Vestri - Knattspyrna

Vestri - Knattspyrna

Share

Meistaraflokkur Vestra spilar leiki sína á Kerecisvellinum, Torfnesi. Árið 2026 leikur
Mfl. kk í Lengjudeildinni og
Mfl. Kvk í 2. deild Kvenna

Photos from Vestri - Knattspyrna's post 05/08/2026

Útileikir um helgina⚽️

Bæði meistaraflokkslið Vestra spila á laugardag kl.14:00. Stelpurnar fara á Vopnafjörð og spila þar við Einherja. Þetta er fyrsti leikur þeirra í úrslitakeppni um laust sæti í 1.deild kvenna.

Strákarnir mæta Njarðvík í leið sinni að reyna ná inn í úrslitakeppni um laust sæti í efstu deild. Liðin í sætum 2-5 keppa um það.

Báðir leikirnir í beinni á Livey!

Áfram Vestri💙

02/08/2026

Eru ekki allir komnir heim?

Það er alvöru skemmtun á Kerecisvellinum á morgun kl. 14:00. Við fáum Gróttu í heimsókn og strákarnir eru staðráðnir í að gera vel það sem eftir lifir tímabils.

Sjàumst á vellinum á morgun💙

Photos from Vestri - Knattspyrna's post 31/07/2026

Devyn Payne og Marcos Campos til Vestra💙

Varnarmaðurinn Devyn Payne og miðjumaðurinn Marcos Campos hafa gert samning við Vestra út árið 2027.

Devyn Payne er 21 árs hafsent sem kemur úr unglingastarfi ADO Den Haag í Hollandi. Hann er 1.92m á hæð og mun koma til með styrkja varnarleik liðsins.

Marcos Campos er 19 ára miðjumaður sem kemur úr unglingastarfi Getafe á Spáni. Marcos er 1.80m á hæð og afar leikinn miðjumaður.

Leikmennirnir eru mættir vestur og tilbúnir til að koma í hóp liðsins fyrir leikinn gegn Gróttu á mánudaginn kl.14:00. Við bjóðum þá velkomna vestur💙

31/07/2026

Takk öll fyrir frábæran stuðning í júlí💙 Lífið heldur svo sannarlega áfram🫶🏻

Næsti leikur kemur nú strax á mánudaginn kl.14:00 á Kerecisvellinum gegn Gróttu. Hlökkum til að sjá ykkur heima í blíðunni, sjáumst á vellinum.

Áfram Vestri💙

30/07/2026

Það er leikdagur💪

Strákarnir mæta til Reykjavíkur í dag og mæta FK RFS frá Lettlandi í seinni leik liðanna kl. 18:00.

Við erum þremur mörkum undir í einvíginu en það getur að sjálfsögðu allt gerst. Sjáumst í blíðunni í Laugardalnum í kvöld.

Áfram Vestri💙

https://stubb.is/events/o05BKb

28/07/2026

Við minnum á leikinn og miðasöluna gegn RFS á fimmtudaginn kl. 18:00.

Sjáumst á Þróttarvellinum💙

https://stubb.is/events/o05BKb

26/07/2026

Það er komið að því!

Seinni leikur okkar gegn FK RFS frá Lettlandi verður á fimmtudaginn kemur kl. 18:00 á heimavelli Þróttara í Laugardalnum. Miðasala er hafin inn á Stubb:

https://stubb.is/events/o05BKb

24/07/2026

Síðasti leikur í deild⚽️

Stelpurnar mæta Álftanesi á útivelli á morgun kl.14:00. Þetta er síðasti leikurinn í deildinni áður en úrslitakeppnin hefst. Stelpurnar eru ósigraðar með sjö sigurleiki og þrjú jafntefli.

Áfram Vestri💙

23/07/2026

Thanks for the amazing support today💪

Photos from Vestri - Knattspyrna's post 23/07/2026

Frábær ferð á enda þrátt fyrir úrslitin. Leikmenn Vestra þakka kærlega fyrir frábæran stuðning í dag úr stúkunni!
Riga tók vel á móti okkur og aðstæður hjá FK RFS upp á tíu. Hér smá sjá myndir frá leiknum í dag og við minnum á heimaleikinn okkar eftir viku í Laugardalnum. Sjáumst þar!

Áfram Vestri💙

Myndir: Gints Ivuskans

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Kerecisvöllurinn
Ísafjörður
400