10/02/2026
Kynnum nýjan þjálfara: Sigurbjörn Bjarnason
Það er mikill fengur fyrir deildina að fá Sigurbjörn Bjarnason (Sibba) til liðs við sig. Sigurbjörn er þrítugur tveggja barna faðir, nýgiftur og alinn upp í sveit. Sibbi flutti ungur að heiman til að reyna fyrir sér í fótbolta. Hann segist sjálfur hafa verið í frekar slöku standi sem ungur leikmaður, fékk nóg af því og varð hreinlega heltekinn af styrktarþjálfun.
Sá áhugi leiddi hann út í kraftlyftingar, sem hann stundaði af krafti í rúm fimm ár, og síðar í faglega þjálfun. Hann er með Diploma í styrktarþjálfun (S&C) frá Keili og er Level 1 og 2 vottaður í Training for Warriors (TFW). Sem stendur leggur hann stund á háskólanám í kennarafræðum.
Reynsla sem telur
Sibbi hefur þjálfað stöðugt síðustu fimm ár; fyrst sem styrktarþjálfari hjá yngri flokkum KA í handbolta og hjá TFW Akureyri. Síðastliðin þrjú og hálft ár hefur hann borið ábyrgð á því að leikmenn meistaraflokks Þór/KA séu í toppstandi til að keppa við þau bestu á landinu.
Sibbi brennur fyrir öllu sem viðkemur heilsu og hefur prófað flest – allt frá því að ganga berfættur á fjöll yfir í að teipa fyrir munninn í svefni!
„Mín uppáhalds lyfta er klárlega hnébeygjan. Það er ekki til sanngjarnari dómari á getu en hnébeygjan,“ segir Sigurbjörn léttur í bragði.
01/02/2026
LOKSNS LOKSINS!!
Unglinga tímar í lyftingum!
í Tímunum er farið í helstu atriði almennrar styrktarþjálfunar með áherslu á lyftingar, þá bæði kraft- og ólympískar lyftingar. Markmiðið er að hafa fjölbreytta og skemmtilega tíma þar sem unglingarnir læra undirstöðu atriði lyftinga og styrktarþjálfunar.
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl 14:30 - 15:30
Við byrjum þriðjudaginn 10.febrúar og önnin út Maí.
Verð 29.900 kr
Þjálfari er Sigurbjörn Bjarnason (Sibbi)
Linkur á Sportabler ( https://www.abler.io/shop/ka/lyftingar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTMyNjU= )
18/06/2025
SJÁUMST Í ÍÞRÓTTAHÖLLINI Á LAUGARDAGINN!!
20/03/2025
ATH BREYTT DAGSETNING!
Aðalfundur lyftingdeildar KA mun vera haldinn 25. mars nk. kl 17 upp í KA-heimili. Við hvetjum sem flesta til að mæta. Öll framboð og lagabreytingar verða að koma fram fyrir fundinn og sendist á [email protected] eða beint á formann.
Vonandi kemur þetta ekki að sök
Ef þið hafið fyrirspurnir heyrið þá í formanni eða varaformanni deildarinnar.
28/08/2024
Sunnudaginn 29.september heldur Lyftingadeild KA og NORÐUR ólympískt lyftingamót í Njarðarnesi.
Mótið er með óformlegum hætti og er hugsað til þess að iðkendur fái smjörþefinn af því hvernig er að keppa í ólympískum lyftingum.
Mótið er einnig hugsað sem verklegt dómarapróf fyrir ný útskrifaða dómara lyftingadeildar KA.
Nánari dagsskrá og tímasetning kemur síðar.
"Lift off" Lyftingadeildar KA og NORÐUR
Sunnudaginn 29.september heldur Lyftingadeild KA og NORÐUR ólympískt lyftingamót í Njarðarnesi. Mótið er með óformlegum hætti og er hugsað til þess að iðkendur fái smjörþefinn af því hvernig er að keppa í ólympískum lyftingum. Mótið er einnig hugsað sem verklegt dómarapr....
28/08/2024
Lyftingadeild KA og Lyftingasamband íslands standa fyrir dómaranámskeiði í ólympískum lyftingum helgina 28-29.september.
Námskeiðið endar á skriflegu prófi sem veitir landsdómarapróf.
