03/06/2026
Meðlimakvöld GoMove 🫶🏻
Við elskum að hitta meðlimi okkar utan stöðvarinnar og ekki var verra að gera það í kvöld í einni fallegustu búð landsins ✨
Takk kærlega fyrir komuna - við hlökkum til að sjá alla í nýju æfingafötunum sínum í stöðinni 😍
02/06/2026
Sagan af sem er FERTUG í dag 🎉🎉
,,Það kom upp hugmynd að klára maraþon fyrir fertugt og það var ótrúlega gaman að tjékka í það box! Í desember hljóp ég maraþon í Valencia með góðum vinum. Magnað hvað styrktaræfingar síðustu ára komu mér langt.”
Kristín starfar í fjárstýringu hjá Arion banka og er meðlimur í 100 kg klúbbi GoMove 💪🏼 Hún býr í Seljahverfinu með manninum sínum og tveimur börnum, 8 ára stelpu og 5 ára strák.
,,Mín helstu áhugamál eru íþróttir. Æfði sjálf fimleika í 10 ár og hef alltaf þótt hreyfing skemmtileg og bara íþróttir yfir höfuð (er dyggur stuðningsmaður Liverpool). Skemmtilegast finnst mér að plana og fara í ferðalög með fjölskyldunni. Svo á ég mjög skemmtilegan vinkonuhóp sem gaman er að hitta og drekka vín með... má ekki annars segja það 😆.
Ég byrjaði á námskeiði hjá Indiönu í janúar 2020 í Ögurhvarfi. Í fæðingarorlofinu í Covid hélt ég áfram og tók netþjálfun hjá henni heuma. Svo ákvað ég að byrja í stöðinni haustið 2023. Ég fann strax að þessar æfingar hentuðu mjög vel. Ég lenti í miklu bakveseni eftir að ég átti strákinn minn 2020 og fann hvað æfingarnar hjálpuðu mér mikið.
Það lang mikilvægasta sem ég hef tekið út úr því að æfa hjá GoMove var alveg nýtt hugarfar þegar kemur að hreyfinu. Núna er ég að mæta fyrir mig, því það gerir svo mikið fyrir mig bæði andlega og líkamlega. Það er ekki hugsunin að æfa til að vera grönn eða eitthvað þannig heldur til að verða sterkari og betri.
Það er mikil hvatning að mæta fyrir sjálfan sig og gera sitt besta sama hvert dagsformið er. Er mjög hrifin af styrktaræfingum, lyfta þungum bjöllum í bland við bodyweight æfingar og finn mikinn mun á mér hvað ég hef náð að styrkja mig mikið. Það skemmir ekki fyrir hvað æfingarnar eru skemmtilegar, og hvað ég er að æfa í góðum hóp.
Með þessu breytta hugarfari hefur mér tekist að gera hreyfingu stóran part af mínu lífi ❤️
Hjá GoMove fæ ég persónulega þjálfun, jákvæða hvatningu og þægilegt andrúmsloft. Þjálfarnir ná alltaf að leiðbeina vel og halda vel utan um hópinn. Ég hef aldrei fundið mig í svona stórum líkamsræktarstöðvum þar sem maður veit ekkert hvað maður á að gera þannig þetta fyrirkomulag er alveg fullkomið fyrir mig.”
31/05/2026
Social run @ Heiðmörk í fullkomnu veðri ✨
Við verðum reglulega með hlaup í sumar og hlökkum til að hlaupa með ykkur næst 😍
29/04/2026
Ketilbjölluworkshop-in okkar eru þitt næsta skref í ketilbjölluæfingunum þínum 🚀
Laugardaginn 30. maí kl. 12-16:30 🗓️
Á hálfum degi köfum við í mikilvægustu undirstöðuatriðin sem þú þarft að skilja til að bæta tæknina þína og þyngja af öryggi.
💬 ,, Frábært workshop og ég myndi hiklaust mæla með því við alla sem vilja kynnast ketilbjöllum betur. ’’
💬 ,, Persónuleg nálgun allan tímann og það gerði upplifunina enn betri og skemmtilegri. ‘’
💬 ,, Ég hef verið iðkandi í fimm ár og á workshop-inu náði ég að dýpka bæði skilning og tækni. ‘’
💬,, Mér fannst ég læra betur allar undirstöður, hvaða vöðva ég ætti að virkja og fékk leiðréttingar á því sem betur má fara hjá mér. ‘’
💬 ,, Ég myndi mæla með þessu námskeiði fyrir alla sem hafa áhuga á ketilbjöllum. Indíana og Finnur fylgdust vel með okkur og pössuðu að við værum að beita okkur rétt og að þyngdirnar væru viðeigandi.’’
