14/11/2018
Við hjá meistara flokki kvenna erum með flotta margnota kaffibolla til sölu á 5000 kr með þeim fylgir frítt kaffi á öllum heimaleikjum hjá mfl kk og mfl kvk í vetur :) endilega látið okkur vita ef þið viljið fá eitt stikki af þessum eðal bollum :D Við verðum með þá til sölu á leiknum hjá mfl kk í kvöld þar sem þeir taka á móti Val 💪
12/04/2018
Ólafur þjálfari var í viðtali við Karfan.is
"Þannig að þú sérð bjart framundan en gerir þér raunhæfar væntingar?
"Já, við stefnum á úrslitakeppnina. Við lentum í 5. sæti núna, tveimur leikjum frá því að komast í úrslitakeppnina svo við stefnum augljóslega á að komast í hana næst. Svo árið eftir það þá förum við upp, er það ekki þannig bara?"
http://karfan.is/read/2018-04-12/olafur-aetlum-okkur-stora-hluti/
Ólafur: Ætlum okkur stóra hluti
Fyrir leik ÍR í undanúrslitum Dominos deild karla í gær gekk nýstofnaður meistaraflokkur kvenna félagsins frá áframhaldandi ráðningu á þjálfara sínum, Ólafi Jónasi Sigurðssyni. Liðið á sínu fyrsta tímabili nú síðast og var ekki langt frá því að komast inn í úrs...
12/04/2018
Ólafur Jónas þjálfari og 15 leikmenn endurnýja samning
Fyrir leik ÍR og Tindastóls í undanúrslitum Dominos deild karla í gær gekk nýstofnaður meistaraflokkur kvenna liðsins frá áframhaldandi ráðningu á þjálfara sínum, Ólafi Jónasi Sigurðssyni. Þá var einnig gengið frá nýjum samningum við leikmenn, en 15 skrifuðu undir í.....
29/03/2018
Tókum smá skírdags-pickup í morgun 💪🏼💪🏼
05/03/2018
Munu Hrabba og Hanna hlaða í alley-up?
Mun Nína dominera teiginn?
Setur Birna spjaldið on-í þrist?
Mun Bibba fá fyrstu óíþróttamannslegu villu ferilsins?
Hversu mörg sóknarfráköst sækir Jóhanna?
Setur Sigga langan tvist af hliðarlínunni?
Mun Sibba fara coast to coast?
Mæta Ghettoholligans með læti?
Mun Svenni Classen og aðrir í mfl.kk ÍR vera í stúkunni?
Þú færð svör við öllum þessum spurningum í Hertz-hellinum þriðjudaginn 6. mars kl.19.15.
Ekki missa af seinasta heimaleik ÍR-stúlkna í deildinni í vetur þegar þær taka á móti Hamri á morgun í Hertz-hellinum.
IR Hamar 6 mars
Ekki missa af seinasta heimaleik ÍR stúlkna í deildinni í vetur ÍR - Hamar í Hertz hellingum 6. mars
03/03/2018
Sibban okkar á afmæli í dag og fékk hún þessa fínu köku sem Jóhanna bakaði eftir leikinn okkar á móti KR. Til hamingju með daginn þinn elsku hnoðrinn okkar, þú ert frábær 💙
20/01/2018
Þessir meistarar mættu á leikinn og hjálpuðu okkur að ná þessum sigri 💪🏻🏀
30/12/2017
Enduðum árið á hörku æfingaleik við Keflavík 💪🏼 Skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki verið okkur í hag 😃
23/12/2017
Við tókum hörku jólaæfingu í morgun. Óli henti allskonar jólastuði inn í prógrammið og við hlustuðum að sjálfsögðu á jólalög allan tímann 🎅 Prógrammið er stíft yfir hátíðarnar svo við komum tilbúnar í slaginn eftir áramót 💪🏼 Gleðileg jól!