Kotið sauna

Kotið sauna

Share

📍Akranes,Iceland
Einstakt umhverfi & upplifun. Bókanir í Einkakot: [email protected]
Kynntu þér Kotið og bókaðu tíma 👇
www.kotidsauna.is

Photos from Kotið sauna's post 01/06/2026

Það er aldeilis að bætast í hópinn okkar ❤️‍🔥

Við bjóðum Alex velkominn í Kotið 🫶
Alex hefur verið í þjáfun hjá Gumma og Valda í Kotinu síðustu 6 vikur. Hann hlakkar mikið til að taka á móti ykkur!

Fyrsti tíminn hjá Alex er Miðvikudaginn 3.júní og er orðið full bókað ❤️‍🔥

Smá um Alex:
Alex er mikil félagsvera og finnst fátt betra en að gera vel við sitt fólk, elskar að hafa nóg að gera í lífinu og er mikill stemingsmaður með jákvæða orku. Hann er í námi við Háskóla Íslands og er á 2. ári í viðskiptafræði. Hann hefur mikinn áhuga á fólki. Alex er mikill aðdáandi MJ og hendir líklega í eina slíka gusu von bráðar!

Okkar markmið er að gera upplifun ykkar fjölbreytta og eftirminnilega❤️

29/05/2026

Sumarilmur, logn, flóð og hlýja í Kotinu ❤️‍🔥

Gerist ekki fallegra🧡

Photos from Kotið sauna's post 29/05/2026

Við bjóðum Írisi velkomna í Kotið ❤️‍🔥
👉 Fyrstu tímarnir hennar verða 2.júní.🫶

Íris Dögg Einarsdóttir er ljósmyndari, jógakennari og ævintýrakona af lífi og sál.
Hún ólst upp á Akranesi umkringd sjómönnum og kynntist snemma töfrum hafsins og þeirri ró sem sjórinn getur gefið. Frá barnæsku á Langasandi hefur hafið alltaf togað í hana og í dag er sjórinn stór hluti af hennar jafnvægi og lífsorku.
Þegar Íris kynntist gusunum fann hún strax þann lækningamátt sem felst í köldum sjó, núvitund og tengingu við náttúruna. Það varð því fljótt eðlilegt skref að byrja sjálf að halda gusur.
Tónlist, hreyfing og vellíðan hafa alltaf átt stóran sess í hennar lífi og nálgast hún allar stundir með hlýju, góðri nærveru og gleði. Hún er einstaklega þakklát fyrir að vera komin í Kotið — stað sem sameinar allt það sem henni þykir vænst um; sjóinn, fólkið og kyrrðina við fjöruborðið.

Sjáumst í Kotinu 🧡

28/05/2026

Við erum stöðugt að vinna í uppfærslum til að auka upplifun ykkar enn frekar! Uppfærsla á bókunarkerfi og heimasíðu fór í gegn í morgun 🤩

👉 Biðlisti: hægt er að skrá sig á biðlista og fá tilkynningu ef það losnar pláss
👉 Afbókanir: einstaklingur getur núna afskráð sig sjálfur 24klst áður en tími hefst.
👉 Bókanir sem þú átt birtast nú undir mínar bókanir í dagatalinu.
👉 Gjafabréfin: hægt er að hlaða niður prentvænni útgáfu með bókunarkóða

Og margt margt fleira🫶
Sjáumst í Kotinu ♨️

19/05/2026

VÁ! ☀️
Þetta útsýni, fáum ekki nóg🫶

P.s. Nýjir tímar inn á kotidsauna.is

12/05/2026

Kostir þess að mæta reglulega í saunu eru margir til dæmis:
👉 Bættur svefn
👉 Eykur endurheimt
👉 Góð fyrir húðina
👉 Styrkir andlega vellíðan

Verið velkomin í notalega stund í Kotinu ❤️‍🔥

08/01/2026

Fallegt Einkakot í kvöld ❤️‍🔥

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Langisandur
Akranes
300