Björn Þór Einkaþjálfari

Björn Þór Einkaþjálfari

Share

Björn Þór Sigurbjörnsson
Einkaþjálfari / Nemi í Osteopata
World Class Laugar
sími 7730111
[email protected]

28/07/2026

Anything is possible. Believe in yourself. Stay patient and trust the process 💫🙏

14/04/2026

You’re only as flexible as you are strong in that range.

Ef þú kannski teygir á hverjum degi en ert samt alltaf stífur, þá er vandamálið líklega ekki að vöðvinn sé of stuttur heldur að líkaminn upplifir ákveðna stöðu sem óörugga. Ég tala um þetta reglulega: Líkaminn leyfir ekki hreyfingu eða stöðu sem hann hefur ekki styrk til að stjórna.
Hvernig virkar þetta og hvernig upplifir líkaminn veikleika í stöðu?
Viðtakar í vöðvum, sinum og liðum senda stöðugt upplýsingar til heilans um spennu, stöðu og álag, ef heilinn les að þú sért veik/ur eða óstöðugur í ákveðnu hreyfisviði eða í tiltekinni stöðu sem þú ert iðulega í þá bregst hann við með því að herða og draga saman vöðva. Þú ert ekki stíf/ur af því þú þarft að teygja meira, heldur vegna þess að líkaminn treystir ekki stöðunni.

Við getum teygt hamstrings, mjaðmaflexora og/eða bak og fundið strax meiri liðleika en svo kemur stífleikinn aftur.....
Af hverju gerist það? Því þú gafst líkamanum ekki ástæðu til að treysta þessari nýju stöðu. Enginn styrkur, engin stjórn, ekkert álag sem heilinn skipar: Ég ræð við þetta núna
Teygjur og bandveflosun breyta aðallega skynjun, hreyfanleiki og liðleiki eykst og finnur minna fyrir spennu í tiltekinn tíma. Þetta eitt og sér byggir ekki upp getu eða vinda ofan af veikleikum sem hafa áhrif á hreyfistjórn.

Sannleikurinn er í mínum huga einfaldur: ef þú þarft að teygja sama svæði á hverjum degi, þá er það líklega ekki stíft vegna skorts á teygjum, það er óöruggt vegna skertar samdráttarhæfni. Og leiðin út úr því er ekki meiri teygja (þó þær geti augljóslega verið til staðar), heldur meiri styrkur og betri stjórn í þeirri stöðu og hreyfingu

28/03/2026

“Age is mind over matter. If you don’t mind, it doesn’t matter.” – Mark Twain

❤️

24/02/2026

Weightlifting is akin to art, particularly bodybuilding, where the body is the canvas, weights are the brush, and nutrition is the paint 🙏

Vöðva og hreyfigreining 21/02/2026

https://likami.is/vodva-og-hreyfigreining/

Vöðva og hreyfigreining EMG rannsókn á hreyfingu er mæling á rafvirkni vöðva á meðan þú framkvæmir ákveðnar hreyfingar, eins og að ganga, hlaupa, lyfta, beygja eða framkvæma æfingar. Hún sýnir hvernig vöðvar virkjast. EMG stendur fyrir electromyography og byggir á því að rafboð sem fara frá tauga...

13/02/2026

Þegar við spjölluðum fyrst og ég sagði honum frá bakvandanum sem hafði fylgt mér lengi, hlustaði hann af athygli. Að samtalinu loknu brosti hann og sagði einfaldlega: Við lögum þetta. Það var enginn efi í röddinni hans, ekkert kannski eða vonandi. Þótt ég þekkti hann varla þá trúði ég honum.
Og það stóðst
Æfingarnar voru markvissar og vel upp settar, hver einasta með skýran tilgang. Hann útskýrði af hverju ég var að gera það sem ég var að gera, sem gaf mér þannig bæði skilning og öryggi.
Björn er hreinn og beinn, segir það sem þarf að segja, ekki endilega það sem maður vill heyra. En hann gerir það faglega, með hlýju og rólegri nærveru sem smitar út frá sér.

Hrafnkatla

01/02/2026

Æfingar með stöngum og frilóðum eru frábærar æfingar margar hverjar, alveg eins og æfingar í tækjum og trissum eru líka margar hverjar líka frábærar. Hvað hentar hverjum og einum hverju sinni fer eftir samhenginu. Æfingar í tækjum eru því alls ekkert verri ef auka á styrk.

