Strandblak BLÍ / Beach Volley

Strandblak BLÍ / Beach Volley

Share

Á þessari síðu munu birtast tilkynningar um mót og reglubreytingar og annað tengt mótum á vegum Strandblaksnefndar BLÍ.

04/03/2025

Óskað er eftir mótshöldurum vegna stigamóta í strandblaki í sumar 2025. Eftirfarandi eru tillögur að dagsetningum á mótunum (hægt er að sækja um aðra dagsetningu ef hún hentar betur).
1. stigamót 13-16. júní
2. stigamót 27-30. júní
3. stigamót 11-13. júlí - Þingeyri, mótshaldari Höfrungur
4. stigamót 25-27. julí
5. stigamót 8-11. ágúst
6. Íslandsmót 21-25. ágúst

Þeir sem hafa áhuga á að halda mót hafi samband við okkur í strandblaksnefnd BLÍ Valgeir Bergmann, Gunnar Gunnarsson eða sendið tölvupóst á netfangið [email protected] fyrir 1.apríl

Photos from Strandblak BLÍ / Beach Volley's post 27/08/2024

Íslandsmótið í strandblaki fór fram í Kjarnaskógi helgina 16-18 ágúst 2024. Jafnframt var krýndur Bondi Sands stigameistari karla og kvenna en þetta var síðasta mót sumarsins og þökkum við öllum keppendum, áhorfendum, mótsstjórnendum og öðrum sjálfboðaliðum sem gerður það mögulegt að halda þessi mót. Þá viljum við þakka styrktaraðilum og sérstakarlega Bondi Sands fyrir sumarið.

Bondi Sands stigameistari kvenna 2024 - Velina Apostolova
Bondi Sands stigameistari karla 2024 - Tómas Davidsson

1.deild kvenna:
1. Julia & Paula
2. Velina & María
3. Savannah & Magdalena

1.deild karla:
1. Oscar & Mateo
2. Mateusz & Zdravko
3. Pedro & Ágúst

2.deild kvenna:
1. Aníka & Helena
2. Auður & Lilja Rut
3. Emelía & Birna

2.deild karla:
1. Benedikt & Guðmundur
2. Markús & Gunnar
3. Valgeir Bergmann & Þór Bæring

3.deild kvenna:
1. Lucía & Paula Ruiz
2. Karen & Sunna
3. Ásta & Erna

Unglingaflokkur U16 (opin flokkur)
1. Kara & Katla
2. Þorbjörg & Aðalheiður
3. Regína & Matthildur

Meðfygjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru en fleiri myndir og myndband munu koma fljótlega sem teknar voru af ljósmyndar Bondi Sands.

13/05/2024

Hér koma upplýsingar um mótsstaði og mótshaldara vegna Bondi Sands móta í Strandblaki sumarið 2024. Nánari upplýsingar um skráning ofrv. þegar nær kemur að móti.

12/03/2024

Strandblaksnefnd BLÍ auglýsir eftir mótshöldurum fyrir sumarið 2024.
Eftirfarandi dagsetningar eru á mótunum, þó ekki séu þær meitlaðar í stein.

Stigamót 1. 7.-9. júní
Stigamót 2. 21.-23. júní
Stigamót 3. 4.-7. júlí
Stigamót 4. 19.-21. júlí
Stigamót 5. 9.-11. ágúst
Íslandsmót. 22-25 ágúst (menningarnótt)

Þeir sem hafa áhuga á að halda mót hafi samband við okkur í strandblaksnefnd BLÍ Valgeir Bergmann, Sigurð Garðar Barðason eða sendið tölvupóst á [email protected] fyrir 1.apríl.

Einnig auglýsir nefndinn eftir nýju fólki í nefndina

Photos from Strandblak BLÍ / Beach Volley's post 12/06/2023

Staðan eftir 1. strandblaksmót sumarsins ásamt stigum fyrir síðustu 4.

Photos from Strandblak BLÍ / Beach Volley's post 02/06/2023

Af gefnu tilefni þá tilkynnist það hér með að stigakerfi.net hefur runnið sitt skeið, ekki er hægt að viðhalda því kerfi lengur. Við munum því halda utan um skráningar í mót og stigagjöfina í excel þetta sumarið eða þangað til viðeigandi lausn finnst.
Meðfylgjandi eru stigin eins og þau standa fyrir 1. mót.

Kveðja,

Strandblaksnefnd BLÍ

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Engjavegi 6
Reykjavík
104