Hlíðarfjall Akureyri

Hlíðarfjall Akureyri

Share

Hlíðarfjall er sannkölluð útivistarparadís jafnt að sumri sem vetri!
❤️🚴‍♂️💙🎿💚🏃‍♂️

22/05/2026

Vortiltektin heldur áfram, nú eru nokkur borð og sófi sem má hirða fyrir framan hótelið ☺️ Fyrstur kemur fyrstur fær 🙌🏻

20/05/2026

Þó það sé ennþá slatta snjór í fjallinu þá er sumarið handan við hornið ☺️

Í fyrra breyttum við opnunartíma fjallsins í samráði við Hjólreiðafélag Akureyrar sem reyndist virkilega vel og voru nánast allir opnunardagar vel nýttir, það verður því sama fyrirkomulag á opnun í sumar.

Stefnt er á að sumaropnun verði frá 4. júlí til 5. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann, neðri stólalyftuna okkar, til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins. Ekki er stefnt á að opna Fjallkonu í sumar vegna viðhaldsvinnu.

Opnunartími:
Þriðjudögum og fimmtudögum frá 16:30-20:30
Laugardögum frá 10-16.

Auk þessa verða þrjár helgar sem verður opið frá fimmtudegi til sunnudags, þær eru eftirtaldar:
16 - 19 júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
30 júlí - 2 ágúst (Verslunarmannahelgin)
27 - 30 ágúst (Downhill keppnishelgi)

Opnunardagsetning er birt með fyrirvara, veðrið ræður auðvitað öllu um það hvort við náum að opna 4. júlí, en við vonum að júní verði hlýr og góður !

Hlökkum mikið til að sjá ykkur í Hlíðarfjalli í sumar 🥰

20/05/2026

Tiltektin heldur áfram, nú er slatti af gömlum stólum sem má hirða fyrir utan hótelið, fyrstur kemur fyrstur fær ☺️

Photos from Hlíðarfjall Akureyri's post 18/05/2026

Vortiltekt í fjallinu og fyrir utan Skíðastaði er slatti af gömlum skíðum og haugur af skíðastöfum, ef einhver getur nýtt þetta er velkomið að koma og hirða ☺️

30/04/2026

Sleðaleið nú opin uppá Hlíðarfjall

Nú þegar almenn opnun á skíðasvæðinu er búin þá ætlum við eins og síðustu ár að gefa leyfi til aksturs á snjósleðum í gegnum svæðið til að komast uppá Hlíðarfjall.

Eins og áður þá er þetta aðeins rauðmerkta leiðin á meðfylgjandi mynd sem má keyra upp og niður. Byrjar við Fjarkann, beint upp í Dalinn og svo ofan við Fjallkonuna út í átt að Mannshrygg. Sneiðingurinn uppá topp er ekki ruddur svo það þarf að stinga sér beint upp brekkuna þar í kverkinni.

Áfram verða skíðaæfingar í brekkunum svo allur annar akstur á svæðinu er stranglega bannaður.

Biðjum allt sleðafólk til að ganga vel um svæðið, sýna tillitsemi og auðvitað fara varlega 🙂

Photos from Hlíðarfjall Akureyri's post 29/04/2026

TAKK FYRIR VETURINN 2025/2026

Á laugardaginn síðasta lauk tímabilinu hjá okkur í fjallinu þennan veturinn þegar lokadagur Andrésar Andarleikanna fór fram 😍

Veturinn hjá okkur byrjaði frábærlega þar sem við opnuðum þann 4. des fyrir almenning. Fyrir það höfðu verið æfingar á skíðagöngusvæðinu frá 28. okt og alpagreinar og brettadeild byrjuðu að æfa 17. nóv. Fram að jólum voru frábærar aðstæður en svo kom jólahlákan mikla og urðum við að loka þar til 9. jan. Eftir það gekk vel þrátt fyrir lítinn snjó í janúar og febrúar en svo í mars kom loksins snjósending sem skilaði okkur frábærum páskum, þeim stærstu til þessa í gestafjölda. Svo til að kóróna tímabilið voru Andrésar andarleikarnir alveg æðislegir, 50 ára afmæli leikanna og met þátttaka með yfir 1100 keppendur.

