Ungmennasamband Eyjafjarðar

Ungmennasamband Eyjafjarðar

Share

Ungmennasamband Eyjafjarðar

23/07/2026

Nú styttist í Unglingalandsmótið, skráningarfrestur er til 26. júlí.
Keppni hefst á fimmtudeginum 30. júlí en mótssetningin er föstudagskvöldið 1. ágúst kl. 20:00 á aðalvellinum, svæði 1. Þar ætla allir að mæta í skrúðgöngu, bláklæddir og með UMSE fána.

Okkur þætti vænt um ef þið létuð vita í athugasemdum hverjir ætla að fara á mótið (ef þið eruð ekki búin að því áður). Eins og venjulega verður boðið upp á grill á laugardagskvöldinu (frítt fyrir 18 ára og yngri aðrir borga 1.000 kr.).

Við í stjórn UMSE óskum eftir sjálfboðaliðum (foreldrum) til að aðstoða okkur. Til að byrja með langar okkur að athuga hvort einhverjir geti lagt til bakkelsi sem mun standa til boða í samkomutjaldi UMSE.
Þá óskum við einnig eftir sjálfboðaliðum við að tjalda samkomutjaldinu.
Hlökkum til að heyra frá ykkur. Margar hendur vinna létt verk 😊



Ps. minnum á að skrá sig í þartilgert skjal ef hugur er á peysukaupum.

Unglingalandsmót - Ungmennafélag Íslands 21/07/2026

Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Opið er fyrir skráningu á mótið til miðnættis sunnudagskvöldið 26. júlí.
Gaman væri ef þeir sem ætla að mæta bæti við athugasemd hér líka ❤️💙🤍🎉

Unglingalandsmót - Ungmennafélag Íslands Unglingalandsmót UMFÍ er ein stærsta fjölskyldu- og íþróttahátíð landsins og hefur sameinað börn, ungmenni og fjölskyldur víðs vegar að af landinu frá árinu 1992. Á mótinu keppa þátttakendur á aldrinum 11–18 ára í fjölbreyttum íþróttagreinum yfir daginn, skapa nýjar m...

21/07/2026

Þess má geta að UMSE niðurgreiðir þátttökugjald sinna keppenda um 50%. 😊

14/07/2026

Nú styttist í unglingalandsmótið sem fram fer á Sauðárkróki í ár.
Hér eru leiðbeiningar um skráningaferlið á mótið. UMSE styrkir þátttakendur innan UMSE um helming skráningargjalds og kemur afslátturinn fram við skráningu.
Það verður mikið fjör og mikið gaman, skráum okkur til leiks! 💪😃

06/07/2026

Landsmóti 50+ lokið – kærar þakkir

Nú er Landsmóti 50+ lokið og viljum við í stjórn færa öllum bestu þakkir fyrir ánægjulega daga og frábæra þátttöku.
Þeim keppendum sem tóku þátt þökkum við fyrir góða stemningu, jákvæðni og glæsilega framkomu. Þátttaka ykkar skapar þá einstöku upplifun og samfélag sem einkennir Landsmót 50+.
Sérstakar þakkir færum við öllum sjálfboðaliðum sem lögðu fram tíma sinn, krafta og dugnað. Óeigingjarnt framlag ykkar var lykillinn að því að mótið tókst svo vel og fyrir það erum við afar þakklát.
Jafnframt viljum við þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi, framkvæmd og stuðningi við mótið. Samvinna, samhugur og vilji til að leggja sitt af mörkum skipta sköpum og eiga stóran þátt í vel heppnuðu móti.

Við vonum að allir fari heim með góðar minningar, ný kynni og ánægjulegar stundir í farteskinu.

Kærar þakkir fyrir samveruna og fyrir að gera Landsmót 50+ að þeirri glæsilegu hátíð sem það er.

Með bestu kveðju,
Stjórn UMSE

UMSE - Fréttir 30/06/2026

Nú styttist í Þorvaldsdalsskokkið sem fer fram í 33.skipti þann 4.júlí.
Enn er tími til að skrá sig :) 🏃‍♂️‍➡️🏃‍♀️

UMSE - Fréttir Styttist í Þorvaldsdalsskokkið

Photos from UMFÍ - Ungmennafélag Íslands's post 28/06/2026
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Óseyri 2
Akureyri
603

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:00