03/08/2026
Minningamót GFB fór fram í dag mánudaginn 3.ágúst.
Mótið í ár var fullt en 52 kylfingar mættu til leiks.
Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla og kvennaflokki, besta skor og einnig nándar verðlaun í báðum flokkum.
Að móti loknu var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð sem félagskonur sáu um.
Úrslit
Karlaflokkur
1.sæti Hjörtur Sigurðsson GA 37 punktar
2. sæti Sturla Sigmundsson GFB 36 punktar
3. sæti Óli Björn Bjarkason GKG 35 punktar
Kvennaflokkur
1.sæti Birgitta Guðjónsdóttir GA 39 punktar
2. sæti Marsibil Sigurðardóttir GHD 38 punktar
3. sæti Björg Traustadóttir GFB 36 punktur
Besta skor
Óli Björn Bjarkason GKG 65 högg
Næst holu 2/11
Sturla Sigmundsson GFB 53 cm
Birgitta Guðjónsdóttir GA 33 cm
Mótanefnd GFB þakkar styrktaraðilum fyrir.
Skógarböðin
Síldarkaffi Siglufirði
Fiskbúð Fjallabyggðar
Hvanndalir
Kaldi
Majó
Næsta mót sem er Opna Ísfélagsmótið sem verður haldið sunnudaginn 9 ágúst.
19/07/2026
Í gær eignaðist félagið Íslandsmeistara! 🏆
Við erum afar stolt af okkar manni, Sigurbirni Þorgeirssyni, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari. Með sigrinum tryggði Sigurbjörn sér jafnframt sæti í íslenska landsliðinu eldri kylfinga.
Innilegar hamingjuóskir með glæsilegan árangur, Bjössi! 👏⛳
Frétt golf.is er í athugasemd hér að neðan
https://www.golf.is/thordis-sigurbjorn-gudrun-og-gauti-islandsmeistarar-eldri-kylfinga-2026/
01/07/2026
Hola í höggi ⛳️
Ármann Viðar Sigurðsson félagi okkar í GFB fór holu í höggi nú í kvöld í Cutter & Buck mótaröðinni.
Draumahöggið kom á fjórðu holu Skeggjabrekkuvallar og notaði Ármann pitching wedge við höggið.⛳️
08/06/2026
Skeggjabrekkuvöllur opnar í dag 8. júní ⛳
Við hvetjum alla kylfinga til að nýta sér rástímaskráningu í GolfBox og muna að staðfesta mætingu í rástíma þegar leikur hefst.
Völlurinn lítur vel út en er enn viðkvæmur á köflum þar sem ekki er orðið alveg þurrt. Við biðjum því alla að ganga vel um völlinn og sýna aðgát.
Við hlökkum til að sjá ykkur á vellinum.
Gleðilegt golfsumar! ☀️🏌️♀️🏌️♂️
25/05/2026
Það gerist hratt fyrir norðan 😄⛳
Þessar myndir eru teknar með aðeins s*x daga millibili á Skeggjabrekkuvelli.
Fyrri myndin er frá 18. maí, töluverður snjór eftir páskahretið og vorhvellinn.
Seinni myndin er tekin í gær, 24. maí — og nú er völlurinn nánast allur kominn undan vetri.
Það styttist í golfsumarið í Ólafsfirði 💚
24/05/2026
Ný heimasíða GFB ⛳️
Á síðunni má meðal annars finna upplýsingar um:
• Skeggjabrekkuvöll
• mót
• verðskrá
• rástíma og Golfbox
Við hlökkum til golfsumarsins.
Golfklúbbur Fjallabyggðar
Skráðu þig inn