🔗✅ www.gomove.is/workshop
23/04/2026
Æfðum okkur inn í sumarið 🌤️👋
Við hlökkum til að eiga geggjað æfinga sumar með iðkendunum okkar bæði í stöðinni og í netþjálfun 🫡
24/03/2026
Tjú tjú bætingalestin er farin af stað 🚂
Svakaleg æfingavika þessa vikuna en nú erum við að endurtaka “Baseline test” sem við lögðum fyrir hópana okkar í byrjun árs.
Það sem við testum á æfingu 1:
Deadlift 5 rep max
Armbeygjur max reps
Róðravél 1 mín max cals
Chin up max hold eða Gorilla Row max hold
Það sem við testum á æfingu 2:
Goblet eða Front Rack Squats 5 rep max
Single Arm Axlapressa 3/3 rep max
Single Arm Róður 5/5 rep max
Val um: Swing 5 rep max, Sn**ch 3/3 rep max eða Hjól 1 mín max cal
Baseline testið er frábær leið fyrir iðkendur til þess að vita hvar þeir standa akkúrat núna og til þess að þekkja betur þyngdirnar sínar í framhaldinu ✅
Allavegana fjórar hafa bætt sér við á 100 kg klúbbinn í gær og í dag ✍🏻✍🏻
23/03/2026
👶🏻 Byggðu þig upp með faglegri leiðsögn í hlýlegu umhverfi.
🐣 Apríl tímabil í Mömmuþjálfun GoMove hefst strax eftir páska eða þriðjudaginn 7. apríl og miðvikudaginn 8. apríl.
⏰ 50 mín æfingar og fjórir hópar í boði:
- 09:30 mán + mið
- 10:30 mán + mið
- 11:30 mán + mið
- 13:10 þrið + fimmt
Þú skráir þig í þinn hóp en ef þú kemst ekki á æfinguna þína er í boði að mæta með öðrum hópum ☺️
💪🏼 Við leggjum áherslu á að viðhalda eða byggja upp alhliða grunnstyrk, auka hreyfigetu og þol með vel samsettum full-body og úthaldsæfingum.
😮💨 Við vinnum með öndun, góða virkni og vandaða líkamsbeitingu. Með aðstoð þjálfara okkar finnum við hvaða útfærslur henta þér og þínum líkama best hverju sinni. Við hvetjum þig til að æfa bæði í takt við getustig og dagsform.
💬 .. “Persónuleg nálgun og notalegt andrúmsloft, fannst sérstaklega þægilegt að mæta með strákinn og aldrei neitt stress í kringum það sem var rosalega dýrmætt.”
💬 .. “Gæti ekki mælt meira með mömmutímunum. Hlakkaði til að mæta á hverja einustu æfingu! Bæði skemmtilegar og krefjandi og auðvelt að skala í takt við dagsformið. Fann strax mikinn mun á styrk og úthaldi eftir fyrstu vikurnar.”
💬 .. “Þjálfararnir æði og útskýra mjög vel og eru til staðar ef maður þarf hjálp. Tala líka fallega til manns og minna á að hlusta á líkamann og hvetja mann á sama.”
💬 .. “ELSKA æfingarnar og nálgunina í æfingum. Virkilega góðar alhliða styrktaræfingar og fíla hvernig áherslan er frekar á gæði en hraða.”
