Holtið Kitchen Bar

Holtið Kitchen Bar

Share

Fylgist með opnunartímanum hér á fb síðunni. Barinn er opinn á fös og lau til miðnættis.

Höfum að sjálfsögðu opið lengur ef tilefni er til 😉
Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við Karen s. 8975064

07/06/2026

Hér er heimilismatur í hlaðborði alla daga og sumaropnun hefst föstudaginn 12.júní.
Nánar auglýst í vikunni :)

06/06/2026

kl. 12.00 á morgun sunnudag býður Langanesbyggð til eggjaveislu á Holtinu, Þórsveri.

Í boði verða að sjálfsögðu svartfuglsegg, mexíkósk kjúklingasúpa, nýbakað brauð og í þetta sinn verðum við með pepperoni pizzur á kantinum til að kynna nýtt pepperoni og nýja sósu á pizzunum okkar, komdu að smakka.

Verið velkomin

06/06/2026

Í kvöld kl.19 verður Cordon Bleu í hlaðborði.

Barinn opinn frá kl. 21

*Sjómannadagstilboð á barnum til miðnættis;
Stór bjór á 1.200 og allir kokteilar á 2.500

* Pókerborðin eru alltaf til taks
* Alltaf opið í pool og pílu
* BAR matseðillinn alltaf opinn þegar barinn er opinn

Verið velkomin og til hamingju með daginn sjómenn 🥳

01/06/2026

Sumaropnunartíminn hefst 12.júní
Þangað til er um að gera að nýta sér hlaðborðin okkar.

01/06/2026
13/05/2026

KOSNINGAKAFFI
Eins og flestum er kunnugt um verða sveitastjórnarkosningar næstkomandi laugardag 16. maí.
Á Þórshöfn verður kosið á skrifstofu Langanesbyggðar. Kjósendum er boðið að þiggja kaffiveitingar á Holtinu Þórsveri í boði Langanesbyggðar á meðan kjörstaður er opinn kl.10 til 18.

Vonumst til að sem flestir nýti kosningarétt sinn og kíki svo við á Holtinu í kaffi og með því. Á boðstólnum verða vöfflur með rjóma, smurbrauðsterta, skúffukaka og fleira.

Um kvöldið opnar barinn kl.21 og verður kosningavakan á stóra skjánum fram eftir kvöldi / nótt í bland við góða tónlist.

08/05/2026

Barinn verður lokaður í kvöld föstudagskvöld en hér stefnir í hörku stuð annað kvöld þegar Ísfélagið býður á ball!
Þetta getur ekki klikkað!

04/05/2026

Barinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 21.00
Það verður því miður engin veitingahúsahelgi hjá okkur í maí en á barkvöldum er alltaf hægt að panta af BAR matseðlinum; Kjúklingavængir, franskar, naggar, mozzarellastangir, camembert, chili ostakúlur og fjölbreytt úrval af sósum.

Heimilismaturinn þessa vikuna:

Þriðjudagur 5. maí
Hádegi: Fiskibollur, kartöflur, kaldar sósur og rúgbrauð
Kvöld: Lambakótilettur, kartöflur og heit sósa

Miðvikudagur 6. maí
Hádegi: Svínasnitsel, kartöflur og heit sósa / Grjónagrautur og slátur
Kvöld: Kjötbollur, spaghetti og nýbakað brauð

Fimmtudagur 7. maí
Hádegi: Ofnbakaður fiskur, kartöflubátar og brauð
Kvöld: Marineraðar kjúklingabringur og franskar

Föstudagur 8. maí
Hádegi: Hakkbuff, kartöflubátar og brún sósa

Salat og/eða salatbar með öllum máltíðum

Hádegishlaðborðið opnar kl.12 og kl. 19 á kvöldin.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Þórshöfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Langanesvegur 16
Þórshöfn
680

Opening Hours

Monday 12:00 - 13:00
Tuesday 12:00 - 13:00
Wednesday 12:00 - 13:00
Thursday 12:00 - 13:00
Friday 12:00 - 13:00
21:00 - 00:00
Saturday 21:00 - 00:00