Ég sérhæfi mig í styrktarþjálfun einstaklinga með stoðkerfisvandamál, styrktarþjálfun ungra íþróttamanna og ungmenna með einhverfu.
👉👉👉👉 Ég er með fría prufutíma í Sporthúsinu Kópavogi á þriðjudögum og fimmtudögum milli 07:00 - 11:00👈👈👈👈
" Ég get hiklaust mælt með Villa þar sem hann hefur tekið við skjólstæðingum úr grunn endurhæfingu hjá mér. Hann hefur hannað viðeigandi þjálfunaráætlanir og sinnt skjólstæðingum með mjög góðum árangri.
Það er greinilegt að þekkingargrunnur hans og reynsla virkar vel við framhaldsuppbyggingu þar sem sértæk og almenn styrktarþjálfun er í forgrunni". - Halldór Víglundsson
Sjúkraþjálfari, B.Sc. / Master of Musculoskeletal PT / MT
Villi einkaþjálfari í Sporthúsinu
Einkaþjálfun þar sem þitt öryggi og heilsa er sett í forgang. Síðan er þetta líka geðveikt gaman :). síminn er 6900904
VITNISBURÐUR
"Ég byrjaði að æfa hjá villa til að koma mér í stand því ég stefndi á að fara í þrekpróf lögreglunnar. Ég æfði hjá villa í rúmlega hálft ár. Hann pushaði mig eins og ég hef aldrei upplifað áður og ég komst í besta form sem ég hef nokkurn tíman verið í. Einnig pælir hann verulega í hugsunarhættinum þínum og hjálpar manni að setja sér raunhæf markmið. Villi kom mér í líkamlegt og andlegt stand og er ein stærsta ástæðan afhverju ég náði þessu prófi. Ég mæli hiklaust með villa sem þjálfara ef maður á sér markmið sem virðast ómöguleg." - Kári Steinn Benediktsson
sendu mér skilaboð strax í dag ef þú vilt vita meira um einkaþjálfunina hjá mér
25/05/2021
Lítil skref
Lykilinn af árangri
Ég hef hjálpað fólki að taka sín fyrstu skref í áttina að bættri heilsu síðan 2012. Fólk hefur komið til mín með allskonar mismunandi stoðkerfisverki og hin ýmsu veikindi. Oft þegar fólk kemur til mín er það komið með nóg af sjálfum sér og það vill hörku. Þau vilja æfa á hverjum degi taka ýkt mataræði sem það las um á netinu og hver einasta æfing er full af neikvæðu sjálfstali og hver einustu mistök eru endi alheimsins. Það er leiðinlegt að segja það en fólk með þetta hugarfar nær aldrei langvarandi árangri. Ástæðan er einföld það sér alltaf fyrir sér lokamarkmiðið sem er jafnvel 1-2 ár fyrir framan þau. Ef við erum stanslaust að horfa bara á lokamarkmiðið og jafnvel að bera okkur saman við aðra þá verður allt ferlið svo niðurdrepandi og erfitt.
Ótrúlegt en satt þá er sama hvort við erum einkaþjálfarar, afreksíþróttamenn, í yfirþyngd eða með mikla stoðkerfisverki þá er uppskriftin að árangri alltaf sú sama:
1. Viðurkenndu að það sem þú ert að gera sé ekki að virka fyrir þig og vertu tilbúin að gera breytingar.
2. Ákveddu hvað lokamarkmiðið þitt er og sjáðu fyrir þér hvernig lífið þitt mun vera eftir að þú nærð markmiðunum þínum.
3. Finndu þitt fyrsta skref í átt að markmiðinu þínu og byrjaðu strax. Þeim mun lengur sem þú bíður þeim mun erfiðara verður að byrja.
4. Ekki vera hrædd/ur við að fá hjálp. Þegar ég sjálfur set mér markmið um það að bæta á mig vöðvamassa eða skera niður fitu eða hvað sem er þá ræð ég mér þjálfara.
Sendu mér skilaboð og fáðu hjálp við að taka þitt fyrsta skref í áttina að þínu markmiði.
Langar þig að losna við vöðvabólgu í herðum og hálsi, viltu rétta úr þér og bæta líkamsstöðu. Þá er prógrammið Ganbatte Upper Cross fyrir þig. Sendu mér skilaboð og fáðu að vita meira.
