Skautafélag Akureyrar Listskautadeild

Skautafélag Akureyrar Listskautadeild

Share

Listskautadeild Skautafélags Akureyrar, er með mikið og skemmtilegt starf fyrir krakka á ýmsum aldri Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. Hinn 25. nóvember 1989.

janúar 1937, í Skjaldaborg, húsi góðtemplara, Hafnarstræti 67. Þeir ætluðu að leggja stund á hraðhlaup, listhlaup, íshokkí og siglingar um ísi lagðan Pollinn. Veðrið setti þó oft strik í reikninginn og það var ekki fyrr en vorið 1941 að fyrsta skautamótið fór fram á Akureyri. Á dagskránni voru skautadans, íshokkí og hraðhlaup. mars 2000 var Skautahöllin á Akureyri formlega vígð af Hr. Ólafi Ragnar

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 27/03/2026

Keppendur SA í skautahlaupi á vormóti ÍSS 2026

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 27/03/2026

Nú styttist aldeilis í skautagleði helgarinnar. Dagana 27. mars-29. mars verður Vormót ÍSS haldið í skautahöllinni á Akureyri.
Skautafélagið á Akureyri á 8.keppendur í félagalínuhluta mótsins Þær Viktoríu, Kanom, Elísabetu, Unni, Bryndísi, Telmu, Kristínu og Varvöru. SA á svo 7 keppendur í ÍSS hluta mótsins þær Freyju K, Ólöfu, Kristbjörgu, Freyju I, Ronju, Ylfu og Sædísi. SA á svo 5 keppendur í skautahlaups hluta mótsins þau Önnu Sigrúnu, Ylvu Í, Loga, Erwin og Þorstein. Myndir af keppendum okkar í Skautahlaupi verða birtar vonandi seinna í dag.
Það er langt síðan SA hefur átt jafn marga keppendur á móti hjá ÍSS eða 20 keppendur.
Við hlökkum til að fylgjast með þeim um helgina og óskum þeim öllum góðs gengis ⛸️❤️🤍⛸️

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 08/03/2026

Þá hafa skautararnir okkar allir lokið keppni á Sonja Heine í Noregi.

Ylfa Rún keppti með frjálsa prógrammið á föstudaginn. Hún stóð sig með sóma og lauk keppni í 20.sæti með 66.95 stig⛸️

Sædís Heba keppti með stutta prógrammið á föstudaginn og stóð hún í 14. sæti með 39.49 stig fyrir frjálsa prógrammið.
Í gær keppti hún svo með frjálsa prógrammið. Hún hafnaði í 10.sæti með frjálsa með 75.51 stig og lauk hún keppni í 12. sæti samanlagt með 115.0 stig, sem er frábær árangur.

Til hamingju með árangurinn ykkar á mótinu kæru skautarar sem tókuð þátt á Sonja Heine. Þið eruð ykkur og félaginu okkar til mikils sóma⛸️❤️ Það verður gaman að fylgjast með ykkur áfram.

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 05/03/2026

Sonja Heine hélt áfram í kvöld. Nú var komið að Ylfu Rún keppandanum okkar í Advanced Novice með stutta prógrammið. Hún stendur í 20.sæti með 23.78 stig að loknum fyrri keppnisdegi. Ylfa Rún heldur áfram keppni á morgun með frjálsa prógrammið klukkan 15:20 á íslenskum tíma, hún skautar önnur í fyrsta upphitunarhóp.
Á morgun klukkan 11:20 er komið að keppni í Junior Women. þar skautar Sædís Heba þriðja í fjórða upphitunarhópi. Komið er að upphitunarhópnum hennar Sædísar um kl. 13:32 á íslenskum tíma.
Við óskum stelpunum og Jönu góðs gengis á morgun 💖⛸️💖

