febrúar og mars. Það er föstudaginn 6. Febrúar og föstudaginn 6. Mars.

Síðan slúttum við pílutímabilinu með styrktarkvöldi fyrir fótboltann í KR föstudaginn 17. April. * Þó viljum við taka það fram að sú dagsetning er með fyrirvara um leikjafyrirkomulag í Bestu deildinni.

Kær KR kveðja
Stjórn Píluvinafélags KR

24/12/2024

Kæru KR-ingar,

Vegna mikilla anna í félagsheimilinu náðist því miður ekki að halda nóvember mót. Við vildum ekki að þetta myndi gerast aftur þannig við festum tíma fyrir fjögur mót eftir áramót þannig það geta allir tekið dagana frá.

Nú er bara er bara að fylgjast með þeim bestu etja kappi í Ally Pally og kasta þess á milli og koma tvíelfdur til leiks á nýju ári.

Píludeildin óskar þér og þínum gleðilegra jóla og sjáumst á nýju ári.

23/03/2023

Daginn, á morgun fer fram Tékkland meistarinn í félagsheimili KR.

18:30 Húsið opnar
19:00 Dregið í X-inu
19:45 Úrslit í X-inu
19:55 Dregið í tvímenning 301
20:00 301 Tvímenningur hefst

Mótsgjald er 2500 kr

Sigurvegarar fá bikar og gjafabréf frá Tékkland fyrir skoðun á 1 bíl.

Hlökkum til að sjá ykkur

26/01/2023

Páll Sævar Guðjónsson
18:33 (fyrir 24 mínútum)
til Páll, falið afrit: mín

Sælir kæru pílukastarar og gleðilegt nýtt ár.

Á morgun 27. janúar verður fyrsta mót ársins - Smass meistarinn 2023

Húsið opnar klukkan 18:30

Byrjum að spila X-ið um 19:15

Eftir það förum verður dregið í tvímenning 301 single inn double out.

Vegleg verðlaun í boði og gjafabréf á Smass Ægissíðu.

Mótsgjald er 2500 kr og posi á staðnum. Drykkir seldir á góðu verði.

Það væri gaman að fá svar frá ykkur ef þið sjáið ykkur fært að mæta.

Game on

kveðja

Stjórn píluvina KR

23/01/2023

Næsta pílumót verður föstudaginn næsta 27. janúar. Húsið opnar klukkan 18:30. Byrjum að spila X-ið 19:15 og drögum svo í tvímenning í 301 í framhaldinu. Mótsgjald er 2500 kr. Verið öll hjartanlega velkomin.

25/11/2022

Daginn, er einhver hér sem getur verið kominn út í KR 17:30 til að aðstoða við uppsetningu fyrir mótið í kvöld?

24/11/2022

Minni ykkur á Alvogen mótið á morgun. Verður skemmtilegt - Game on!

20/11/2022

Rétt í þessu var Michael Smith - The Bullyboy að tryggja sér stóran titil í pílunni. Þá hendum við í pílumót. Næstkomandi föstudag 25. nóvember verður Alvogen meistarinn. Húsið opnar klukkan 18:30. Byrjum X-ið klukkan 19:00 að því loknu spilum við tvímenning í 301. Mótsgjald er 2500 kr. Hlökkum til að sjá ykkur - Game on!

21/10/2022

Minni á píluna í kvöld. Húsið opnar klukkan 18:30 og byrjum að spila 19:00. Minningarmót Kristins Jónssonar verður fært á aðra dagsetningu. Í kvöld er það Nesskip sem verður styrktaraðili mótsins. Píluvinafélag KR vill þakka Nesskip kærlega fyrir stuðningin í gegnum árin og hafa tekið svona vel í að taka mótið í kvöld með jafn stuttum fyrirvara. Sjáumst í kvöld. Munið að taka með ykkur pílurnar.

19/10/2022

Jæja þá er komið að fyrsta pílumótinu hjá Píluvinafélagi KR í 2 ár. Mótið fer fram nk. föstudag 21. okt. Þetta er í minningarmót um Kristinn Jónsson fyrrverandi formann KR er lést á dögunum.

Dagskráin er eftirfarandi:

Húsið opnar klukkan 18:30.
Byrjum á X-inu 19:00
Drögum svo í tvímenning 301 - beint inn tvöfaldur út. Ef ekki verið búiði að taka út eftir 51 pílu verður búllað um sigurinn í hverjum leik fyrir sig.
Mótsgjald er 2500 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur.

23/08/2022

Sælt veri fólkið, jæja nú er kominn tími á að blása lífi í píluna hjá okkur í KR. Stjórnin mun koma saman fljótlega og við munum kynna dagsránna hér á síðunni ekki síðar en í næstu viku. Endilega fylgist með okkur.

Við hvetjum ykkur til að taka fram pílurnar og byrja að æfa til að vera klár í veturinn.

Photos from Píluvinafélag KR's post 13/12/2020

Hér eru nokkrar myndir frá upphafsárum Píluvinafélags KR. Þökkum Gumma Stóra fyrir að skanna þetta inn.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Frostaskjól 2
Reykjavík
107