Af augljósum ástæðum eftir eldinga sýninguna er ekki æfing í dag
Rafíþróttadeild Þór Þorlákshöfn
Facebook Síða hjá Rafíþróttadeild Þórs sem áætluð er auglýsingum af viðburðum og fréttum
Twitch: https://www.twitch.tv/graenidrekinnesport
25/02/2026
LEIKDAGUR💥Þór Þorlákshöfn keppir við lið KÁK í Counter Strike í deildarkeppni Rafíþróttarsambandsins í kvöld klukkan 20:15. Leikirnir í beinni hér á Youtube. 👇👇 https://www.youtube.com/
23/02/2026
Aðalfundur Rafíþróttadeildar Þórs verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 17:00 í fundarsal íþróttamiðstöðvarinnar á annarri hæð að Hafnarbergi 41, Þorlákshöfn.
Dagskrá:
- Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins
- Önnur mál
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á starfi deildarinnar til þess að mæta.
18/02/2026
LEIKDAGUR💥Þór Þorlákshöfn keppir við lið LMB í Counter Strike í deildarkeppni Rafíþróttarsambandsins í kvöld klukkan 20:15. Leikirnir í beinni hér á Youtube. 👇👇 https://www.youtube.com/
21/01/2026
LEIKDAGUR💥Þór Þorlákshöfn keppir við lið Samviskubit í Counter Strike í deildarkeppni Rafíþróttarsambandsins í kvöld klukkan 21:15. Leikirnir í beinni hér á Youtube. 👇👇
https://www.youtube.com/
14/01/2026
LEIKDAGUR💥Þór Þorlákshöfn keppir við lið Alcoholocaust í Counter Strike í deildarkeppni Rafíþróttasambandsins í kvöld klukkan 20:15. Leikirnir í beinni hér. 👇👇
https://www.twitch.tv/graenidrekinnesport
08/01/2026
🎮Vorönn 2026🎮
Við erum spennt að tilkynna að rafíþróttaæfingar hefjast mánudaginn 12 jan 🗓️
Hér er ný stundatafla sem er örlítið öðruvísi en á síðustu önn, svo endilega skoðið hana vel 👀
Það eru aðeins örfá pláss eftir í hópum, þannig að við mælum með að tryggja sér sæti sem fyrst ⏳
Hlökkum til að sjá bæði nýja og gamla iðkendur á æfingum 🎮
Ef einhverjar spurningar eru endilega sendið skilaboð 💬
Við erum á fullu að vinna í að setja saman þessa önn og allt stefnir í að við byrjum í næstu viku ef allt gengur upp 🚀
Stundatafla með nákvæmum æfingatímum kemur fljótlega ⏰ en skráning á Abler opnar núna á næstu dögum. Það verður því hægt að skrá sig strax til að tryggja sér 100 prósent pláss í hóp 👊 og æfingatímarnir verða svo staðfestir um leið og stundataflan er tilbúin.
Fylgist með Abler! 🤩
27/10/2025
🎃 Gleðilega Þollóween viku! 👻
Rafíþróttadeild Þórs ætlar að taka þátt í hrekkjavökunni með beinni útsendingu af hrollvekjandi leikjum!
🕹️ Föstudaginn 31. október taka Oskar, Elmar og Karl ásamt hryllilegum gestum taka á móti ykkur í beinni útsendingu þar sem þau kafa ofan í hræðilegustu tölvuleiki sem við finnum 🔪🧟♂️
📺 Streymið fer í loftið á 👉 twitch.tv/graenidrekinnesport um kvöldleyti! ekki missa af þessu!
22/10/2025
Þór Þorlákshöfn vinnur sína deild í CS2! 🏆
Við í Rafíþróttadeild Þórs Þorlákshafnar viljum óska CS2-liði okkar innilega til hamingju með að hafa unnið sína deild í deildarkeppni rafíþróttasambandsins.
Lokaleikurinn var sannkallaður úrslitaleikur þar sem allt var undir gegn Undrahundunum, sem höfðu verið jafnir okkur í stigum fyrir leikinn. Liðið sýndi frábæra spilamennsku, liðsheild og baráttuanda – og tryggði sér sigurinn á eftirminnilegan hátt.
Við erum gríðarlega stolt af strákunum og þeirri miklu vinnu sem þeir hafa lagt í tímabilið. Þetta er stór áfangi fyrir rafíþróttadeildina og vonandi aðeins byrjunin á enn fleiri sigrum á komandi misserum.
Áfram Þór! ⚡️
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Hafnaberg 1
Þorlákshöfn
815