✅ Skráðu þig núna í Mömmuþjálfun og byrjaðu eftir páska
🔗 www.gomove.is/mommur
15/03/2026
Ketilbjöllu Workshop með frábærum hóp ✅
Við fórum ofan í saumana á réttstöðulyftu, ketilbjöllusveiflu, clean og sn**ch 🚀
Eitt það skemmtilegasta við workshopið eru umræðurnar og pælingarnar sem allir koma með - þannig fá allir að velta upp því sem þeir eru að “ströggla” við og við getum greitt úr því saman 🤌🏼
Næsta workshop verður haldið laugardaginn 28. mars kl. 12-16:30 og það eru 3 pláss laus af 12 eins og staðan er núna ‼️
Ef þú vilt taka næsta skref í þínum ketilbjölluæfingum sendu okkur “WORKSHOP” í dm til að fá upplýsingar ✅
03/03/2026
Fullt nafn: Kristín Helga Vilbergsdóttir, 26 ára
Bakgrunnur / Menntun: BA í félagsráðgjöf / að klára MA í félagsráðgjöf til starfsréttinda í vor ✏
Starf utan þjálfunar (ef við á): Vinn á leikskóla og í skammtímadvöl fyrir börn með stuðningsþarfir 💕
Hvenær byrjaðir þú að æfa hjá GoMove / Indíönu? Var búin að fylgja Indíönu lengi á Insta og hafði lengi ætlað að skrá mig. Var líka búin að heyra sjúklega góða hluti um þjálfunina. Sá svo óvænt einn daginn, eftir fyrsta samkomubannið í covid (2020) að það væri laust pláss og skráði mig. Besta ákvörðun ever.
Hvenær byrjaðir þú að þjálfa hjá GoMove? Í janúar 2024 🫡
Hver er uppáhalds GoMove minningin þín hingað til? Workshoppið og æfingaferðin í Reykholti 💖
Hvað er skemmtilegast við að vera þjálfari? Að sjá framfarir og bætingar, finnst ekkert skemmtilegra 💪🏼 og bara að kynnast nýju fólki!!
Hvaða ráð myndir þú gefa nýjum iðkanda sem er að byrja Fara rólega af stað og alls ekki vera feimin/n við það að spyrja ‼
Hvað er eitt gott heilsuráð ? Alltaf að borða eitthvað fyrir morgunæfingu 🤓
Uppáhalds æfing atm? Get ekki valið á milli clean og sn**ch atm en hefur alltaf verið deadlift 💥
Uppáhalds matur? Kjúklinga taco 🌮
Guilty pleasure snarl: Mjög súrt nammi 🍬
Helstu áhugamál utan líkamsræktarinnar: Sund og sauna.
Ef þú værir að fara að taka sn**ch finisher á æfingu hvaða lag myndir þú spila til að keyra þig í gang? Akkurat núna: Lífstíll með flóna og birni 🔝 eða Baby again.. með Fred again
25/02/2026
4/6 Þjálfarakynning - Ingibjörg 💪🏼
Fullt nafn og aldur: Ingibjörg Sigfúsdóttir, 32 ára
Bakgrunnur / Menntun: BS í sálfræði og er að klára mastersnám í mannauðsstjórnun.
Hvenær byrjaðir þú að æfa hjá GoMove / Indíönu? Ég byrjaði að æfa hjá Indíönu í janúar 2018 þegar hún var í WC í Ögurhvarfi. Ég fann strax á fyrstu æfingunni að þetta hentaði mér mjög vel. Síðustu sjö ár hef ég verið hjá henni í hópþjálfun og tvisvar í mömmuþjálfun á meðan ég var í fæðingarorlofi með börnin mín.
Hvenær byrjaðir þú að þjálfa hjá GoMove? Sumarið 2023
Hver er uppáhalds GoMove minningin þín hingað til Workshopið stendur uppúr en þar lærði ég svo marga góða punkta.
Hvað er skemmtilegast við að vera þjálfari? Að upplifa jákvæða orku á æfingum og sjá iðkendur ná markmiðum sínum.
Hvaða ráð myndir þú gefa nýjum iðkanda sem er að byrja? Setja sér raunhæf markmið og stöðugleiki skilar alltaf besta árangrinum.
Hvað er eitt gott heilsuráð? Fáðu nægan svefn - svo mikilvægt fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu.
Uppáhalds æfing atm? Ætli það sé ekki sn**ch þar sem ég finn að tæknin er alltaf að verða betri og betri.
Uppáhalds matur? Lasagna-að hennar tengdamömmu 😋
Guilty pleasure snarl: Súkkulaði.
Helstu áhugamál utan líkamsræktarinnar: Fér finnst mjög gaman að fara út að hlaupa og væri til í að sinna því meira. Fyrir utan það nýt ég þess mest að vera með fjölskyldunni minni og ferðast.
Ef þú værir að fara að taka sn**ch finisher á æfingu hvaða lag myndir þú spila til að keyra þig í gang? Power með Kanye West 🤘🏼