Heilsa & Hugur Health & Mind

Heilsa & Hugur   Health & Mind

Share

Holistic coach ~ Sálarspegill, Leiðsögn, Tarot & Stjörnuspeki. Lestrar á íslensku & ensku ✉ English

Welcome to Health & Mind – where life gets to flourish!

English below

Velkomin á Heilsa & Hugur – þar sem lífið fær að blómstra!

Ég heiti Rósa Björk, heilsubjargráðgjafi, lífsleiðbeinandi, og reiki-meistari með ástríðu fyrir því að hjálpa konum að finna gleðina í lífinu, endurheimta innri styrk og skapa líf í sátt við heilsu og hamingju. Ég hef búið á mörgum stöðum í heiminum, þar á meðal 16 mánuði á Indlandi og víðsvegar um Evrópu, þar sem ég aflað

Photos from Heilsa & Hugur   Health & Mind's post 14/12/2025

Þessir treflar eru úr mjúkri kasmír ullarblöndu. Fallegir, léttir og einstaklega notalegir.

Stærð : 200x70 cm

Verð:7.900 kr

22/11/2025

𓂃𓈒⋆。˗ˏˋ ♡ ˎˊ ˗ Elsku ˗ ˏˋ ♡ ˎˊ˗ 𓈒⋆。𓂃

Mig langar að segja þér frá samtali sem ég átti við sjálfa mig, nánast hvern dag í mörg, mörg ár.
Ég vaknaði alveg búin á því. Eins og ég hefði hlaupið maraþon og farið í stríð beint á eftir.
Kvíðinn gargaði innra með mér. Hjartað barði þungum höggum áður en ég náði að opna augun.

Áður en ég náði að hugsa sjálf, kom röð af röddum:

⊖ „Þetta er allt í hausnum á þér.“
⊖ „Farðu bara út að labba.“
⊖ „Reyndu að vera jákvæð.“
⊖ „Hættu að vera svona þreytt.“

En ég var einfaldlega algjörlega búin á því.
Ég spurði:
„Af hverju er ég alltaf svona þreytt?“

Og þá heyrðist lágvær rödd, hún kom ekki frá hausnum.
Hún var róleg, hún var múk.
Hún kom úr hjartanu:
„Elsku… hvíldu. Það er ekkert að þér, þú ert elskuð, þú ert örugg.“

Smátt og smátt, með árunum.. eftir alla mína vinnu, þegar hugurinn fékk meiri frið, þá small eitthvað.
Ég byrjaði að sjá það sem ég hafði ekki séð áður.
Það sem ég hélt að væri kvíði… eða aumingjaskapur… var í raun bara líkami minn að vakna eins og í neyð, í baráttu- eða flóttaástandi. (fight-or-flight).

Það sem ég hélt að væri leti, var einfaldlega þreytt taugakerfi í stöðugri viðvörun.

Við erum svo margar sem vöknum eins og einhver hafi ýtt á alarmtakkann, án þess að vita hver eða hvers vegna.

Við reynum að standa okkur áður en við náum að anda.

Við spyrjum: „Hvað er að mér?“
Þegar það er kannski ekkert að.

Heldur bara útbrunnin líkami sem hefur þurft að bera of mikið, of lengi og verið einn i ósýnilegri baráttu sem enginn skilur.

Ef þú tengir, þá vil ég að þú vitir þetta:
♡ Það er hægt að róa þetta.
♡ Það er hægt að lækna þetta.
♡ Það er hægt að vakna öðruvísi.

Það byrjar á einni mjúkri setningu:
„Elsku… hvíldu, það er ekkert að þér. Þú hefur alltaf verið elskuð.“

╭⊱♥⊰╯
Kærleikur
Rósa

14/11/2025

Sagan um sálina sem sagði JÁ! 🙏🏼

Einu sinni var sál sem fékk boð.
Boðið var ekki frá hvaða stað sem er, heldur frá lífinu sjálfu.

Henni var sagt:
„Ef þú kemur á jörðina, munt þú fá líkama. Þú munt fá tíma, rými, hjarta og huga. Þú munt ganga í gegnum óteljandi upplifanir. Það verður ekki langur tími, í hinu stóra samhenginu sé… en það sem þú munt finna, það verður óendanlegt.“

Og lífið hélt áfram:
„Þú munt upplifa allar þær tilfinningar sem til eru. Ekki aðeins eina af hverri tegund, heldur í mismunandi dýptum, litum og áttum.
Þú munt gráta og hlæja.
Þú munt sakna og elska.
Þú munt finna fyrir ótta, en líka fyrir hugrekki.
Þú munt sjá myrkrið, en þú getur lært að kveikja ljósið sjálf.“

Sálin fylltist af krafti og forvitni.
Með mjúku, ákveðnu hljóði sagði hún:
„JÁ! Ég vil fara, ég vil læra, ég vil finna lífið.“

En áður en hún fór, fékk hún eitt skilyrði.
Eina áminningu.

