13/06/2025
Faxaflóamót kjölbáta fer fram nú um helgina. Ræst verður kl 16.00 og gera má ráð fyrir að fyrstu bátar komi í Akraneshöfn upp úr kl 17.00. Í fyrramálið verða sigldir nokkrir leggir framan við Langasand, í góðu sjónmáli frá landi og svo lengri leggir út á flóa. Mótinu lýkur á sunnudag og siglir flotinn þá til Reykjavíkur.