Taflfélag Vestmannaeyja

Taflfélag Vestmannaeyja

Share

Upplýsingasíða Taflfélags Vestmannaeyja. Gróskumikið félag stofnað 1926. Æfingar á vegum félagsins fara fram í húsnæði þess að Heiðarvegi.

Photos from Taflfélag Vestmannaeyja's post 09/03/2026

Stoltir Íslandsmeistarar á 100 ára afmæli félagsins.

Glæsilegur árangur hjá liðinu sem tefldi frábærlega um helgina

27/04/2025

Haldið verður hraðskákmót í húsnæði Taflfélagsins á Heiðarvegi 9. maí kl 13. Tímamörk verða 5 mínútur +3 sekúndur á leik. Teflt eftir reglum Fide.

Allir velkomnir að taka þátt.

The Vestmannaeyjar Chess Club will have a speed (blitz) chess tournament at its premises on Heiðarvegur 9 on 1.may 13:00. Time limits will be 5 minutes + 3 seconds per move. Played according to Fide rules.

Everybody welcome to participate.

27/03/2024

Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2024

Taflfélagið endurvekur þetta mót sem ekki hefur verið haldið í mörg ár.
Á föstudaginn langa 29.mars kl 13:00 að Heiðarvegi 9. Telfdar verða 9 Umferðir með tímamörkunum 5 mínútur og 3 sekúndur fyrir hvern leik. Mótið verður reiknað til stiga.
Mótið er opið öllum sem áhuga hafa, skráning í tölvupósti á [email protected] eða mæta tímanlega á staðinn til að skrá sig.

Chess-Results Server Chess-results.com - Skákþing Vestmannaeyja 2024 28/02/2024

Skákþing Vestmannaeyja 2024 er nú á lokametrunum og það fer heldur betur að draga til tíðinda. Þáttakendur að þessu sinni eru 12 og fyrirkomulagið er þannig að allir tefla við alla og eru tímamörkin 60 mínútur á skák og 30 sekúndur aukalega fyrir hvern leik. Keppnin hefur verið gríðarlega jöfn og spennandi og er staðan þannig fyrir síðustu umferðina að tveir eru efstir og jafnir með 8 vinninga úr 10 skákum og á eftir þeim eru þrír jafnir með 7 vinninga. Staðan er þessi:

Hallgrímur Steinsson 8 vinningar
Benedikt Baldursson 8 vinningar
Sæþór Ingi Sæmundarson 7 vinningar
Arnar Sigurmundsson 7 vinningar
Sigurjón Þorkelsson 7 vinningar
Águst Ómar Einarsson 5½ vinningur
Guðgeir Jónsson 5 ½ vinningur
Karl Gauti Hjaltason 4 vinningar
Þórarinn Ingi Ólafsson 3½ vinningur
Arnar Bogi Andersen 3 vinningar
Gísli Eiríksson 1½ vinningur
Sæmundur Einarsson 0 vinningar

Í kvöld fer fram lokaumferðin í húsnæði Taflfélagsins að Heiðarvegi og þá eru þessar viðureignir

Karl Gauti - Hallgrímur
Sæþór Ingi - Arnar Bogi
Guðgeir - Benedikt
Sæmundur - Þórarinn Ingi
Ágúst Ómar - Arnar
Gísli - Sigurjón

Þegar úrslit eru ljós verður svo krýndur Skákmeistari Vestmannaeyja. Ef að tveir eða fleiri eru efstir og jafnir eftir umferðina verða tefldar 15 mínútna skákir til úrslita þar sem dregið verður um lit fyrir fyrstu viðureign.

Hægt er að sjá öll úrslit úr einstökum viðureignum hér:

Chess-Results Server Chess-results.com - Skákþing Vestmannaeyja 2024 Chess-Results.com is a powerful and dedicated server only for chess-results. The tournament archive of chess-results.com contains more than 40.000 tournaments from around the world.