Nákvæmari dagsskrá og staðsetning verða auglýst síðar þegar fjöldi þátttakenda liggur fyrir.
Frekari upplýsingar veitir Birkir Örn í [email protected] eða Erna Héðinsdóttir í [email protected]
Dómaranámskeið KA og LSÍ í ólympískum lyftingum
Lyftingadeild KA og Lyftingasamband íslands standa fyrir dómaranámskeiði í ólympískum lyftingum helgina 28-29 september. Námskeiðið endar á skriflegu prófi sem veitir landsdómarapróf. Nákvæmari dagsskrá og staðsetning verða auglýst síðar þegar fjöldi þátttakenda liggur fyri...
21/06/2024
Það verður nóg um að vera í KA heimilinu um helgina!
Lyftingadeild KA heldur í samstarfi við Möl og Sand alvöru lyftingahelgi dagana 22. & 23.júní! Hægt er að mæta í salinn og fylgjast með eða stilla inná streymi hjá KA TV!
Laugardaginn 22.júní kl 11:00 - 14:00 verður Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu!
Sunnudaginn 23.júní kl 11:00 - 14:00 verður sumarmót LSÍ og KA í ólympískum lyftingum!
Svona helgi væri ómöguleg án þess að hafa góða styrktaraðila og frábæra sjálfboðaliða og viljum við þakka öllum sem koma að mótinu á einn eða annan hátt innilega fyrir!
💛💙
06/06/2024
Þriðja sumarið í röð heldur Lyftingadeild KA sumarmót LSÍ! ☀️
Mótið verður haldið sunnudaginn 23.júní í KA heimilinu!
Skráningarfrestur er 9.júní og fer fram í gegnum heimasíðu LSÍ.
Við hvetjum sem flesta til þess að mæta og taka þátt eða koma og fylgjast með á áhorfendapöllunum!
💛💙
23/04/2024
Aðalfundur lyftingdeildar KA mun vera haldinn næstkomandi mánudag kl. 17.30. Við hvetjum sem flesta til að mæta. Öll framboð og lagabreytingar verða að koma fram fyrir fundinn og sendist á [email protected]
Ef þið hafið fyrirspurnir heyrið þá í formanni eða varaformanni deildarinnar.
Aðalfundir deilda KA á næsta leiti
Aðalfundir deilda KA eru á næsta leiti og hvetjum við félagsmenn til að sækja fundina. Aðalfundur knattspyrnudeildar fór fram 12. febrúar og er nú komið
27/03/2024
LOKSINS LOKSINS EFTIR SMÁ PÁSU!!
Þriðjudaginn 2.apríl 2024 hefst námskeið í kraftlyftingum 🏋🏼
Kennt verður á þriðjudags og fimmtudags kvöldum á milli kl 20:00 & 21:00 í sal lyftingadeildar KA við Tryggvabraut 22
Farið verður yfir helstu atriði og hreyfingar í kraftlyftingum og hentar námskeiðið jafnt byrjendum sem og lengra komnum.
Skráningargjald er 15.000kr og eru 8 pláss í boði á námskeiðinu 💥
Skráning í gegnum link í BIO🤌🏼
14/03/2024
Drífa Ríkharðsdóttir keppti á sínu fyrsta Evrópumóti í vikunni en Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram dagana 12.–17. mars í Velika Gorija í Króatíu. Alls eru 214 keppendum á mótinu frá 29 löndum.
Drífa keppti í -57 kg flokki, langfjölmennasta þyngdarflokki kvenna á mótinu. Því miður settu meiðsli strik í reikninginn hjá henni og hún var því töluvert frá sínum besta árangri í hnébeygju og réttstöðu en hún kemur reynslunni ríkari frá Króatíu.
Drífa lyfti:
Hnébeygja: 115kg
Bekkpressa: 82,5kg
Réttstöðulyfta: 155kg
Samanlagt: 352,5
Þetta skilaði Drífu í 21. sæti en Sovannphaktra Pal frá Frakklandi vann flokkinn með 470 kg í samanlögðum árangri.
Við óskum Drífu innilega til hamingju með fyrsta Evrópumótið en hún er að undirbúa sig fyrir HM í kraftlyftingum í júní.