Þín vegferð

Þín vegferð

Share

Lífsmarkþjálfun

Bolli dagsins | Þín vegferð 12/06/2024

Ný færsla komin inn í bolla dagsins - Endilega kíkið á með því að smella á hlekkinn hér að neðan og njótið 🩷

Bolli dagsins | Þín vegferð Þín vegferð - lífsmarkþjálfun hjá Maríu Rut Þórðardóttur.

05/06/2024

Hvað er núvitund?

Í stuttu máli er núvitund það að vera í núinu hverju sinni. Núvitund gengur út á það að vera meðvitaður um sjálfan sig, umhverfi sitt og líðan í amstri dagsins. Tileinkun núvitundar getur átt þátt í því að bæta líðan einstaklinga, bæði andlega og líkamlega. Einnig getur hún eflt jákvæðara hugarfar, mildi í eigin garð sem og annarra.

En núvitund þarf að æfa og þjálfa upp með ýmsum æfingum. Slíkar æfingar ganga út á það að vera í núinu, að beina athyglinni að núinu og því sem á sér stað í kringum okkur hverju sinni. Það getur reynst erfitt í fyrstu að tileinka sér núvitund, þá sérstaklega í nútímasamfélagi og hraðanum sem því fylgir.

Á næstu vikum mun ég vera dugleg við það að henda inn ýmsum æfingum í núvitund í Bolla dagsins. Ég hef tileinkað mér núvitund og vil að aðrir njóti góðs af.

Fylgist með Bolla dagsins í sumar á thin-vegferd.com!

13/05/2024

Hér getið þið séð verð og opnunartíma hjá Þín vegferð - Endilega sendið tölvupóst á [email protected] til þess að bóka tíma

Photos from Þín vegferð's post 17/04/2024

Bolli dagsins!

Við könnumst öll við röddina í höfðinu sem stoppar okkur og stendur fast á bremsunni þegar okkur langar að gera eitthvað nýtt eða láta drauma okkar rætast. Því miður stjórnar þessi rödd mörgum í þeirra daglega lífi og kemur í veg fyrir að viðkomandi geti lifað lífinu eftir eigin höfði og vilja.

Hægt er að brjóta vítahringinn! Hér að neðan má sjá dæmi um æfingu sem aðstoðar þig við að breyta neikvæðum hugsunum/hugarfari yfir á jákvæðara form.

08/04/2024

Hið jákvæða/hið neikvæða

Í huga okkar flest allra eru hið neikvæða – sem hér er táknað sem púki og hið jákvæða – sem táknað er sem engill, sífellt í bardaga við hvort annað.

Hið jákvæða er með þér í liði, hvetur þig áfram og styður við bak þitt í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Það veit hvað er þér fyrir bestu og hvað þarf að gera til að láta drauma þína rætast. Hins vegar nýtur hið neikvæða þess að eyðileggja fyrir þér, draga úr þér og koma í veg fyrir að þú uppfyllir drauma þína. Það reynir í sífellu að telja þér trú um að þú sért ekki nógu góð/ur, þú getir ekki áorkað neitt og étur það allt sjálfsöryggi upp til agna.

Sem dæmi um þetta má taka þetta fjall fyrir – Ímyndum okkur að um sé að ræða Esjuna og þig langar alla leið upp á topp. Hið jákvæða er að fara að leiða þig þangað með því að styðja þig, stappa í þig stálinu og hvetja áfram þangað til að komið er á toppinn þar sem útsýnið er ómótstæðilegt. Hið neikvæða mun hins vegar aðeins leiða þig að rótum fjallsins, telja þér trú um að þú getir þetta ekki, þú ert ekki í góðu formi og hálfgerður auli. Hið neikvæða mun því snúa þér við, ganga aftur að bílnum og keyra beinustu leið heim!

Markþjálfun gengur að miklu leyti út á það að koma okkur úr þessu neikvæða hugarfari sem því miður stjórnar okkur alltof oft og kemur í veg fyrir að við blómstrum í eigin lífi, og yfir í það jákvæða þar sem við komumst á toppinn í lífinu!

13/03/2024

Til hvers er markþjálfi? 🤔

13/03/2024

Hér er allt að gerast og er Þín vegferð formlega hafin! 🥳

Allir velkomnir til mín í Breið eða í gegnum fjarbúnað 💕

06/03/2024

Hvað er markþjálfun?

Photos from Þín vegferð's post 06/03/2024

Hvað býður Þín vegferð upp á?

Fjölbreytt þjónusta, þar sem hægt er að mæta í markþjálfunarsamtal í eigin persónu eða í gegnum fjarbúnað - Bara það sem hentar hverjum og einum 😊

Við byrjum 13. mars - Hlakka til að sjá sem flesta!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Breiðin/Bárugata
Akranes
300

Opening Hours

Monday 08:15 - 12:30
Tuesday 08:15 - 12:30
19:30 - 22:30
Wednesday 08:15 - 12:30
Thursday 08:15 - 12:30
19:30 - 22:30
Friday 08:15 - 11:00