Flameboypro

Flameboypro

Share

Síða þar sem að verður hægt að nálgast myndbönd og myndir af hinum ýmsum viðburðum. Þó aðallega tengt knattspyrnunni á Akureyri.

Áhugamyndbandsvinnsla þó aðallega tengt íþróttum.

13/06/2024

Hafði gaman af þessu 😂😂😂

27/03/2016

Set þetta í pinned post. Þessi síða er nú kominn í hvíld. Ég lokaði henni um tíma en ákvað síðan að hafa hana opna því mikil vinna og saga er þarna á bak við, sem kannski einhverjir vilja rifja upp. En nánast engar uppfærslur eru á henni eða hafa verið síðustu mánuði. Það stefnir í að svo verði ekki aftur. Leyfi henni að vera opinni eitthvað lengur því vonandi eru fleiri eins og ég, hafa gaman af því að rifja upp gamla góða tíma. kv H. Logi.

Íþróttafélagið Þór: Rúnar Haukur Ingimarsson er látinn 14/10/2015

Mikill meistari og félagi í kringum fótboltann er fallinn frá. Rúnar var einn af fyrstu mönnum sem maður leitaði til er ég var að byrja að taka upp í kringum Þór. Alltaf tilbúinn að aðstoða og ávallt að hvetja mann. Vorum oft að grínast í hvor öðrum og ná myndum af hvor öðrum á furðulegum augnablikum. Rúnar var maðurinn á bak við tjöldin sem ómetanlegt er að hafa í svona starfi í kringum íþróttirnar. Fékk alltof lítið kredit fyrir þá vinnu en oft sóttist hann ekkert eftir því heldur vann þessa vinnu bara vel og óeigingjarnt. Votta aðstandendum samúð mína og virðingu. Hvíl í friði félagi. kv einn af hliðarlínunni: Flameboy.

Íþróttafélagið Þór: Rúnar Haukur Ingimarsson er látinn Rúnar Haukur Ingimarsson er látinn, hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í nótt eftir harða og erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm, 51 árs ...

30/07/2015

Þór og BÍ/Bol áttust við í 1 deildinni í gær. Ákveðið atvik setti svip sinn á leikinn. Náði atvikinu sjálfu ekki á filmu en náði því sem kom í kjölfarið. Svo sem flott að menn átti sig á mistökum en ef aðstoðardómararnir vissu af þessu af hverju gripu þeir þá ekki inn í fyrr og leiðbeindu dómaranum. Svona löng atvik drepa niður þennan skemmtilega leik. Viljum hraða og líf í þetta.

Photos from Flameboypro's post 29/07/2015

Þór sigraði BÍ/Bolungarvík áðan 6-1. Fyrst maður er í sumarfríi þá rétt kíkti ég á leikinn með cameruna svona rifja upp gamla tíma.

Photos 07/06/2015

Íþróttafélagið Þór er 100 ára um þessar mundir. Mig langar að senda félaginu kærar afmæliskveðjur og óska því farsældar í framtíðinni.

Mig langar aðeins að senda út smá persónulega kveðju hér.

