12/06/2026
Sæl og blessuð ágætu FHS félagar og vinir hér á Costa Blanca ströndinni !
Hittingur íslendinga var haldinn á Sundlaugabarnum í Las Mimosas á föstudeginum 12.júní 2026.
Veður í dag var gott sól og heitt, 27° hiti og þægileg gola eða vindur á köflum.
Mæting í dag var eftir vonum en ljóst er að íslendingum hér á Spáni fækkar í hverri viku núna.
Stjórnarliðar FHS voru á staðnum í dag og veittu upplýsingar og ráð fyrir þá sem þurftu.
●
Þökkum þeim sem komu á hittinginn í dag og minnum á að hittingur verður áfram á Sundlaugabarnum á föstudögum en þó ekki með aðkomu FHS sem farnir eru í sumarfrí.
Munið eftir minigolfinu og bókaskápanir verða opnir í allt sumar.
Sjáumst fyrsta föstudag september mánaðar í vetrastarfi FHS.
●
Að venju látum fylgja nokkrar myndir sem teknar voru í dag.
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis -og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni - fhs.is
11/06/2026
Góðan daginn kæru FHS félagar og aðrir íslendingar hér á Costa Blanca ströndinni...
HITTINGUR - HITTINGUR
Á FÖSTUDAGINN
Minnum á Hittinginn okkar íslendinga hér á Costa Blanca sem verður núna, og framvegis á árinu, á Sundlaugabarnum í La Mimosas föstudaginn 12.júní 2026, -
Frá kl. 14:00 - 16:00.
Gott er að vera tímanlega til að fá góð sæti.
Fulltrúar stjórnar FHS verða á staðnum eins og vanalega.
Bókaskáparnir okkar eru troðfullir af íslensku lesmáli fyrir alla sem vilja á opnunartíma Sundlaugabarsins.
Mini-golfið er að sjálfsögðu opið.
Sundlaugabarinn býður upp á góðan mat og eins og venjulega, - fínn matseðill á góðu verði.
ATH....Þetta er síðasti hittingurinn með aðkomu FHS fyrir sumarfrí félagsins fram á haust, en að sjálfsögðu er Sundlaugabarinn opinn fyrir íslendingahittinga á föstudögum eins og ávallt.
Sjáumst á Sundlaugabarnum !
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis-og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni
05/06/2026
Sæl og blessuð ágætu FHS félagar og vinir hér á Costa Blanca ströndinni !
Hittingur íslendinga var haldinn á Sundlaugabarnum í Las Mimosas á föstudeginum 5.júní 2026.
Veður í dag var gott sól og heitt, 25° hiti en talsverður vindstrengur á köflum.
Mæting í dag var eftir vonum en ljóst er að íslendingum hér á Spáni fækkar í hverri viku núna.
Stjórnarliðar FHS voru á staðnum í dag og veittu upplýsingar og ráð fyrir þá sem þurftu.
Þökkum þeim sem komu á hittinginn í dag og minnum síðan á síðasta hitting okkar íslendinga fram að hausti - sem verður á Sundlaugabarnum í Las Mimosas næsta föstudag, 12.júní - ávallt á sama tíma eða kl. 14:00 - 16:00.
●
Að venju látum fylgja nokkrar myndir sem teknar voru í dag.
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis -og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni - fhs.is
04/06/2026
Góðan daginn kæru FHS félagar og aðrir íslendingar hér á Costa Blanca ströndinni...
HITTINGUR - HITTINGUR
Á FÖSTUDAGINN
Minnum á Hittinginn okkar íslendinga hér á Costa Blanca sem verður núna, og framvegis á árinu, á Sundlaugabarnum í La Mimosas föstudaginn 5.júní 2026, -
Frá kl. 14:00 - 16:00.
Gott er að vera tímanlega til að fá góð sæti.
Fulltrúar stjórnar FHS verða á staðnum eins og vanalega.
Veðurhorfur eru góðar, spáð hálf-skýjuðu og ágætis hita en vindasamt yfir daginn.