Photos from Taflfélag Vestmannaeyja's post 09/09/2023

Skemmtilegur dagur hja okkur í Taflfélaginu, héldum atskákmót og fengum góðan hóp keppenda ofan af landi í blíðunni í dag (alltaf blíða í Eyjum)

Úrslit urðu þau að Vignir Vatnar og Helgi Áss urðu efstir jafnir á stigum í 1-2 sæti, Vignir þó ofar á tie break, Helgi Ólafsson í þriðja sæti. Í unglingaflokki varð Benedikt Þórisson hlutskarpastur og Adam Ómarsson í 2. sæti en þrír jafnir í 3-5. sæti þeir Gunnar Erik, Theodór og Sæþór

Þökkum fyrir stórskemmtilegan dag!

07/07/2023

Góðan dag, Taflfélag Vestmannaeyja verður með opið hús og teknar nokkrar skákir í tilefni af 50 ára goslokum. Opið verður í dag föstudag frá kl 16-18 og á morgun laugardag frá kl 12-15. Allir velkomnir!

23/01/2023

Skákþing Vestmannaeyja 2023 að hefjast.

Skráningarfrestur til 19:00 á miðvikudag mótið hefst svo með fyrstu umferð á fimmtudagskvöld.

Hvet alla sem hafa áhuga að hafa samband eða skrá sig til leiks!

11/11/2022

Laugardagsopnanirnar halda áfram 😊 N.k. laugardag, þann 12. nóv verður Taflfélag Vestmannaeyja hjá okkur 👏 Missið ekki af þessu!

10/05/2022

Skákþingi Vestmannaeyja 2022 sem hófst 31. mars lauk 8. maí í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9.

Keppendur á mótinu voru 10 talsins á öllum aldri og var 65 ára aldursmunur á yngsta og elstu keppendum. Þetta sýnir að skákin spyr ekki um aldur þeirra sem tefla og taka þátt í skákmótum. Tefldar voru níu umferðir á skákþinginu, umhugsunartími á skák var 90 mín. á skák á hvorn keppanda + 30 sek. á leik.

Fljótlega varð ljóst að keppnin um efsta sætið stóð á milli Sigurjóns Þorkelssonar, skákmeistara Vm. 2021 og til margra ára og Hallgríms Steinssonar, en Halli varð skákmeistari Vm. 2019. Þeir mættust í síðustu skák mótsins sem tefld var á sunnudagskvöld. Fyrir skákina var Hallgrímur kominn með fullt hús, 8 vinninga og Sigurjón með 7,5 vinning. Skákinni lauk með jafntefli eftir snarpa viðureign og varð því Hallgrímur Steinsson, Skákmeistari Vestmannaeyja 2022 með 8,5 vinninga. Sigurjón Þorkelsson varð í 2. sæti með 8 vinninga og síðan komu jafnir í 3.-5 sæti, sá yngsti og elstu keppendur á mótinu, þeir Þórarinn Ingi Ólafsson, Sæþór Ingi Sæmundarson og Arnar Sigurmundsson allir með 5 vinninga. Í 6. sæti Guðgeir Jónsson með 4,5 vinning og í sjöunda sæti Stefán Gíslason með 4 vinninga. Mótsstjóri var Sæmundur Einarsson og var öll framkvæmd mótsins til fyrirmyndar. Skákkennslu ungmenna í GRV í skákheimili TV á vorönn 2022 er langt komin og lýkur í næstu viku enda komið sumar.

Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga | Eyjafréttir 24/03/2022

Fréttir af Íslandsmóti skákfélaga, skákkennsla og Skákþing Vestmannaeyja framundan.

Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga | Eyjafréttir Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga 18. mars 2022 Facebook Twitter Email Print Sæmundur Einarsson, tekur við verðlaunabikar skáksveitar TV en félagið varð í 2. sæti í 1. deild á Íslandsmóti skákfélaga 6. mars sl. Taflfélag Vestmannaeyja var...

07/10/2021

Skák í kvöld kl 19:30 að Heiðarvegi 9.

Farið verður yfir nokkrar skákir frá Íslandsmóti Taflfélaga þar sem fyrri hlutinn fór fram um helgina og okkar liðsmenn stóðu sig með stakri prýði og þökkum við liðsstjórunum sérstaklega fyrir sitt framlag.
TV stendur vel að vígi þar og er í efsta sæti 1. deildar með A-liðið, 5. sæti 3ju deildar með B- liðið og 11. sæti í 4. deild með C-liðið.

Sjáumst hress í kvöld!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address

Heiðarvegur 9
Vestmannaeyjar
900