Það var mikil vinna lögð í að halda svæðinu opnu á köflum og það voru 27 dagar sem snjóframleiðsla var keyrð. Á endanum náðum við 113 opnunardögum sem er með því meira á síðustu árum og gestafjöldi náði tæpum 86 þúsund 🙌🏻

Ennþá er talsverður snjór á svæðinu, skíðafélagið verður með æfingar áfram og á skíðagöngusvæði verður troðið áfram á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa.

Hlökkum svo til að sjá sem flesta í fjallinu í sumar og auðvitað að taka á móti ykkur öllum aftur þegar veturinn 2026/2027 gengur í garð ⛷️🏂

Takk fyrir okkur 🤍

25/04/2026

☀️ Laugardagur 25. apríl 2026 ☀️
⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ -2°C, logn og mildur vindur

⚠️Andrésar Andar leikarnir eru í fullum gangi og Í dag fara fram keppnir á fjallinu. Vinsamlegast virðið allar lokanir á meðan viðburðir standa yfir.
Ákveðnar brekkur og svæði eru frátekin fyrir keppendur og starfsfólk, svo við biðjum gesti vinsamlegast að fylgja merkingum og fyrirmælum starfsfólks og forðast lokuð svæði.

Neðra svæði:
• Lyftur: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut og Töfrateppi
• Troðnar brekkur: Auður, Töfrateppi, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Efra svæði:
• Lyftur: Strompur
• Troðnar brekkur: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki
Gönguskíði (XC):
• 7 km
• 10 km
🎟️ Kaupið miða á netinu og sleppið röðinni:
hlidarfjall.skiperformance.com

☀️ Saturday, April 25th, 2026 ☀️
⏰ Open 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ -2°C, calm and mild wind

⚠️ Today we are hosting competitions on the mountain. Please respect all closures while events are running.
Certain slopes and areas are reserved for competitors and staff, so we kindly ask guests to follow signage and staff instructions and avoid closed areas.

Lower area:
• Lifts: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut, and Magic Carpet
• Groomed slopes: Auður, Magic Carpet, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Upper area:
• Lifts: Strompur
• Groomed slopes: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki Upper
Cross-country (XC):
• 7 km.
• 10 km
🎟️ Buy your ticket online and skip the line:
hlidarfjall.skiperformance.com

24/04/2026

☀️ Föstudagur 24. apríl 2026 ☀️
⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ 0°C, logn og mildur vindur

⚠️Andrésar Andar leikarnir eru í fullum gangi og Í dag fara fram keppnir á fjallinu. Vinsamlegast virðið allar lokanir á meðan viðburðir standa yfir.
Ákveðnar brekkur og svæði eru frátekin fyrir keppendur og starfsfólk, svo við biðjum gesti vinsamlegast að fylgja merkingum og fyrirmælum starfsfólks og forðast lokuð svæði.

🎉 Næstu tvo daga verður fjallið fullt af lífi með keppnum um allt svæðið.
Allar lyftur eru í gangi frá deginum í dag og fram á laugardag, svo það er nóg pláss fyrir alla, hvort sem þú ert að keppa eða bara njóta dagsins.
Komdu upp eftir, njóttu stemningarinnar og vertu hluti af þessu sérstaka tilefni 🙌

Neðra svæði:
• Lyftur: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut og Töfrateppi
• Troðnar brekkur: Auður, Töfrateppi, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Efra svæði:
• Lyftur: Strompur og Fjallkona
• Troðnar brekkur: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki efri,
Gönguskíði (XC):
• 7 km
• 10 km

🎟️ Kaupið miða á netinu og sleppið röðinni:
hlidarfjall.skiperformance.com

☀️ Fimmtudagur, April 24th, 2026 ☀️
⏰ Open 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ 0°C, calm and mild wind

⚠️ Today we are hosting competitions on the mountain. Please respect all closures while events are running.
Certain slopes and areas are reserved for competitors and staff, so we kindly ask guests to follow signage and staff instructions and avoid closed areas.

