19/07/2025
Góðan daginn kæru foreldrar í Þrótti
Nú er ReyCup rétt handan við hornið og við leitumst eftir ykkar höndum til að starfa við mótið í hinum ýmsu störfum. Greitt er fyrir vinnuna í formi inneignar (inneignarkóði) sem hægt verður að nota upp í æfingagjöld næsta haust eða í upphafi næsta árs hjá félaginu. Ekkert þak er á því hversu hárri fjárhæð þú getur safnað og einfalt er að skrá sig á vaktirnar í gegnum Abler. Abler heldur utan um allar þínar skráningar og í lok ágúst mánaðar fá allir sendan til sín inneignarkóða í tölvupósti.
Við hvetjum alla foreldra frá 8. flokki og upp í 2. flokk bæði í fótbolta og blaki til þess að taka þátt í þessari vinnu með okkur. Framlag þitt skiptir verulegu máli, sameinum krafta okkar til að allir gestir Rey Cup fái jákvæða og skemmtilega upplifun af heimsókn sinni til okkar í Laugardalinn.
Öll sem aðstoða við mótið er svo boðið til veislu að móti loknu í Þróttaraheimilið mánudaginn 28. júlí kl. 19:00.
Hlökkum til að sjá ykkur & Gleðilegt ReyCup
Fyrir hönd stjórnar.
Jóhann Helgi Sveinsson,
Framkvæmdastjóri ReyCup,
7712727
Upplýsingar um vinnu á ReyCup:
Morgunmatsvaktir: (06:00-10:00)
Hella upp á kaffi, hita vatn, blanda djús í könnur, skera grænmeti, setja fram aðföng. Þrífa áhöld, öll borð o.s.frv. Koma því til skila við umsjónarmann skóla ef eitthvað vantar.
Greiðsla fyrir vakt: 6.000 kr.
Umsjón: Laugalækjarskóli: Rannveig, 8927767 / Eyrún Helga, 6947499
Langholtsskóli: Guðbjörg, 8200502 / Guðrún, 6949418
Breiðagerðisskóli: Ragna Björk, 8645583 / Birna Hafstein, 6993201
Mannvirkjanefnd: (08:00-12:00 / 12:00-16:00 /16:00-21:00)
"Ekki vakt heldur lífsstíll" Alls kyns störf sem koma upp, fara með vörur í sjoppur, sækja mat, losa rusl og tilbúin til að leysa úr þeim vandamálum sem upp koma.
Greiðsla fyrir vakt: 5.-6.000kr
Umsjón: Ellert, 8989069
Upplýsingaborð / umsjón í Þróttaraheimili. (08:00-12:00 / 12:00-16:00 /16:00-19:30)
Upplýsingagjöf og ýmis tilfallandi verkefni í Þróttaraheimili.
Greiðsla fyrir vakt: 4.000 kr.
Umsjón: Erna Kristín, 6902022
Sjúkraherbergi í Þrótti (08:00-12:00 / 12:00-16:00 /16:00-19:30)
Aðeins fyrir lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og/eða sjúkraþjálfara.
Greiðsla fyrir vakt: 5.000 kr.
Umsjón: Erna Kristín, 6902022 / Hertha, 6910908
Vaktir í skólum (10:00-14:00 / 14:00-18:00 / 18:00-22:00)
Fara þarf um allar stofur, hreinsa rusl og setja nýjan poka. Rusl fer í gám fyrir utan skóla.
Athugaðu að allar stofur séu læstar, gestir þurfa að biðja um að opna fyrir sig. Notið aðeins tilætluð svæði (morgunverðarsal) fyrir mat og drykk, ekki í skólastofum. Skoðaðu snyrtingar, haltu hreinu, fylltu á sápu og handþurrkur. Gæta þarf að því að gestir séu einungis á þeim svæðum sem leyfilegt er. Tryggja þarf aðeins þeir sem eiga erindi til fari inn í skólann.
Greiðsla fyrir vakt: 6.000 kr.
Umsjón: Alda, 8955743 / Aldís, 8667666
Matargæsla á Hilton (11:00-14:00 / 17:00-20:00)
Tilkynna komu sína til Klöru á Hilton. Gæsla í matsal og við hurð, athuga armbönd.
Greiðsla fyrir vakt: 3.000 kr.
Umsjón: Hertha, 6910908
Sjoppuvaktir (08:00-12:00 / 12:00-16:00 /16:00-19:30)
Það þarf fyrst að mæta í Þróttaraheimilið til að ná í Sjoppuboxið: lykla, posa, skiptimynt, en auk þess samlokur, kleinur og kleinuhringi, ávexti ofl.
Greiðsla fyrir vakt: 4.000 kr.
Umsjón: Brynhildur, 8255075
ReyCup torgið (10:30-14:30)
Aðstoða við torgið og verslun í tjaldi fyrir utan Þrótt. Sala á varningi og önnur tilfallandi verkefni.
Greiðsla fyrir vakt 4.000 kr
Umsjón: Jóhann, 7712727 / Tobba, 8958225
Dómgæsla (08.00-11.00 / 11.00-14.00 / 14.00-17.00 / 17.00-20.00)
Allur búnaður er á staðnum, treyjur, stuttbuxur, flautur og fl. Þetta er mjög skemmtilegur félagsskapur, matur og drykkir í boði á meðan mótinu stendur.
Greiðsla fyrir hverja þrjá dæmda leiki 5.000 kr.
Umsjón: Hallur, 6968059
Viðburðavaktir:
Opnunarhátíð: 17:45-20:15
Gæsla við stúku og innganga inn á völlinn, passa að enginn fari inn á grasið.
Greiðsla fyrir vakt: 3.500 kr
Sundlaugarpartý Laugardalslaug: 19:30-22:00
Gæsla á bakka og við rennibraut, úthlutun á ís fyrir utan Laugardalslaug.
Greiðsla fyrir vakt: 3.500 kr
ReyCup ballið á Hilton: 20:00-23:00
Gæsla á balli, vakta innganga og útganga, vakta sviðið og fylgjast með salernum og svæði í kringum Hilton hótelið.
Greiðsla fyrir vakt: 4.500 kr
Grillveisla í Fjölskyldu og húsdýragarðinum: 18:30-21:30
Gæsla í garðinum, hjálpa til við frágang.
Greiðsla fyrir vakt: 3.500 kr
Nú er bara að skrá sig á vaktir á ReyCup inni á Abler.