19/04/2026
🔔Höldum áfram með þjálfarakynningar 🔔
Regína Huld Guðbjarnadóttir. Regína kennir aðallega Hot Fit í heita salnum okkar, þar sem reynir á bæði þol, styrk og liðleika. Hún hefur einstakt lag á að skapa góða stemmingu í tímum og fólk fer undantekningarlaust út aðeins sterkara, í betra skapi og tilbúnara til að takast á við daginn eftir tímann.
Í grunninn er Regína hárgreiðslukona og það má segja að hún vinni jafnt með hár og heilsu, með sama auga fyrir smáatriðum, flæði og því að láta hlutina ganga upp. Hún er einstaklega snögg að lesa hópinn, grípa stemninguna og halda góðu tempói. Við mælum eindregið með að prófa tíma hjá henni, en hafiði í huga, að það getur verið erfitt að hætta þegar maður hefur prófað ❤️🔥❤️🔥
09/04/2026
Unglinganámskeið byrjar í næstu viku 🥳 Styrkur, teygjur, þrek og góð stemning í boði 💪 skráning er hafin á abler! www.abler.io/shop/stodin
31/03/2026
Höldum áfram að kynna þjálfarana okkar ❤ Kolbrún Fjóla Ármúla Arnarsdóttir er næst, ketilbjölluþjálfarinn okkar sem getur kennt allt og meira en það!
"Ég er íþrótta- og heilsufræðingur sem kennir ketilbjöllur og það sem þarf hverju sinni ef útí það er farið (komdu með hugmynd og kannski náum við að grilla eitthvað saman 😊) . Tónlistin, tempóið og stemningin skiptir mig miklu máli, og markmiðið er alltaf að skapa tíma sem eru bæði krefjandi og skemmtilegir. Hreyfing á að gefa orku — ekki taka hana.“
29/03/2026
Skráning er hafin í páskapíluna okkar - Pílumót Stöðvarinnar 1. apríl kl 19:00. Hlekkur á skráningu í fyrstu athugasemd 🎯🎯🎯 Mikil stemning í fyrra og ríkjandi Stöðvarmeistari reynir hugsanlega að verja titilinn?
29/03/2026
PÁSKAR 2026 🐣🐣🐣 Allir tímar komnir á Abler og það er einnig hægt að kaupa páskapassan þar. Hlökkum til að sjá ykkur!
18/03/2026
Þjálfarakynningarnar okkar halda áfram. Við kynnum nú hana Hönnu Gerði Jónsdóttur, hún kennir aðallega heita styrktartíma en leysir aðra þjálfara einnig af með allskonar æfingar 🥰
"Hreyfing er eitt það besta sem þú getur gert fyrir þinn líkama og sál! Ég þjálfa HotFit og tek stundum WOD (vonandi eitthvað meira framundan). Í mínum tímum legg ég áherslu á að allir geti verið með, æfingar við hæfi fyrir hvern og einn og aðstoða og leiðrétti þegar á við.
Að þjálfa duglega fólkið í Stöðinni gefur mér svo mikla ástríðu fyrir starfinu og það er ótrúlega gefandi að sjá framfarir, gleðina og kraftinn sem myndast í tímunum. Fyrir mér snýst þetta ekki bara um æfinguna, heldur stuðninginn og að byggja upp sjálfstraustið. "
16/03/2026
Þjálfarakynning - næstu vikur ætlum við að kynna fólkið sem stendur þjálfaravaktina í Stöðinni 🙌🏻💪🏻 Næst á blaði er Aníta Ólafsdóttir, spinning og tabata þjálfari 🚴🏼♀️
"Ég þjálfa spinning og tabata – blanda af krafti, tempoi og góðri stemningu.
Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að þjálfa og skapa góða stemningu í tímunum. Í mínum tímum er góð tónlist, smá húmor og nóg af orku. Markmiðið er ekki bara að svitna heldur líka að hafa gaman😊"
15/03/2026
Þjálfarakynning - næstu vikur ætlum við að kynna fólkið sem stendur þjálfaravaktina í Stöðinni 🙌🏻💪🏻 Við byrjum á henni Guðfinnu Hreiðarsdóttur, spinning þjálfara 🚴🏼♀️
"Hreyfing þarf að vera fjölbreytt og skemmtileg því annars ber sófinn sigur af hólmi fyrr en síðar. Lykilinn að árangri eru alhliða æfingar fyrir allan líkamann þar sem unnið er jafnt með þol og styrk. Mikilvægast er finna hreyfingu sem þú nýtur og getur stundað reglulega. Að mæta í spinning er dálítið eins og að vera kominn á dansgólfið í næturklúbbi, kraftmikil tónlist og diskóljós í myrkum sal þar sem gerðar eru þol- og styrktaræfingar sem tryggja hita, svita og góða brennslu. Spinning gerir líka sálinni gott þar sem hreyfing við tónlist losar um endorfín sem stuðlar að andlegri vellíðan og dregur úr streitu og kvíða. Snilldin við spinning er líka að það hentar jafnt byrjendum sem reynsluboltum því hver og einn stillir álagið eftir eigin getu. Ekki vera hrædd við að prófa, allir eru einhvern tímann byrjendur. Bara mæta í Stöðina og njóta!”
10/03/2026
Sjálfsvarnarnámskeið fyrir stelpur 21. mars 🤩🤩 Skráning er hafin á abler ➡️➡️➡️ abler.io/shop/stodin 💙