23/09/2026
Heilsuvikan byrjuð og við hvetjum alla til að taka þátt, hreyfa sig, borða hollt, hafa gaman og ekki gleyma að brosa 🩷
Hlaupahópurinn verður með hlaup og labb í dag frá íþróttahúsinu kl. 17
Skemmtikvöld með Jóni Pétri dansara kl. 20 í íþróttahúsinu
Sundleikfimi hjá Dívunum
Ávextir í boði fyrir iðkenndur eftir æfingu
Viðburður hjá Heilsumiðstöðinni Lind
Frítt í sund 🎉
Frábær til hjá fyrirtækjum
Áfram við öll 💪👏🩷🫶
Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23.-30. september og heldur heilsuviku Snæfellsbæjar í níunda skipti. Vikan er haldin á sama tíma og íþróttavika Evrópu.
Í heilsuvikunni er lögð áhersla á að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og standa vonir til að allir geti fundið viðburð við hæfi eða sem vekur áhuga.
Jafnframt býður Snæfellsbæjar frítt í sund alla vikuna og þá verða áhugaverðir fyrirlestrar og sérfræðingar á svæðinu sem vert er að kynna sér.
🤝 Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar
👏 UMF Víkingur
💪 CF SNB
🏋 Sólarsport líkamsrækt
🐕 Hundahornið
💯 Bowen Anna
+ Hlaupahópur Snæfellsbæjar, Jón Pétur, eldriborgarar og allir hinir sem taka þátt í vikunni fyrir íbúa.
Hér að neðan má sjá glæsilega dagskrá íþróttaviku Evrópu og Snæfellsbæjar árið 2026.
Íbúar eru hvattir til að nýta vikuna vel og skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.
💯🤸👇