21/05/2025
Hjólagleðin við völd í sólinni – MYNDIR
Gleðin var við völd í Kjarnaskógi á sunnudaginn þegar hátt í 100 krakkar á aldrinum 2 til 12 ára komu þar saman á fyrsta hjólamóti Krónunnar, Akureyrardætra og Hjólreiðafélags Akureyrar. Veðrið skemmdi ekki beinlínis fyrir, sólin skein skært í logninu og hiti var hátt í 2...
14/05/2025
Krúttlegasta hjólamót ársins um helgina
Krónan, Akureyrardætur og Hjólreiðafélag Akureyrar standa fyrir hjólamóti fyrir krakka á aldrinum 2 til 12 ára á sunnudaginn kemur, 18. maí. Mótið fer fram í Kjarnaskógi og hefst formlega kl 10.00. Um er að ræða fyrsta hjólamótið sem Krónan heldur á Akureyri en mótið er hal...
11/04/2025
Átt þú barn/ungling/ungmenni sem langar að prófa að æfa götuhjólreiðar, hvort sem er sem aðalsport eða til að halda sér í formi fyrir vetrarsportið?
Þá má endilega senda okkur línu, þjálfararnir sem standa að götuhjólaþjálfun hjá HFA langar að bjóða upp á æfingar í sumar. Hugmyndirnar um það eru ekki fastmótaðar ennþá og fara svolítið eftir áhuga. Í maí verðum við með opna æfingu fyrir þennan aldur og foreldrar eru sömuleiðis hvattir til að mæta og hjóla með. Sú æfing verður auglýst síðar.
Ath: Þessar æfingar eru hugsaðar fyrir götuhjól, æfingar fyrir börn á fjallahjólum verða auglýstar síðar. HFA á einn racer í stærð 50 til að lána í prufurúnt.
09/02/2025
Áfram höldum við að minna á mikilvægi hreyfingar.
Gored dagurinn ❤️❤️
Blóðþrýstingsmæling og hjól til hjartaverndar
Hjartavernd Norðurlands stóð fyrir vitundarvakningu, blóðþrýstingsmælingu og þrekhjólskynningu á Glerártorgi á föstudag, í samstarfi við Háskólann á Akureyri og hjólahópinn Akureyrardætur. Fyrir framan Lyfju var stillt upp borði með tveimur blóðþrýstingsmælum, sem nemend...
04/01/2025
Akureyrardóttirin Hafdís Sigurðardóttir hlýtur Gullhjálm👑🚴🏼♀️ Hjólreiðasambandsins og
Tilkynning um úrslit Gullhjálmsins | Hjólreiðasamband Íslands
Hafdís Sigurðardóttir hlýtur Gullhjálminn 2024 Það er mjög gleðilegt að tilkynna að Hafdís Sigurðardóttir fær Gullhjálminn 2025. Hafdís er einstök fyrirmynd og hefur með dugnaði og óbilandi eldmóði sett sterkan svip á hjólreiðasamfélagið á Íslandi. Í ár bárust yfir ....
10/10/2024
STELPUGLEÐI Akureyrardætra var haldin 29. ágúst síðastliðinn. Þessi viðburður hefur aðeins tekið breytingum síðustu tvö ár. Fyrst var þetta keppni en alltaf lögð áhersla á að hafi gleðina allsráðandi og láta gott af sér leiða. Nú í ár var Stelpugleðin einnig styrktarviðburður og voru 62 konur sem skráðu sig til leiks og hjóluðu, gengu eða hlupu. Eftir hreyfinguna var boðið uppá veglegar veitingar og margir vinningar dregnir út en við höfum ávallt haft mikinn stuðning frá fyrirtækjum allstaðar. Akureyrardætur hafa í gegnum tíðina lagt uppúr því að hvetja konur til að hjóla sér til heilsubótar í gleði og láta gott af sér leiða. Þannig hafa Akureyrardætur náð að styrkja Hjartavernd Norðurlands og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) ásamt því að hafa styrkt landsliðskonur okkar í hjólreiðum fyrir stórmót einu sinni. Stelpugleðin í ár var til styrktar KAON og safnaðist 280.000. Á þessu ári höfum við safnað og styrkt KAON um 430.000 en í apríl síðastliðinn var einnig afhendur styrkur sem og til Hjartaverndar Norðurlands.
Meðfylgjandi myndir eru frá afhendingu styrksins í gær og nokkrar myndur frá Stelpugleðinni.
09/10/2024
Þá er komið að síðustu fyrirtækjunum sem við viljum þakka fyrir að aðstoða okkur við að gera þennan viðburð glæsilegan. Kærar þakkir til Sjálfsræktar, Gleraugnasölunnar Geilsa og Striksins fyrir stuðninginn 🩷
📸 Ármann Hinrik
08/10/2024
Næstu dagana viljum við þakka öllum frábæru fyrirtækjunum fyrir sem aðstoðuðu okkur við að gera þennan viðburð glæsilegan. Kærar þakkir til Verdi, Hobby & Sport og Bláu Könnunar fyrir stuðninginn 🩷