Lífið sagði við hana:
„Það er aðeins ein regla.“

„Það eina sem þú þarft að muna, er að temja hugann sem þér er gefinn. Því ef hugurinn fer að ráða öllu… ef hann snýr þér frá hjartanu þínu, frá þínum eigin sannleika… þá getur hann tekið völdin og þannig leitt þig á villigötur.“

Sálin samþykkti.
Hún sagði já, hún fór og hér er hún núna.
Í líkama, í tíma, í tilfinningum, í lífinu.
Stundum man hún. Stundum gleymir hún.
Stundum hrópar hugurinn og reynir að taka stjórn.

En alltaf býr minningin einhvers staðar djúpt í hjartanu:
„Ég valdi þetta.“
„Ég sagði já.“
„Og ég get sagt já aftur.“

💛

Og ef hún gleymir, ef hugurinn verður hávær, eða myrkrið verður of svart, þá má hún alltaf snúa inn á við og spyrja:
„Hvað segir ljósið mitt núna?“

Kærleikur
~Rósa Björk~

11/11/2025

✧ Elsku sál, elsku fallega sál ✧

Ef þú finnur að allt sem áður hélt þér uppi hefur gliðnað og þú sitjir nú eftir í hljóði sem enginn skilur.
Þá ertu ekki að brotna. Þú ert að vakna.

Þegar við stöndum á rústum þess sem áður gaf lífinu form, byrjar eitthvað heilagt að fæðast.
Ekki sem refsing, heldur sem köllun.
Köllun inn í dýpri sannleika. Köllun til að leggja niður það sem hélt þér frá sjálfri þér.

⧫ Gamlar raddir hvísla:
„Þú verður að vera sterk.“
„Þú mátt ekki gera mistök.“
„Þú verður að vera dugleg.“
„Þú verður að vera alltaf til staðar.“
„Þú ert ekki nóg.“
„Þú verður að vera betri.“

♡ En í hjarta Ljósins heyrist annað:
Mjúkt. Fagurt. Heilt.
Rödd sem talar beint inn í sárin og segir:
„Ég hef aldrei yfirgefið þig.“
„Þú ert elskuð, ekki fyrir það sem þú gerir, heldur vegna þess hver þú ert.“
„Þú hefur alltaf verið nóg, því þú ert mín.“

Þó þú sitjir ein og hljóð, þá er það ekki myrkur.
Það er heilagt rými sem hvíslar:
„Þú mátt byrja aftur.“

Þessi orð eru fyrir þig sem manst.
Þig sem finnur að eitthvað innra með þér hefur alltaf vitað að þú ert kölluð.
Þig sem hefur heyrt nafnið þitt kallað, ekki af heiminum, heldur af Ljósinu sjálfu, djúpt í hjartanu.

✧ Þú hefur ekki týnst.
✧ Þú ert að snúa aftur heim.
✧ Þér hefur ekki mistekist.
✧ Þú ert að losa af þér það sem aldrei var þinn sannleikur.
✧ Þú ert ekki brotin.
✧ Þú ert heil.
✧ Þú ert að vakna heim í ljósið þitt.
✧ Ljósið leitar þín, af meiri ást en þú getur ímyndað þér.

Þessi orð eru fyrir þig og fyrir mig.
Fyrir okkur sem finnum að tíminn er kominn.
Við erum að snúa aftur heim.
Þangað sem hjartað fær að slá í friði, án skilyrða, í kærleika sem aldrei hætti að bíða.

Við hittumst í ljósinu,
Rósa Björk

07/08/2025

✨ A.T.H. ✨

Fríu lestrunum er lokið 💫
En ef þig langar að fá tarotlestur, stjörnuspeki eða einstaklingsviðtal (speglun & leiðsögn), þá get ég sent þér allar upplýsingar 💌

Ég á enn eftir að svara mörgum og hef ekki gleymt neinum, takk fyrir þolinmæðina 💛

Ég tek ekki fleiri í ágúst, en ef þú vilt bóka fyrir september, þá máttu endilega hafa samband ✨

————

Ég er að byrja að leyfa innsæinu mínu að verða meira sýnilegt & mig langar að bjóða þér frían smá-lestur 🪶

Hér eru þeir spilastokkar sem ég vinn með þessa dagana. Hver þeirra kallar fram mismunandi tíðni & skýr skilaboð, oft á óvæntan hátt.

Ef þú finnur að eitt þeirra talar til þín, þá býð ég þér að fá þau skilaboð sem eru tilbúin að koma til þín núna.