Ekki láta neitt stoppa þig frá því að verða sterkari útgáfa af sjálfum þér. Hafðu samband í tölvupósti [email protected] og fáðu fría ráðgjöf
10/08/2020
Ert þú með vöðvabólgu og langar að losna við hana ?
Vegna mikillar tölvuvinnu og símanotkun er vöðvabólga í hálsi og öxlum orðið gríðarlega algengt vandamál. Fólk er rosalega oft bara að teygja eða ennþá verra að teygja vitlaust á hálsinum og losnar aldrei við bólgurnar og verkina. Í nýja æfingakerfinu mínu leggjum við áherslu á að liðka og styrkja efra bakið og hálsin og losnum þannig við vöðvabólguna og leiðréttum líkamsstöðuna.
hægt er að gera allar mikilvægustu æfingarnar í kerfinu heima
Ætlar þú að láta tímaskort stoppa þig frá því að ná þínum markmiðum ?
Það er mjög erfitt að láta láta vinnuna, fjölskylduna, félagslífið og ræktina allt passa saman. Mín ráðlegging er sú að byrja smátt við græðum töluvert meira á því að mæta reglulega og taka stuttar æfingar heldur en að mæta sjaldan og ætla að sigra heiminn í hvert skipti. Nýja æfingakerfið mitt "Ganbatte30min" er byggt upp svona
styrktaræfingar 3x í viku
hver styrktaræfing er 18 sett eða u.þ.b 30-40mín
lagt er áherslu á stórar æfingar til þess að fá sem mest útúr þessum stuttu æfingum
við leggjum mikla áherslu á tog hreyfingar og efra bak til þess að laga líkamsstöðu
2x í viku eru heimateygjur sem vinna á helstu stirðleikum sem fólk er með í dag
sendu mér skilaboð eða tölvupóst ([email protected]) fyrstu 5 til þess að hafa samband fá æfingakerfið FRÍTT
22/04/2020
GanbatteHips æfingakerfið er hannað til að styrkja mjóbakið og nárann. ef þú vilt vita meira sendu mér tölvupóst á [email protected] eða einkaskilaboð á facebook
4 vikna æfingakerfi
3 æfingar í viku
og hægt að gera allar æfingar heima
VITNISBURÐUR
Alltaf gaman að fá jákvæða umsögn. ef að þig vantar hjálp í ræktini hafðu endilega samband og fáðu frítt viðtal og fría ráðgjöf: Vilhjá[email protected]
" Í desember 2018 greindist ég með brjósklos í mjóbaki, þegar ég sá fram á margra mánaða bið eftir að komast að hjá sjúkraþjálfara ákvað ég að tala við Villa Þór, einkaþjálfara í Sporthúsinu. Í byrjun janúar mætti ég til hans, ástandið á mér var þannig að ég g*t varla keyrt á æfingar – verkurinn var það mikill. Villi Þór vissi nákvæmlega hvað hann var að gera þegar ég mætti með mína baksögu, ég var aldrei verri eftir tímana og til að gera langa sögu stutta þá var ég laus við alla verki og dofa tilfinningu strax á vormánuðum. Fyrir utan að bókstaflega laga brjósklosið með réttum æfingum þá tókst honum að breyta hugarfari mínu með bættum lífsstíl. Ég er mun meðvitaðri um hvernig ég á að hreyfa mig og ég er búin að sætta mig við að hreyfing verður að vera hluti af daglegu lífi mínu." - Helga Halldórsdóttir
Langar þig að byrja í líkamsrækt, en veist ekki hvar þú átt að byrja vegna stoðkerfisverkja. Hafðu samband og fáðu frítt viðtal og fría ráðgjöf: [email protected]
"Ég get hiklaust mælt með Villa þar sem hann hefur tekið við skjólstæðingum úr grunn endurhæfingu hjá mér. Hann hefur hannað viðeigandi þjálfunaráætlanir og sinnt skjólstæðingum með mjög góðum árangri.
Það er greinilegt að þekkingargrunnur hans og reynsla virkar vel við framhaldsuppbyggingu þar sem sértæk og almenn styrktarþjálfun er í forgrunni" - Halldór Víglundsson
Sjúkraþjálfari, B.Sc. / Master of Musculoskeletal PT / MT
Sérfræðingur í greiningu og meðferð stoðkerfis MT