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 05/03/2026

Nú hafa stelpurnar okkar þrjár í Basic Novice lokið keppni á Sonja Heine í Noregi. Þær stóðu sig allar með miklum sóma.
Helga Mey lauk keppni í 5. sæti með 34,48 stig. Ronja Valgý lauk keppni í 11.sæti með 31.03 stig og Kristbjörg Heiða lauk keppni í 39.sæti með 15.63 stig á sínu fyrsta ISU móti. Til hamingju með flottan árangur kæru keppendur og Jana Omelinová þjálfari💖⛸️💖
Seinna í dag er komið að Ylfu Rún með stutta prógrammið í advanced novice. Við fylgjumst spennt með mótinu áfram og óskum keppendum góðs gengis💖

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 04/03/2026

Um helgina fer Sonja Henie Trophy fram í Osló í Noregi. LSA á 5 flotta fulltrúa á mótinu ásamt Jönu þjálfara. Á fimmtudag keppa þær Helga Mey, Kristbjörg Heiða og Ronja Valgý í flokknum Basic novice. Landsliðsstúlkurnar Ylfa Rún og Sædís Heba taka svo keflinu. Ylfa keppir í Advanced novice á fimmtudag og föstudag og Sædís keppir í Junior á föstudag og laugardag.
Við fylgjumst með úr fjarlægð og sendum þeim góða strauma.

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 30/01/2026

Nú er Norðurlandamótið í listhlaupi í fullum gangi í Hvidovre í Danmörku.
Í gær kepptu bæði Advanced Novice stelpur og strákar og Junior women með stutta prógrammið. LSA á tvo keppendur á mótinu systurnar Sædísi Hebu, sem keppir í Junior Women og Ylfu Rún sem keppir í Advanced Novice. Ylfa Rún reið á vaðið í gær og stóð hún sig vel á sínu öðru Norðurlandamóti. Hún stendur í 23 sæti eftir stutta prógrammið. Hún stígur aftur á svellið í dag klukkan 11:50 á dönskum tíma (10:50 íslenskur tími),með frjálsa prógrammið.

Sædís Heba stóð sig vel í gær með stutta prógrammið. Hún stendur í 11 sæti fyrir frjálsa prógrammið sem hún skautar svo frjálsa prógrammið á laugardaginn og stígur hún á ísinn klukkan 15:20 (danskur tími) (14:20 íslenskur tími).

Við óskum stelpunum góðs gengið áfram og vonum að þær nái öllum sínum markmiðum

Sædís og Ylfa hefja keppni á Norðurlandamótinu í dag 29/01/2026

Ylfa Rún og Sædís Heba hefja keppni í dag í stutt programi á Nordics sem haldið er í Danmerku .
Ylfa er nr. 5 í 1.upphitunarhópi sem hefst kl 11:15 á íslenskum tíma
Sædís er nr. 4 í 2.upphitunarhópi sem hefst 16:27

Hægt er að sjá live streymi hér: https://vimeo.com/event/5623531

Óskum við þeim og Jönu þjálfara góða gengis í dag 🥳🥳

https://www.sasport.is/is/moya/news/category/1/saedis-og-ylfa-hefja-keppni-a-nordurlandamotinu-i-dag

Sædís og Ylfa hefja keppni á Norðurlandamótinu í dag Listskautastúlkurnar Sædís Heba Guðmundsdóttir og Ylfa Rúna Guðmundsdóttir stíga á ísinn í dag og hefja keppni á Norðurlandamótinu sem fer fram dagana 28.

10/01/2026

Vilt þú læra að skauta, eða dusta rykið af eldri hæfni, eða bara skella þér á skauta í góðum félagsskap ⛸️🥰

Photos from Skautafélag Akureyrar Listskautadeild's post 15/12/2025

Jólasýning Listskautadeildar SA var haldin í gær sunnudaginn 14. desember. Þar sýndu iðkendur verkið ,,Þegar Tröllið stal jólunum". Jana Omelinova yfirþjálfari samdi dansana og leikstýrði sýningunni með aðstoð frá aðstoðarþjálfurum deildarinnar þeim Telmu Marý Arinbjarnardóttur og Varvöru Voroninu.
Krakkarnir stóðu sig frábærlega og ánægjulegt að sjá hversu mikill mettnaður var lagður í búninga og hár.
Við þökkum kærlega fyrir frábæra skemmtun

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Naustavegur 1
Akureyri
600