🎉 Over the next two days, the mountain will be full of life with competitions taking place all around the resort.
We start with absolutely perfect weather — clear skies, sunshine from morning to evening, and ideal spring conditions 🌤️⛷️🏂
All lifts are running from today through Saturday, so there is plenty of space for everyone, whether you are competing or just enjoying the day.
Come up, enjoy the atmosphere, and be part of this special occasion 🙌

Lower area:
• Lifts: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut, and Magic Carpet
• Groomed slopes: Auður, Magic Carpet, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Upper area:
• Lifts: Strompur and Fjallkona
• Groomed slopes: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki Upper
Cross-country (XC):
• 7 km.
• 10 km
🎟️ Buy your ticket online and skip the line:
hlidarfjall.skiperformance.com

Photos from Hlíðarfjall Akureyri's post 23/04/2026

☀️ Fimmtudagur 23. apríl 2026 ☀️
⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ +8°C, logn og milt



⚠️ Í dag fara fram keppnir á fjallinu. Vinsamlegast virðið allar lokanir á meðan viðburðir standa yfir.

Ákveðnar brekkur og svæði eru frátekin fyrir keppendur og starfsfólk, svo við biðjum gesti vinsamlegast að fylgja merkingum og fyrirmælum starfsfólks og forðast lokuð svæði.



☀️ Dagur 1 er runninn upp! ☀️

Í dag hefjast 50. Andrésar andar leikarnir 🎉 Næstu þrjá daga verður fjallið fullt af lífi með keppnum um allt svæðið.

Við byrjum með alveg frábæru veðri — heiðskíru lofti, sól frá morgni til kvölds og fullkomnum vorskilyrðum 🌤️⛷️🏂

Allar lyftur eru í gangi frá deginum í dag og fram á laugardag, svo það er nóg pláss fyrir alla, hvort sem þú ert að keppa eða bara njóta dagsins.

Komdu upp eftir, njóttu stemningarinnar og vertu hluti af þessu sérstaka tilefni 🙌



Neðra svæði:
• Lyftur: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut og Töfrateppi
• Troðnar brekkur: Auður, Töfrateppi, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið og Ævintýrabraut

Efra svæði:
• Lyftur: Strompur og Fjallkona
• Troðnar brekkur: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki efri, Brattabrekka og Hjalteyrin

Gönguskíði (XC):
• 1.2 km
• 3.5 km
• 10 km

⛷️🔥 Ekki horfa á þetta — mættu.

🎟️ Kaupið miða á netinu og sleppið röðinni:
hlidarfjall.skiperformance.com



☀️ Thursday, April 23rd, 2026 ☀️
⏰ Open 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ +8°C, calm and mild



⚠️ Today we are hosting competitions on the mountain. Please respect all closures while events are running.

Certain slopes and areas are reserved for competitors and staff, so we kindly ask guests to follow signage and staff instructions and avoid closed areas.



☀️ Day 1 is here! ☀️

Today marks the start of the 50th Andrés Games 🎉 Over the next three days, the mountain will be full of life with competitions taking place all around the resort.

We start with absolutely perfect weather — clear skies, sunshine from morning to evening, and ideal spring conditions 🌤️⛷️🏂

All lifts are running from today through Saturday, so there is plenty of space for everyone, whether you are competing or just enjoying the day.

Come up, enjoy the atmosphere, and be part of this special occasion 🙌



Lower area:
• Lifts: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut, and Magic Carpet
• Groomed slopes: Auður, Magic Carpet, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið, and Ævintýrabraut

Upper area:
• Lifts: Strompur and Fjallkona
• Groomed slopes: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki Upper, Brattabrekka, and Hjalteyrin

Cross-country (XC):
• 1.2 km
• 3.5 km
• 10 km

⛷️🔥 Don’t just watch it — be here.

🎟️ Buy your ticket online and skip the line:
hlidarfjall.skiperformance.com

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hlíðarfjallsvegur
Akureyri
600