Ég gerði mitt fyrsta myndband fyrir Þór árið 2007, þá með pínu litla myndavél og sat ég í stúkunni meðan ég tók það upp. Þá var ég ekkert farinn að hugsa um að gera þetta fótboltasvið að einhverju aðal-áhugamáli en hafði haft mikinn á myndbandsupptökum í mörg ár.
Ég náði umdeildu atviki á upptöku og henti því á netið. Fékk mikil viðbrögð og greinilegt var að fólk hafði áhuga á að sjá eitthvað frá þessum leikjum. Ég tók síðan þátt í skemmtiatriðum á lokahófum Þórs og þótti mjög gaman að vinna með þessum drengjum. Næstu ár þróuðust þannig að ég var mættur á nánast hvern einasta heimaleik að taka upp og gera eitthvað í kringum þetta. Stóra árið fyrir mig og strákana kom árið 2010 en þá birti ég svokölluð ,,Highlights” úr hverjum einasta heimaleik. Við vitum öll hvernig það tímabil endaði, gjörsamlega geggjaður tími. Hlaut viðurkenningu frá Þór fyrir vel unnin störf, mat ég það mikils. Næstu ár voru eins og góð rússibanaferð. Ég fylgdi liðinu eins og ég g*t og stundum var jákvætt tímabil og stundum neikvætt en það fylgir þessu. Fyrir utan sigrana sem strákarnir unnu á vellinum, þá fyrir mig persónulega fannst mér það frábært að vera boðið að sjá um Pepsi-Deildar leikina fyrir norðan. Vegna vinnu og græjuleysi þá afþakkaði ég það enda sá ég fram á það að geta ekki verið til taks í alla leiki. Fékk þó að vera með í beinni útsendingu á Stöð2Sport í Pepsi-deildinni og fannst mér það frábær reynsla og viðurkenning á því sem ég var að gera með minni pínulitlu heimilismyndavél. Ég reyndi alltaf að horfa á það jákvæða í þessari svakalega miklu vinnu. Mikið meiri vinna en fólk gerir sér grein fyrir en gefandi líka.
Ég á svakalega umburðalynda konu sem hefur alltaf stutt mig í þessu þótt svakalega mikill tími hefur farið í þetta. Ég hef verið kallaður ,,dramaqueen” oftar en einu sinni en myndböndin mín eru oft með dúndrandi stríðsþema og oft vældi ég einhverja vitleysu á samfélagsmiðlum ( og geri enn). Ég hef stundum verið þvílíkt hneykslaður á því sem klúbburinn hefur gert en við höfum mismunandi skoðanir og það fylgir þessu.

Mér fannst það alltaf skemmtilegast að vinna með fólkinu sem kemur og gefur vinnu sína af ástríðu fyrir klúbbinn. Fólkið sem t.d. týnir upp rusl eftir leiki, hengir upp auglýsingar, sinnir öryggisgæslu, öskrar úr sér lungun við að hvetja liðið og fer í þau störf sem vantar. Að hafa fólk sem mætir í alla sjálfboðavinnu með jákvæðni og ástríðu er ómetanlegt. Það fólk fær of lítið kredit. VIð vitum hvaða fólk þetta er og ættum að henda kveðju og hrósi á það oftar.

Ég starfa ekki lengur eins náið í klúbbnum og ég gerði en lít svo á að ég hafi gefið allt í þessi 6 ár. Ég fylgist með í fjarska eins og er og hef mínar skoðanir. Hver veit að maður rífi sig í gang aftur einhvern tímann seinna.

Ég vil þakka öllum sem ég unnið með, líka öllum þeim sem hafa horft á myndböndin, commentað og sent kveðjur. Viðbrögðin eru það sem dreif mann áfram.

Þór á skilið góðar afmæliskveðjur á þessum tímamótum. Til hamingju með 100 árin.

kv Flameboypro

22/06/2014

Video: Jói Athugar klukkuna hjá Guðmundi. En af hverju er Guðmundur Ársæll að margafsaka sig við Fjalar að hann sá ekki eitthvað. "Veistu vinur ég sá það bara ekki" Afsakar sig síðan aftur að hafa ekki séð þetta. Sem var ekki neitt. Fjalar að drepast í vinstri öxlinni en sólinn á Sveini fór aldrei í hana.

22/06/2014

Ef þessi hefði verið inni. Hefði það verið fallegasta markið í deildinni. Afsakið upptökuna, leit upp og afsakið konu stununa.

Photos 21/06/2014

Bíð upp á Highlights úr leik Dalvík/Reynir vs KF sem fram fór í gærkvöld. Er að hlaða þessu inn og hendi þessu hérna upp þegar þetta er komið inn. Rauða spjaldið, Sigurmarkið, Riffrildi, færin.

20/06/2014

Viðræður við almættið um að ég taki cameruna smá niður af hillunni og það hætti að rigna. Þá ef allt gengur eftir stefni ég á DalvíkReynir vs KF í kvöld kl 20:00. Ef þetta verður fjörugur leikur þá ef til vill hendir maður í eitt Highlights. Kemur í ljós hvort þetta gangi eftir.

Æfing Mfl Þór KK 2014 16/06/2014

Mætti í fyrsta skipti í sumar á æfingu hjá Þór. Tók Nokkrar myndir frá æfingu Mfl Þórs þann 16.06.2014. Æfingin að mestu recovery v. leiksins í gær.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

http://twitter.com/flameboypro

Address


Akureyri