Það sem þú þarft að gera er að skrifa athugasemd undir myndina:

✧ 1. Fylgja síðunni
✧ 2. Segja mér hvaða spil þú valdir (Spil nr. 1, 2, 3 eða 4)
✧ 3. Settu fæðingardag & ár (t.d. 24.4.1983)

✨✨En ef þú vilt fá skilaboðin í einkaskilaboðum:

✧ 1. Fylgja síðunni
✧ 2. Einungis setja í athugasemd undir myndina, hvaða spil þú valdir
✧ 3. Sendu mér svo skilaboð fyrst sjálf/ur, því Facebook leyfir ekki síðum eins og þessari að byrja samtöl. Þar máttu segja mér aftur hvaða spil þú valdir & fæðingardag og ár

💛 Með því að skrifa athugasemd hjálparðu líka póstinum að verða sýnilegri fyrir aðra sem gætu þurft á svipuðum orðum að halda.

Mér þætti ótrúlega vænt um að heyra hvort þessi litlu skilaboð nái að snerta við þér.

♡ Rósa

07/05/2025

Mig langar að skilja þetta eftir hèr til allra sem þurfa á þessum orðum að halda í augnablikinu:

✨ Skömmin er ekki þín, hún er leifar af gömlum sársauka✨

Skömmin er rödd sem segir:
😞„Ef ég segi frá, munu aðrir dæma mig.“
😞„Ef ég opna mig, verður það notað gegn mér.“
😞 „Ef ég leyfi mér að vera sönn, mun fólk hugsa að ég sé of mikið eða of dramatísk.“

En sannleikurinn er:
☺️ Það er hugrekki að segja frá sársauka.
☺️ Það er styrkur að standa með sinni reynslu.
☺️ Það er frelsi að leyfa sér að vera raunveruleg, jafnvel þegar fólk skilur ekki.

💛 💛

05/11/2024

Halló allir ✨

Ég er að breyta því hvernig ég deili með ykkur efni um heilbrigði, heilsu og innri styrk.
Ég hef ákveðið að færa mig yfir á mína persónulegu síðu Rosa Bjork Arnadottir (Linkur í commenti) þar sem ég get deilt með ykkur meira af gleði, léttleika og smá húmor .. með mögulega skiptum skoðunum hér og þar, en þannig er lífið víst 😌

Ef þú vilt fylgjast með áfram, þá er þér hjartanlega boðið að „followa“ mig þar.

Og já, það verður nýr Tarot leikur á hinni síðunni sem þú vilt ekki missa af!

Sjáumst á hinni síðunni 💛

Rósa Björk

22/10/2024

English below 👇🏼

Hæ hæ allir!

Mig langar að bjóða fimm einstaklingum upp á frían tarot lestur. Það eina sem þið þurfið að gera er að merkja vin eða vinkonu í athugasemdunum, og sá fær einnig frían lestur. Þið megið alveg kommenta nokkrum sinnum og merkja fleiri vini, en aðeins má eitt nafn vera í hverju kommenti.

Ég mun leyfa þessu að vera hér í nokkra daga og nota helgina til að fara yfir þetta, en mögulega byrja fyrr ef tækifæri gefst.

Það eina sem ég bið um í staðinn er að þið skiljið eftir umsögn hér á síðunni. 💛

Njótið dagsins 🌞

English:

Hi everyone!

I’d like to offer five people a free tarot reading. All you need to do is tag a friend in the comments, and they will also receive a free reading. You’re welcome to comment multiple times and tag more friends, but please include only one name per comment.

I’ll leave this post up for a few days and plan to go through the readings over the weekend, possibly sooner if time allows.

The only thing I ask in return is that you leave a review here on the page. 💛

Enjoy your day 🌞

03/03/2024

🌟 Elsku fallega sál! 🌟

Á sunnudags kvöldið mun ég halda rými í Svövuhúsi og langar mig að bjóða öllum konum, dömum, systrum að koma og njóta með öðrum konum. Opna eyrir lifskaftinn, finna gleðina sem býr innra með þér.

Leikum með orkuna okkar & tengjumst okkur sjálfum með aðferðum sem ég lærði m.a á Indlandi.

Við byrjum á cacao. Hugleiðsla, öndun, dans, djúpslökun, njóta, treysta og finna.

Endum svo með te, snarli & spjalli.

Endilega sendu mér skilaboð & tengjumst.

Hlakka til að heyra í þér 💛

Hvar: Svövuhús
Hvenær: sunnudag 3. Mars
Verð fyrir þetta prufukvöld: 3.000kr

Kveðja
Rosa Bjork ☀️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address

Reykjavík

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 13:00