25/03/2024
Ný mömmunámskeið hefjast eftir páska 🐥
Skráning í fullum gangi - lausum dýnum fer fækkandi !
Skráning á heimasíðunni hildurgrims.is eða í gegnum skilaboð hjá mér 🫶🏼
Allar frekari upplýsingar er einnig að finna á heimasíðunni .... og ekki hika við að senda á mig línu ef þú hefur spurningar ✨
25/02/2024
Ég veit ekki hver þarf að heyra þetta en....
í stað þess að horfa til baka og ætla að verða eins og þú varst áður, hvernig væri að horfa fram á við og vinna í framtíðar útgáfunni af þér ?
Konunni sem er orðin móðir og hefur nú þegar gengið í gegnum magnað ferðalag þar sem ekkert verður eins og það var
Ferðalag sem mun krefjast þolinmæði, fullt af áskorunum en líka fullt af ást og gleði
Sýndu þér mildi og settu þér raunhæf markmið þegar kemur að framtíðar þér
Þú ert þú núna, þú verður ekki eins og þú varst áður,
en þú getur orðið svo margt ef þú setur upp réttu gleraugun þegar kemur að þér 💕
Fljúgðu áfram veginn með nýju fallegu fiðrildavængina þína 🦋
22/01/2024
✨Ný mömmunámskeið byrja 6.febrúar✨
Grunn og framhaldsnámskeið fyrir mæður eftir barnsburð í sal Sjúkraþjálfunar Selfoss. Þjálfari er Hildur Grímsdóttir sjúkraþjálfari.
🌿Skráning er hafin - Tryggðu þér pláss!🌿
➡️hildurgrims.is eða [email protected]⬅️
22/01/2024
Ég kíkti í spjall til Indíana Rós Kynfræðingur um daginn. Ég mæli með að hlusta á þáttinn ef að þú vilt vita meira um kvenheilsusjúkraþjálfun, verki í kynlífi og margt fleira áhugavert !
Vilt þú vita meir um verki í kynlífi, kvenheilsusjúkraþjálfun og grindarbotninn? Þátturinn er komin á allar helstu hlaðvarpsveitur!
07/01/2024
✨Ný mömmunámskeið byrja þriðjudaginn 9.janúar✨
Móðir-Grunnur er grunnnámskeið eða svokallað fyrsta námskeið í hreyfingu eftir barnsburð.
💥Nýtt💥
Móðir-Framhald, sem er framhaldsnámskeið eftir að hafa tekið grunnnámskeið eftir barnsburð.
✨Námskeiðin henta öllum konum sem nýlega hafa átt barn/börn, hvort sem stoðkerfisverkir eru til staðar eða ekki
✨Ég mæli með að byrja í kringum 6vikum eftir fæðingu, sumar eru tilbúnar aðeins fyrr og aðrar eru ekki tilbúnar fyrr en síðar í ferlinu. Þetta er mjög persónubundið og konur því velkomnar hvenær sem þær treysta sér í reglubundna hreyfingu 💞
💥Skráning hjá mér í gegnum skilaboð eða á hildurgrims.is💥
Námskeiðin fara fram í sal Sjúkraþjálfun Selfoss
15/11/2023
Þegar ég spurði mömmurnar "mínar" hvað þær hafi fengið út úr Móðir-Grunnur námskeiðinu .... 🫶🏼
✨Ef að þú vilt vera með á næsta námskeiði sem hefst 23.nóv þá geturðu skráð þig inni á hildurgrims.is✨
22/10/2023
Móðir-Grunnur er grunnnámskeið fyrir konur eftir barnsburð - ég kalla það gjarnan "fyrsta námskeið eftir fæðingu"
Hér byrjum við bara á byrjunarreit og vinnum okkur upp, hver á sínum hraða 🫶🏼
Ég fræði og ræði hlutina með ykkur, það sem er gott að vita og hafa í huga á þessum tímapunkti. Leiðbeini ykkur með hreyfingu og aðstoða eins vel og ég get.
Við tökum fjölbreyttar æfingar sem fókusera á allan líkamann og leggjum extra áherslu á kvið, grindarbotn og mjaðmir
✨Næsta námskeið byrjar 26.okt✨
Takmörkuð pláss í boði,
skráning inni á hildurgrims.is
20/10/2023
Hildur Grímsdóttir sjúkraþjálfari
kynnir með stolti nýtt logo ✨
Ég er smátt og smátt að koma til baka til vinnu eftir fæðingarorlof nr.3 á 5 árum.
Það er mjög margt sem mig langar að koma út úr höfðinu á mér, niður á blað og í framkvæmd.
Ég geri mér fulla grein fyrir að það mun allt taka tíma. Ég hef aldrei haft eins skýra sýn á hvert ég stefni og hvað ég vil gera.
Kvenheilsa, öll skeið kvenna og allt sem þær þurfa að takast á við er það sem ég brenn fyrir í starfi mínu.
Mér finnst gaman að kenna, fræða og leiðbeina öðrum konum. Ég elska að efla og auka sjálfstraust annarra kvenna.
Það er margt sem við höfum farið á mis við hingað til, margt sem enginn talar um og fyrir vikið vita konur lítið um allskonar verki og vandamál sem tengjast kvenlíffærum, hormónabreytingum og öðru tengdu kvenheilsu sem hefur bara verið sópað undir teppi. Of óþægilegt eða vandræðalegt að ræða. Tabú!
Mín ósk er að umræðan opnist enn meira, fræðslan aukist enn meira og
að konur hætti að þjást í hljóði.
Ég ætla að leggja mitt af mörkum með minni vinnu og meðal annars á þessum miðli.
Ég ákvað að halda mig við þennan aðgang og vera bæði ég sjálf á persónulegu nótunum og líka Hildur sjúkraþjálfari sem hefur mörgu að miðla, allt í bland.
Ég get ekki annað sagt en að framundan séu virkilega spennandi tímar ✨
Takk fyrir að vera með mér í þessu ferðalagi 🫶🏼
25/11/2022
35% afsláttur af hlaupaprógrömum
Fyrstu 5km fyrir byrjendur
5km - framhald
10km
Gildir út 4.desember
Skráning inni á www.hildurgrims.is
Ath! Afsláttur reiknast sjálfkrafa í greiðsluferlinu