ÍA er komið með nýjan en kunnuglegan markvörð. Jón Sölvi Símonarson, sem var í láni í fyrra, hefur fengið félagaskipti yfir í ÍA á ný.
Skagamenn - gulir og glaðir
Þetta er stuðningsmannasíða fyrir ÍA í fótbolta.
Fótboltinn er farinn af stað og fyrsti sigurinn í höfn. Hvert er þitt uppáhaldsmark í dag?
04/11/2024
Takk Arnór.
8-0 sigur ÍA á HK er stærsti sigur liðsins í 31 ár, síðan Skagamenn sigruðu Víking 10-1 1993. Liðið hefur í millitíðinni unnið nokkra s*x marka sigra: 8-2 á Keflavík 1995 og 6-0 á Þór 1993, Breiðabliki 1994 og Skallagrimi 1997. Stærstu sigrarnir í efstu deild á þessari öld voru 5-0 gegn Fylki 2021 og KA 2004.
Einhverjir hafa gagnrýnt að leikurinn í dag verði inni. Við sjáum ekki betur en að aðstæður séu hinar bestu.
18/04/2024
Ætlar þú nokkuð að missa af þessu?
Herrakvöld ÍA / Örfá sæti laus – fyllum húsið.
Við þökkum góðar viðtökur við herrakvöldinu en nú styttist í að uppselt verði á kvöldið. Dagskráin er klár og má sjá hér fyrir neðan.
• Húsið opnar 19:00, föstudaginn 19.apríl (Nítjánda Bistro & Bar)
• Veislustjóri er Þorkell Máni Pétursson
• Pallborðið með Jóni Þór & leikmönnum.
• Uppboð og happadrætti
• Spurningakeppni Danna Heimis.
Tryggið ykkur síðustu miðana á kvöldið hér: https://stubb.is/events/o9vrBb?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR1-5olNkpPKmjRD0j4wNTf04tNABZsUlsBeiJHWBjms3nxUri4s12VQkOE_aem_AcSLq46IknypBlMkEwcPoKTmy7E4JPPQYgZ8pz4ZTkeWcNLqnfUlMQ7AKm-m1BRSQKGPeS2I1nJYpUTK79U2N8Qr
17/04/2024
Á sigurslóð rifjar upp síðustu þrennur Skagamanna í efstu deild karla. Einn maður á þriðjunginn af þeim. Arnar Gunnlaugsson gerði fimm þrennur í 25 leikjum á tveimur tímabilum. Að öðrum leikjum meðtöldum skoraði hann 30 deildarmörk í allt árin 1992 og 1995.
⚽️⚽️⚽️
21/02/2024
Til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
Sjónvarpsþættirnir Skaginn hljóta Fjölmiðlaverðlaun KSÍ Sjónvarpsþættirnir Skaginn hljóta Fjölmiðlaverðlaun KSÍ fyrir árið 2023
14/02/2024
Takk Unnur.
Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril með ÍA 💛
Sín fyrstu skref með meistaraflokk með steig hún árið 2009, aðeins 15 ára gömul. Hún hefur tekið þátt í samtals 14 tímabilum og aðeins misst af einu heilu tímabili þrátt fyrir að vera tveggja barna móðir 💕
Unnur er búinn að vera einn af lykilmönnum liðsins og mikilvægur karakter, bæði innan vallar sem utan 👌
Hún hefur spilað 246 leiki fyrir félagið í meistaraflokki og skorað í þeim 96 mörk ⚽
Unnur, takk kærlega fyrir þitt framlag til félagsins, þín verður sárt saknað af æfingum en við vonumst til þess að sjá þig í kring um félagið í framtíðinni 🙏
09/02/2024
Áhugaverðri samantekt Vísis lauk á þann eina hátt sem hægt var. Skagaliðið 1993 er besta karlalið landsins síðustu 40 árin.
ÍA á þrjú lið á topp tíu. 1995 liðið sem vann einn titil, 1993 liðið sem vann tvo titla og 1996 liðið sem vann þrefalt. Sjö félög skipta með sér hinum sjö sætunum.
Við hvetjum fólk til að lesa greinaflokkinn. Og jafnvel að segja sína skoðun fyrir neðan. Finnst þér vanta eitthvert lið?
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1993 | Hinir ósnertanlegu - Vísir ÍA varð Íslandsmeistari með gríðarlegum yfirburðum 1993 og vann bikarkeppnina að auki. Skagamenn jöfnuðu stigamet og fjölga þurfti leikjum um níu til að markamet þeirra yrði slegið. ÍA kórónaði svo frábært tímabil með glæstum sigri á Hollandsmeisturum Feyenoord þar sem Ó...
03/02/2024
Ingvi Þór á Vísi er með greinaflokk um tíu bestu karlalið síðustu 40 ára. Þreföldu meistararnir frá 1996 eru í áttunda sæti. Við gerum ráð fyrir minnst einu Skagaliði til viðbótar á topp tíu.
Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1996 | Á degi eins og þessum - Vísir Eftir stormasamt tímabil lauk glæsilegri sigurgöngu ÍA á eftirminnilegan hátt, með fimmta Íslandsmeistaratitlinum á jafn mörgum árum og bikarmeistaratitli. Nýjar stjörnur komu fram og kjarnastarfsmenn stóðu áfram fyrir sínu. Æsilegu kapphlaupi Skagamanna og KR-inga um Íslandsmeist...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Jaðarsbakkar
Akranes
300