HAK - Hnefaleikafélag Akraness

HAK - Hnefaleikafélag Akraness

Share

Fréttir og upplýsingar um starf Hnefaleikafélags Akraness. Skráning iðkenda:

https://www.abler.io/shop/ia/ha

Photos from HAK - Hnefaleikafélag Akraness 's post 12/01/2026

2 Grunnnámskeið að hefjast í næstu viku hjá okkur! 🥊🥊

Bæði námskeiðin standa yfir í 4 vikur og verða kennd 2x í viku, farið verður yfir helstu grunnatriðin í íþróttinni og áhersla lögð á að allir iðkendur séu tilbúnir fyrir áframhaldandi æfingar.

Eftir að námskeiðinu lýkur fylgja 2 fríar prufuvikur með sínum aldurshóp.

Skráning er hafinn og fer fram í gegnum Abler, hikið ekki við að hafa samband ef þið hafið eitthverjar spurningar!

Skráning:
https://www.abler.io/shop/ia/ha

24/08/2025

Haustönn fer af stað næsta miðvikudag hjá okkur og við höfum opnað fyrir skráningu á Abler! Hérna er hlekkur á skráningu:

https://www.abler.io/shop/ia/ha?country=IS

Æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Vesturgötu og því miður er mjög takmarkað pláss í báða hópa eins og er, við tökum bara við byrjendum út fyrstu vikuna í september, eftir það þarf að bíða eftir byrjendanámskeiði.

Unglingar: 10-15 ára
Fullorðnir: 16+ ára

01/07/2025

Nýtt byrjendanámskeið að byrja hjá okkur í Júlí!

10-15 ára: 4ra vikna námskeið þar sem farið verður yfir grunnatriðin í hnefaleikum, kennt er eftir Diplomakerfinu þar sem áhersla er lögð á tæknilega getu og mýkt og öll harka er bönnuð. eftir að námskeiðinu lýkur fylgja 2 prufuvikur með unglingahópnum.

Sendið á okkur línu ef þið hafið áhuga eða eitthverjar spurningar 🙂

Tímarnir fara fram í íþróttahúsinu á Vesturgötu á eftirfarandi tímum:

Þriðjudaga: 17:00-18:00
Fimmtudaga: 17:00-18:00
Föstudaga: 16:00-17:00

10/01/2025

Í næstu viku fara æfingar aftur af stað hjá okkur og við erum búin að opna fyrir skráningu á Abler:

https://www.abler.io/shop/ia/ha

Takmörkuð pláss í hverjum hóp en það kostar ekkert að koma og prófa á meðan það er laust!

æfingar eru í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum, endilega hafið samband ef það eru eitthverjar spurningar! 😃🥊

23/10/2024

Minni á að það er enþá hægt að skrá sig til æfinga hjá okkur, Eitthvað fyrir alla í boði!

Hafið samband hérna á Facebook eða í tölvupóst á: [email protected] fyrir frekari upplýsingar um skráningu eða ef það eru eitthverjar spurningar!

Fullorðinsbox:
Nýjar æfingar í stundatöflu hjá okkur ætlaðar þeim sem vilja prófa nýja líkamsrækt eða læra eitthvað nýtt í þægilegu umhverfi. Léttar þrek og þol æfingar í bland við grunntækni í hnefaleikum!

Tímarnir hefjast á fimmtudaginn 24. október og það verður frítt að prufa fyrstu 2 vikurnar!

Framhaldshópur 16+ ára:
á æfingum er farið yfir allt það sem þarf að kunna til að taka þátt í keppni í hnefaleikum, auk léttra þrek og þol æfinga. við höfum núna opnað á skráningu fyrir byrjendur.

Unglingastig 8.-10. Bekkur:
Skemmtilegar tækni æfingar í bland við styrktar og þol æfingar sem henta hverjum fyrir sig. Kennt er eftir Diploma-kerfinu sem einblínir á tæknilega kunnáttu frekar en hörku.

Miðstig 5.-7. Bekkur:
Skemmtilegar tækni æfingar í bland við leiki, Kennt er eftir Diploma-kerfinu sem einblínir á tæknilega kunnáttu frekar en hörku.

01/09/2024

Æfingar hefjast í næstu viku!

Enþá nokkur pláss í báðum hópum ekki hika við að koma að prófa, æfingar fara fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum 🙂

Skráning:

https://www.abler.io/shop/ia/ha

18/08/2024

Barna- og unglingastarfið okkar hefst aftur fyrstu vikuna í september!
Skráning er hafinn og fer fram í gegnum sportabler:

https://www.abler.io/shop/ia/ha

17/08/2024

• nú höfum við opnað fyrir skráningu á byrjendanámskeið fullorðinna sem hefst núna 3. September.

• Um er að ræða 6 vikna námskeið, 4 vikna byrjenda kennsla sem fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum á milli 20-21:30 og svo 2 fríar prufuvikur með framhaldshópnum okkar, eftir það er svo hægt að skrá sig til æfinga með framhaldshópnum.

• ATH! Til að fá inngöngu í framhaldshópinn er skylda að klára byrjendanámskeiðið nema þú hafir lokið samskonar námskeiði eða hefur verið að æfa annarsstaðar.

• Ef það eru eitthverjar spurningar þá má hafa samband hérna í skilaboðum 🙂 hér er svo hlekkur á skráningu :

https://www.abler.io/shop/ia/ha/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzE4Mzk=

Photos from HAK - Hnefaleikafélag Akraness 's post 15/04/2024

Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum fór fram um helgina.
Björn Jónatan keppti til úrslita og sigraði með einróma dómaraákvörðun eftir sterka frammistöðu og er því Íslandsmeistari í -60kg flokki u17 ára.
Viktor Orri fékk því miður ekki andstæðing á meistaramótinu en fór upp um þyngdarflokk og keppti upphitunar bardaga í -63.5kg flokki u19 þar sem hann sigraði flottan andstæðing.
Til hamingju strákar!

Photos from HAK - Hnefaleikafélag Akraness 's post 10/03/2024

Hnefaleikafélag Akraness sendi tvo keppendur á vorbikarmótaröð HNÍ, það voru þeir Viktor Orri Pétursson sem keppti í -57kg flokki U19 og Björn Jónatan Björnsson sem keppti í -60kg flokki U17. Þeir sigruðu báðir sína flokka og fengu í dag bikarinn afhentan. Við erum afskaplega stolt af strákunum og hlakkar til að sjá þá halda áfram að vaxa og dafna bæði sem manneskjur og hnefaleikamenn.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Jaðarsbakkar
Akranes
300