Fjallahjólaæfingarnar byrja mánudaginn 18. maí!
Ertu með krakka eða ungling sem vill ná betri tökum á brautunum? Nú styttist í fyrstu æfingu sumarsins!
Við leggjum áherslu á tækni, öryggi og fyrst og fremst gleði á hjólinu.
Við bjóðum upp á þrjá hópa svo allir fái þjálfun við hæfi:
6 – 8 ára (Byrjendur)
Hér leikum við okkur og byggjum upp grunnfærni og jafnvægi. Fullkomið fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjallahjólreiðum.
Mánudaga og miðvikudaga kl: 16:45 - 17:30
9 – 13 ára
Hér förum við dýpra í tæknina, lærum að lesa í landslagið og aukum sjálfstraustið í fjölbreyttum brautum.
Mánudaga og miðvikudaga kl 17:30 - 18:30
Annan hvorn laugardag frá 09:00 - 11:00
14 – 18 ára
Krefjandi og skemmtilegar æfingar þar sem farið er í undirstöðuatriði fyrir lengra komna.
Mánudaga og miðvikudaga kl 18:30 - 19:30
Annan hvorn laugardag 11:00 - 12:30
🛡️ Öryggið í fyrirrúmi:
Hjálmaskylda (opinn eða full-face).
Hjólahanskar eru nauðsynlegir.
Við mælum sterklega með hné- og olnbogahlífum.
Muna eftir vatnsbrúsa!
Hvenær: Fyrsta æfing er mánudaginn 18. maí.
Þjálfari: Þorgils Óttarr Erlingsson
Skráning: Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram í gegnum Sportabler. https://www.abler.io/shop/vestri/hjolreidadeild
Hlökkum til að sjá ykkur í brautunum í sumar!
Vestri hjólreiðar
Hér birtast fréttir og fróðleikur um starfsemi Hjólreiðadeildar Vestra.
03/04/2026
Vetrarhjólaskemmtun Vestra – Laugardaginn 4. apríl 🚲❄️
Við hjá Vestra hvetjum alla fjallahjólara til að fjölmenna í skemmtilega uppákomu!
Dagskráin:
Kl. 16:00: Mæting á hjólaplanið við pumpubrautina. Rafhjólarar hjóla þaðan upp á Dal en hinir fá skutl upp að Seljalandsdalsskála.
Kl. 16:30: Hjólað frá Seljalandsdal og upp troðna braut alla leið á topp Sandfellslyftu.
Kl. 17:10: Sjálft fjallabrunið hefst þegar skíðasvæðið hefur lokað. Hjólað verður niður eftir Sneiðingnum að lyftuhúsi Miðfellslyftunnar og þaðan alla leið niður að Tungudalsskála.
Mikilvægt:
Fyrir hverja: Alla hjólara á fjallahjólum! Því fleiri, því skemmtilegra.
Börn: Verða að vera í fylgd forráðamanna og vera vanir fjallahjólarar.
Öryggi: Munið eftir viðeigandi hlífðarbúnaði.
Keppni: Hugsanlega verður boðið upp á tímatöku fyrir þá sem vilja mæla sig við klukkuna, en það er alls ekki nauðsynlegt – aðalatriðið er að hafa gaman saman.
Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessu hressa fjallabruni. Fylgist vel með hér á síðunni ef veðurspáin breytist.
Sjáumst hress í brekkunni! 🏔️🤘
Fórum prufuferð í dag. Vorum á nelgdum og ónelgdum dekkjum. Ekkert mál. Auðvitað bara því grófara því betra.
Þetta var geggjað gaman!
Aftur á Laugardaginn. Vonum að sjá sem flesta.
24/02/2026
https://www.vestri.is/hjolreidar/Adalfundur_Hjolreidadeild_Vestra/
Aðalfundur Hjólreiðadeild Vestra Félagsheimilið í Hnífsdal 4.mars 2026 kl 17:00 Dagskrá 1. Fundarsetning. Fundarritari og fundarstjóri kosnir. 2. Formaður gerir grein fyrir starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 3. Gjaldkeri deildar leggur fram til samþykktar og gerir grein
09/01/2026
Spennandi!
Drög að mótaskrá fyrir 2026 | Hjólreiðasamband Íslands Fyrstu drög mótaskrár fyrir sumarið 2026 frá Mótanefnd HRÍ eru hér komin, með fyrirvara um hugsanlegar breytingar á mótum og tímasetningum. Einnig vantar hér dagskrá CX móta n.k. haust.
16/12/2025
24/09/2025
Takk fyrir komuna í hjólagarðinn í dag í tilefni Íþróttaviku Evrópu 2025. Ungir sem aldnir skemmu sér vel í þrautum og stökkvum.
23/09/2025
Hjólreiðadeild Vestra tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu! Öll velkomin í hjólagarðinn miðvikudaginn 24. september! Þorgils þjálfari vestra og Tyler í Fjord Hub taka vel á móti ykkur.
11/09/2025
Í fréttum er þetta helst.
Hjólreiðasamband Íslands: Hæfileikabúðir HRÍ 2025 voru á Ísafirði Landsliðs- og afreksdeild Hjólreiðasambands Íslands boðar árlega til hæfileikabúða fyrir efnilegasta hjólreiðafólk landsins.
09/09/2025
Keppni fyrir unga fólkið, um að gera að skrá sem fyrst, þetta verður stuð!
Ungdúro HFR - Bikarmót | Hjólreiðasamband Íslands Vefur Hjólreiðasambands Íslands (HRÍ). Allt um keppnishjólreiðar á Íslandi, dagskrá, úrslit og fréttir.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Ísafjörður