02/06/2026
Borðtennisnámskeið ÍFR Sport!
Vikurnar 29. Júní - 3. Júlí og 20. Júlí - 24. Júlí verðum við með borðtennisnámskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni
Upplýsingar og skráning er á Ifr.is/sumarbordtennis
02/06/2026
Boccía námskeið ÍFR Sport!
Vikurnar 29. Júní - 3. Júlí og 20. Júlí - 24. Júlí verðum við með boccia námskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni
Upplýsingar og skráning er á Ifr.is/sumarboccia
02/06/2026
ParaStart íþróttaskóli!
Við verðum með íþróttaskóla fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni í sumar dagana 13. - 17. Júlí.
Upplýsingar og skráning er á Ifr.is/parastart
27/05/2026
STUDIEBESÖK. Veckan inleddes med ett produktivt studiebesök från Reykjavik. Den isländska delegationen bestod av representanter från bl.a. föreningen IFR Sport och personal från ett rehabcenter. Man valde FIFH för att ta del av klubbens arbetsmetoder samt inspiration för att utveckla parasporten på Island. FIFH bjöd under två dagar på ett flertal föreläsningar, fysisk aktivitet och goda exempel. Mötet avslutades med en tankesmedja där båda organisationerna talade framtid och samverkan.
19/05/2026
Afrekskona ÍFR 2026
Anna Karen Malquist
Anna Karen Malmquist hefur átt glæsilegt keppnisár og náð framúrskarandi árangri, bæði á mótum í fötlunarflokkum og á opnum mótum hjá Borðtennissamband Íslands.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún sýnt ótrúlegan metnað, keppnisskap og stöðugar framfarir á árinu.
Á tímabilinu hefur Anna Karen meðal annars:
Unnið til gullverðlauna í U13 ára flokki á Byrjendamóti KR í nóvember.
Unnið til gullverðlauna í U11 ára og silfurverðlauna í U13 ára á BH Open í janúar.
Náð frábærum árangri á Malmö Open í febrúar með því að komast upp úr riðli í U15 ára opnum flokki standandi – aðeins 9 ára gömul og keppandi í flokki 6, sem er sá flokkur fyrir mestu hreyfihömlunina í standandi flokki.
Íslandsmeistari í tvíliðaleik U15 ára ásamt Agnesi Lovísu, silfur í einliðaleik U11 ára og silfur í tvenndarleik U13 ára á Íslandsmóti unglinga BTÍ.
Íslandsmeistari í opnum flokki kvenna, silfur í tvenndarleik og tvíliðaleik kvenna, og bronsverðlauna í flokki 6–10 á Íslandsmóti ÍF.
Unnið til gullverðlauna í U11 kvennaflokki á Garpsmótinu í mars.
19/05/2026
Afreksmaður ÍFR 2026
Snævar Örn Kristmannsson
Árangurinn er sannarlega glæsilegur: eitt heimsmet, fimm Evrópumet og 33 Íslandsmet. Hann keppir í S19 flokki og hefur tekið miklum framförum á árinu, þar sem hann bætti sig í öllum helstu greinum sínum – þar á meðal 50, 100 og 200 metra flugsundi, 50, 100 og 400 metra skriðsundi, auk 100 og 200 metra fjórsunds.
Á árinu tók hann þátt í tveimur alþjóðlegum mótum. Fyrra mótið var VIRTUS heimsmeistaramótið sem haldið var í Bangkok í Taílandi dagana 20.–30. ágúst 2025. Þar keppti hann í fjórum greinum: 50, 100 og 200 metra flugsundi og 50 metra skriðsundi. Frammistaða hans var afar sterk; hann setti Íslandsmet í sínum flokki í öllum greinum, komst í úrslit í þeim öllum og vann til þriggja silfurverðlauna í 50, 100 og 200 metra flugsundi. Þessi árangur undirstrikar sterka stöðu hans á alþjóðavettvangi.
Á Norðurlandameistaramótinu keppti hann einnig í fjórum greinum og náði þar framúrskarandi árangri. Hann setti Evrópumet í tveimur greinum: í 100 metra flugsundi á tímanum 59,61 sekúndu og í 200 metra fjórsundi á tímanum 2:25,75.
06/05/2026
Aðalfundur 2026
Aðalfundur félagsins er í dag kl 16:00
Meðfylgjandi eru skýrslur deilda félagsins ásamt ársreikningi fyrir árið 2025
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Ithrottafelag-fatladra-2025-1.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-formanns.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-husnefndar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-getrauna.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-bocciadeildar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-bogfimideildar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-bordtennisdeildar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-ithrottaskoli.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-lyftingar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsla-sunddeildar.pdf
http://ifr.is/wp-content/uploads/2026/05/Skyrsal-sundskoli.pdf
27/04/2026
Keppt í Para-badminton og Special Olympics badminton í fyrsta sinn
Íslandsmótið í Para-badminton og Íslandsleikar Special Olympics í badminton fóru fram í fyrsta sinn sunnudaginn 26.apríl 2026. Mótin fóru fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og voru skipulögð af Badmintonfélagi Hafnarfjarðar og Íþróttasambandi fatlaðra. Spil...
10/02/2026
Frábær ferð hjá borðtennisdeild ÍFR á Malmö Open lokið!
8 keppendur kepptu fyrir ÍFR á mótinu og komu heim með 5 verðlaun!
Allir leikmenn stóðu sig frábærlega á mótinu og mikil skemmtun!
🥇 vann gull í flokki 1-3 b
& 🥉🥉í tvíliðaleik b
& Nóni 🥉🥉 í tvíliðaleik b
Anna Karen spilaði frábærlega í u15 og komst í A úrslitakeppni
lovisa123 spilaði mjög vel og vann 2 leiki og komst í 5 oddalotur
Björgvin spilaðir mjög vel líka og vann leik og tapaði öðrum í oddalotu
Jóna átti frábært mót vinnur riðilinn sinn í performance 3 og kemst í 8manna úrslit þar sem datt út og vann svo 1-3 b🥇
Hákon vann sterkan spilara frá Austurriki í riðlinum en datt út í 8 manna úrslitum gegn ríkjandi Paralympic meistara
Vova fór upp úr riðli í c1-3 en tapaði í 8 manna úrslitum gegn Paralympic fara frá Kanada
Nóni vann 2 leiki í performance 3 of flotta frammistöðu í sínum flokki
Óskar komst í 8 mann úrslit í bæði performance 3 og flokki 11
Heilt yfir frábært mót hjá liði ÍFR 🥳