Hlaupahátíð á Vestfjörðum

Hlaupahátíð á Vestfjörðum

Share

Hlaupahátíð á Vestfjörðum. 17.-20. júlí 2025. Jafnframt er hægt að taka þátt í þríþraut sem er sjósund, Svalvogahjólreiðar og 24 km Vesturgötuhlaup.

Hlaupahátíðin 2015 fer fram dagana 17-19 júlí og verður dagskráin eins og undanfarin ár. Óshlíðarhlaup og sjósund á föstudegi, Svalvogahjólreiðar, skemmtihjólreiðar og skemmtiskokk á laugardegi og Vesturgötuhlaup á sunnudegi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar, hlauphatid.is en þar verður einnig hægt að skrá sig. Bendum einnig á síðuna westfjords.is en þar er hægt að finna upplýsingar um gistingu og aðra afþreyingu meðan ferðast er um Vestfirði

04/07/2026

Núna í ár fagnar Vesturgatan 20 ára afmæli sínu en þetta hlaup fór fyrst fram sumarið 2006. Það varð síðar, ásamt Óshlíðarhlaupinu, hryggjarstykkið í Hlaupahátíð á Vestfjörðum.

Einn af stofnendum Vesturgötunnar var Ingvi Gunnarsson, Ísfirðingur sem lengst af hefur verið búsettur syðra en ætíð sýnt heimahögunum mikla ræktarsemi. Ekki alls fyrir löngu greindist Ingvi með krabbamein í heila og hefur síðan verið í meðferð við meininu bæði hérlendis og erlendis. Það er auðvitað gríðarlega krefjandi að fá svona verkefni upp í hendurnar, verkefni sem enginn myndi kjósa sér að verða þátttakandi í. Í viðbót við allt annað sem Ingvi og fjölskylda hans þurfa að ganga í gegnum þessi misserin þá er svona barátta óhemju dýr.

Vinir og velunnarar Ingva hafa stofnað bakvarðasveit til stuðnings honum og fjölskyldu hans. Hlaupahátíð á Vestfjörðum ætlar að styrkja bakvarðasveitina með því að láta 10% af öllum skráningargjöldum renna til hennar. Ef einhver óskar eftir því að styrkja bakvarðasveitinga enn frekar þá er hægt að gera það á www.netskraning.is

Photos from Hlaupahátíð á Vestfjörðum's post 24/06/2026
04/05/2026

Fyrsta útiæfing vorsins hjá Riddurum Rósu.
Þriðjudaginn 5. maí ætlum við að starta hlaupasumrinu með æfingu frá Torfnesi kl 17:15.

Allir eru hjartanlega velkomnir og bjóðum við nýliða og þá sem vilja byrja hlaupaferilinn aftur sérrstaklega velkomin.

Við þjálfum undir prógrami frá mjög reyndum þjálfara undir leiðsögn meðlima í RR. Prógramið er sem fyrr þrískipt og miðar að því að allir geti tekið þátt, sama hvert geturstigið er.

Endilega breiðið út fagnaðarerindið og bjóðið sem flestum með ykkur.

Sjáumst á Þriðjudaginn

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Ísafjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Seljalandsvegur 75
Ísafjörður
400