Styrkur eykst ekki þó æfingin líti ótrúlega flókin út. Styrkurinn eykst í vöðvum ef heilinn treystir hreyfingunni, heilinn treystir ekki bara egói. Hann treystir stjórn.

Vöðvinn getur aðeins framleitt þann kraft sem taugakerfið leyfir, og þegar heilinn skynjar óstöðugleika, ófyrirsjáanlega liðstöðu eða hættu á meiðslum, þá kveikir hann á bremsu. Ekki af því þú ert veik/ur, heldur af því öryggi kemur alltaf á undan krafti, þetta er háþróað varnarkerfi líkamans. Í slíkum aðstæðum fer stór hluti taugavirkni í að verja liði, halda jafnvægi og draga úr áhættu, en ekki í að framleiða hámarks styrk.
Þess vegna breytist myndin oft í tækjum. Þar er hreyfingin stöðugri, liðstaðan fyrirsjáanlegi og óþarfa breytur stundum teknar út. Þá oft minnkar taugahömlun, neural drive eykst sem virkjar fleiri hreyfieiningar og boðtíðnin hækkar. Útkoman = styrkur og kraftur eykst.

Þetta er ekki auðveldari leið þó þú sért að vinna í tæki heldur lífeðlisfræðileg svörun við öruggari aðstæðum.
Fyrir marga er þetta lykillinn að auknum styrk.

Til að mynda Byrjendur fá tækifæri til að læra hreyfingar og byggja sjálfstraust án þess að taugakerfið sé stöðugt á bremsunni. Fólk með meiðslasögu fær leið til að endurheimta traust á álagi án þess að kveikja á gömlum varnarviðbrögðum. Þeir sem eru undir miklu álagi eða með þreytu í taugakerfi fá skýrari og einfaldari skilaboð til líkamans, sem oft skilar betri gæðum í æfingunni. Og allir sem vilja þjálfa vöðva af alvöru, fá betri stjórn á álagi og raunverulegra virkni.

Í samhengi þarf ekki að velja alltaf hvað lýtur best út frá trendi, heldur hvaða samsetning virkar vel. Oft í bland, en að gera lítið úr æfingum í tækjum er einfaldlega rökleysa 🙏

02/01/2026

Janúar er mánuður nýrra áforma. Flestir eru að taka til í mataræðinu, endurmeta venjur og ætla að gera þetta vel. Á sama tíma eru samfélagsmiðlar og internetið uppspretta endalausra upplýsinga um hvað sé rétt, rangt, bannað eða nauðsynlegt og þar fram eftir götunum. Mér finnst svo að stundum verður þetta upplýsingaflæði svo mikið að það letur frekar en hjálpar fólki.

Svokölluð sultukrukkukenning skýrir þetta vel.
Í rannsókn sem gerð var, fengu þátttakendur annaðhvort að velja úr 6 eða 24 sultukrukkum. Þegar valið var minna tóku fleiri ákvörðun og keyptu sultu. Þegar valið var of mikið skoðaði fólk meira og ákvað síður. Þetta er skilgreingin á ofmagni upplýsinga og ákvarðanaþreytu.

Ef við yfirfærum á heilsu, æfingar og mataræði. Þá hafa einstaklingar úr að velja ótalmargt frá því sem þeir sjá kostað eða heyra í hlaðvarpi t.a.m. ótal föstur, bætiefni sem "þú þarft að vera á" og æfingakerfi sem stangast hvert á við annað! 😅 Útkoman verður oft "ég byrja á mánudaginn bara"

Kannast einhver við þetta?

Vandinn er alls ekki viljaleysi, vandinn er að heilinn fær of margar upplýsingar í einu.

Lausnin er færri krukkur. Heilsan byggist ekki á flóknasta planinu eða nýjustu trendunum, heldur á einföldum ákvörðunum sem hægt er að endurtaka nógu oft og lengi.

Consistency slær perfection. Alltaf.

Gangi þér vel 💪

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility?

Telephone

Opening Hours

Monday 06:00 - 17:00
Tuesday 06:00 - 17:00
Wednesday 06:00 - 17:00
Thursday 06:00 - 17:00
Friday 06:00 - 17:00
Saturday 06:00 - 17:00