Mini-golfið er að sjálfsögðu opið.
Sundlaugabarinn býður upp á góðan mat og eins og venjulega, - fínn matseðill á góðu verði.
Sjáumst á Sundlaugabarnum !
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis-og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni
01/06/2026
Góðan daginn ágætu FHS félagar og allir hinir !
Fyrsta vika júnímánaðar byrjar hressilega, eins og síðasta vika - með hitabylgju.
Þessi vika verður mjög heit og sólrík og hitastigið hækkar smám saman fram að föstudegi.
Hitinn er ávallt hærri inn til landsins í Vega Baja del Segura svæðinu en annars er 10 daga spáin framundan hjá okkur mjög sumarleg.
Í hita sem þessum er ráðlegt að fara varlega og gæta að UV (útfjólubláum) geislum sólar
Fara varlega, það er málið....
Heimild:
https://www.facebook.com/share/p/1LcbMK6E4x/
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis-og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni - fhs.is
29/05/2026
Sæl og blessuð ágætu FHS félagar og vinir hér á Costa Blanca ströndinni !
Hittingur íslendinga var haldinn á Sundlaugabarnum í Las Mimosas var á föstudeginum 29.maí 2026.
Var það fyrir okkur mörg eins og að koma heim. Sundlaugabarinn togar í mann, það er ljóst.
Veður í dag var eins og á há-sumri, glampandi sól og heitt, 28°+ og vindur lítill sem enginn.
Heitt var á staðnum en léttur og kærkominn gegnumtrekkur bjargaði málunum á degi sem þessum
Mæting í dag var þokkaleg miðað við að fjöldi íslendinga er á leið til landsins kalda í hverri viku núna.
Stjórnarliðar (4) FHS voru á staðnum í dag og veittu upplýsingar og ráð fyrir þá sem þurftu.
Mini-golfið dregur að og voru sigurvegarar dagsins, hjónin Hörður og Berglind hlutskörpust í dag og fengu verðlaun (sjá mynd).
Þökkum þeim sem komu á hittinginn í dag og minnum síðan á næsta hitting okkar íslendinga sem verður á Sundlaugabarnum í Las Mimosas næsta föstudag, 5.júní - ávallt á sama tíma eða kl. 14:00 - 16:00.
●
Að venju látum fylgja nokkrar myndir sem teknar voru í dag.
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis -og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni - fhs.is
28/05/2026
Góðan daginn kæru FHS félagar og aðrir íslendingar hér á Costa Blanca ströndinni...
HITTINGUR - HITTINGUR
Á FÖSTUDAGINN
Minnum á Hittinginn okkar íslendinga hér á Costa Blanca sem verður núna, og framvegis á árinu, á Sundlaugabarnum í La Mimosas föstudaginn 29.maí, -
Frá kl. 14:00 - 16:00.
Gott er að vera tímanlega til að fá góð sæti.
Fulltrúar stjórnar FHS verða á staðnum eins og vanalega.
Veðurhorfur eru góðar, spáð sól og hita blíðu allan daginn og vikuna.
Kjörið veður fyrir mini golfið !.
Sundlaugabarinn býður upp á góðan mat og eins og venjulega, fínn matseðill á góðu verði.
Sjáumst á Sundlaugabarnum - í fyrsta sinn á árinu !....
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis-og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni
25/05/2026
Góðan daginn ágætu FHS félagar og allir hinir !
Síðasta vika maímánaðar rennur aldeilis upp með hitabylgju.
Þessi vika verður að mestu leyti björt eða sólrík og hitastigið hækkar smám saman.
Í lok vikunnar náum við um 30°C á strandsvæðum og yfir 35°C eða meira inn til landsins í Vega Baja del Segura svæðinu.
Vindur verður almennt hægari úr austri.
Í hita sem þessum er ráðlegt að fara varlega.
Heimild: https://www.facebook.com/share/p/1B8TSxVTsJ/
Kveðja,
Már Elíson
Öryggis-og þjónustufulltrúi
FHS á Spáni - fhs.is