Æskan - UMSE, Svalbarðsströnd

Æskan - UMSE, Svalbarðsströnd

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Æskan - UMSE, Svalbarðsströnd, Sports & Fitness Instruction, Akureyri.

Æskan er íþróttafélag Svalbarðstrandahrepps og er aðildafélag UMSE (ungmennasamband Eyjafjarðar). Æskan var stofnuð 1910, frá þeim tíma hefur félagið staðið fyrir hinum ýmsu íþróttagreinum.

22/07/2026

Góðan daginn! 🏊‍♀️🚴‍♀️🏃‍♀️

Æskan er nýbúin að stofna þríþrautardeild og nú ætlum við að prófa okkur áfram!

Við ætlum að mæta tvö um helgina og taka þátt í sprettþraut og okkur langar að athuga hvort fleiri hafi áhuga á að koma með og prófa. Engin fyrri reynsla af þríþraut er nauðsynleg, markmiðið er fyrst og fremst að mæta, prófa og hafa gaman saman.

Það eina sem þarf er sundföt, hjól og hlaupaskór. Ef þig langar að vera með en vantar einhvern búnað, ekki láta það stoppa þig við aðstoðum eftir bestu getu við að finna búnað til láns.

Við viljum sérstaklega hvetja unglingana okkar til að skrá sig og prófa! 💪

Ef þú hefur áhuga á að koma með eða vilt vita meira, endilega hafðu samband við Sigríði Ingibjörgu, Þráinn eða Dóru Siggu

👉 Skráning og upplýsingar um keppnina:

https://triathlon.is/keppni/145

Vonandi sjáum við sem flest! 🏊‍♂️🚴‍♂️🏃‍♂️

29/06/2026

Í sumar og haust fer FRÍ - Frjálsíþróttasamband Íslands - í ferðalag og heldur æfingar í krakkafrjálsum á víð og dreifð um landið. Ferðalagið er hafið og stefnan sett á Svalbarðseyri á fimmtudaginn.

Krakkafrjálsar FRÍ er á fimmtudaginn 2. júlí kl. 9:00–10:00 á íþróttavellinum.
Æfingin er opin öllum börnum á aldrinum 5–12 ára og þátttakendur fá að spreyta sig í fjölbreyttum greinum frjálsíþrótta.

Frábært tækifæri til að prófa, hreyfa sig og hafa gaman saman.
Allir velkomnir!

21/06/2026

Sólstöðuhlaupið 2026 - Engin sól þetta árið en það kom ekki að sök 🌞 Takk fyrir okkur!

21/06/2026

Sólstöðuhlaupið 2026 ! Sólin mætti ekki en það kom ekki að sök! Takk fyrir okkur 🌞

13/05/2026

❤️ Félagi í Æskunni ❤️

Það að vera félagi í Ungmennafélaginu Æskunni þýðir ekki endilega að þú sért iðkandi eða takir virkan þátt í starfinu. Með félagsaðild ert þú fyrst og fremst að styðja við mikilvægt starf í heimabyggð 🥰

Félagsgjöldin eru send út í fjáröflunarskyni til að styrkja starfsemi félagsins og hjálpa okkur að halda áfram að bjóða upp á öflugt og aðgengilegt starf fyrir samfélagið allt.

Greiðsluseðlarnir birtast sem „félagsgjöld“ í heimabanka þar sem það er það fyrirkomulag sem er í boði hjá bankakerfinu og því var ekki mögulegt að senda þetta út sem valgreiðslu.

Félagsaðildin og stuðningurinn eru þó að sjálfsögðu alveg valfrjáls 😊

Það hjálpar félaginu einnig að hafa sem flesta skráða félaga, meðal annars þegar kemur að úthlutunum og stuðningi við íþróttastarf, t.d. lottótekjum 💚

Hægt er að fela kröfuna í heimabanka og ef hún er ekki greidd fellur hún sjálfkrafa út 1. júlí næstkomandi. Þó gjalddagi sé 15. maí leggjast engin gjöld eða vanskilakostnaður á kröfuna.

Takk fyrir stuðninginn og samfylgdina 💚

09/05/2026

Eins og margir hafa tekið eftir þá var greiðsluseðill fyrir félagsgjöld Æskunnar sendur út á alla íbúa sveitarfélagsins síðsta fimmtudag. Að sjálfsögð er félagsaðild valfrjáls og því hægt að fela kröfuna í heimabankanum, svo fellur hún sjálfkrafa út 1. júlí næstkomandi.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að vera hluti af starfinu, það hjálpar okkur að halda því gangandi og styður við gjaldfrjálst og fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni.

Ef þú vilt ekki greiða, eða vilt láta taka þig af skrá, þá geturðu sent okkur línu á [email protected] – við kippum því þá einfaldlega út.

Takk fyrir að styðja við starfið 🙏

03/05/2026

Hlaupanámskeið Æskunnar fer af stað í næstu viku – við byrjum 11. maí. Þetta er frábær leið til að komast af stað fyrir sumarið og læra skemmtilegar hlaupaæfingar sem hægt er að taka á Svalbó. Atli Steinn leiðir æfingarnar og Anna Margrét og Þráinn verða með á hliðarlínunni.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum og er fyrir 15 ára og eldri. Það stendur yfir í 6 vikur og lýkur með Sólstöðuhlaupinu. Engin skylda er að taka þátt í hlaupinu, en við hvetjum að sjálfsögðu alla til þess.

Skráning fer fram með því að millifæra þátttökugjaldið, 7.900 kr á Æskuna:
Kt. 581088-3109
Reikn. 0162-26-075055

Reglulegar hlaupaæfingar hefjast svo að námskeiði loknu. Við hlökkum til að hlaupa saman – því fleiri, því skemmtilegra 🙏

27/04/2026

Krakkapílan er komin í sumarfrí.
Gleðilegt sumar! ☀️

Photos from Æskan - UMSE, Svalbarðsströnd's post 26/04/2026

Jæja, þá er fréttabréf Æskunnar komið á flest heimili í sveitarfélaginu 👏

Ert þú búin/n að fá þitt? Ef ekki, þá gæti það verið á leiðinni 😄

Hér er það annars líka til öryggis 👏🏼

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Akureyri
606